The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 4

Matthew · Chapter 4

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 4 of 174 · about 3 min

← Chapter 3Chapter 5 →

[ breyta] Þá var Jesús teygður af anda á eyðimörk upp á það hann freistaður yrði af djöflinum. Og þá hann hafði fastað í fjörutíu daga og fjörutíu nátta, hungraði hann. Og freistarinn gekk til hans og sagði: Ef þú ert sonur Guðs, seg að steinar þessir verði að brauðum. Hann svaraði og sagði: Skrifað er að maðurinn lifir eigi af einu saman brauði, heldur af sérhverju orði sem fram gengur af Guðs munni. Þá tók djöfullinn hann með sér í borgina helgu og setti hann upp á burst musterisins og sagði til hans: Ef þú ert Guðs sonur, fleyg þér hér ofan því að skrifað er að hann mun bjóða sínum englum um þig, að á höndum bæri þeir þig svo að þú steyttir eigi fót þinn við steini.

Jesús sagði aftur til hans: Skrifað er að eigi skaltu freista Drottin Guð þinn. Og enn aftur flutti djöfullinn hann með sér upp á ofur hátt fjall og sýndi honum öll ríki veraldar og þeirra dýrð og sagði til hans: Allt þetta man eg gefa þér ef þú fellur fram og tilbiður mig. Þá sagði Jesús til hans: Far burt, þú andskoti. Því að skrifað er: Drottin Guð þinn skaltu tilbiðja og honum einum þjóna.

Þá forlét djöfullinn hann, og sjá, að englar komu til hans og þjónuðu honum.* En er Jesús heyrði það Jóhannes var gripinn, fór hann til Galílealands og forlét borgina Naðaret, kom og byggði í borginni Kapernaum, hver eð liggur við sjávarsíðu í endimörku Sabúlons og Neftalíns svo að það uppfylltist hvað sagt er fyrir Esaiam spámann sem segir: Landið Sabúlon, landið Neftalím við sjávargötu hinumegin Jórdanar og Galílea hinnar heiðnu þjóðar. Lýður sá er sat í myrkrunum, hann sá ljós mikið. Og þeir sem sátu í þeirri byggð og dauðans skugga, þeim er nú ljós upprunnið. Þaðan í frá tók Jesús til að predika og segja: Gjörið iðran því að himnaríki tekur að nálgast.

En er Jesús gekk með sjónum í Galílea, leit hann tvo bræður, Símon sá er kallaðist Petrus og Andream bróður hans, hverjir eð voru að varpa neti í sjóinn því að þeir voru fiskimenn. Og hann sagði til þeirra: Fylgið mér eftir, og mun eg gjöra yður að fiskurum manna. En þeir forlétu jafnsnart netin og fylgdu honum eftir.* Og er hann gekk fram lengra burt þaðan, sá hann tvo aðra bræður, Jakob son Sebedei og Jóhannem bróður hans, vera á skipi með feður sínum Sebedeo net sín að bæta. Og hann kallaði þá, en þeir forlétu strax skipið og föður sinn og fylgdu honum eftir.

Jesús fór og um allt Galíleam kennandi í þeirra samkunduhúsum og predikaði evangelium ríkisins og læknaði öll sóttarferli og öll krankdæmi með fólkinu. Og hans rykti barst út um allt Sýriam, og þeir færðu honum alla þá sem krenktir voru af margvíslegum sóttarferlum og í ýmislegum píslum höndlaðir og þá er djöful höfðu, tunglamein eða iktsjúkir voru. Og hann læknaði þá alla. Og margt fólk fylgdi honum eftir úr Galílea og úr þeim tíu borgum og af Jerúsalem og Júdea og af þeim héruðum er voru hinumegin Jórdanar.

← Chapter 3Chapter 5 →