The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 31

Luke · Chapter 3

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 31 of 174 · about 4 min

← Chapter 30Chapter 32 →

[ breyta] En á fimmtánda ári ríkis Tíberii keisara þá er Pontíus Pílatus var landstjórnari í Júdea, en Heródes tetrarka í Galílea og bróðir hans Filippus tetrarka í Ítúrea og um Trakónítidis héruð og Lýsanías til Abílene, og þá þeir Annas og Kaífas voru höfuðprestar, kom Guðs orð yfir Jóhannem, son Sakaríe, í eyðimörku. Og hann kom um allt byggðarlag Jórdanar og predikaði iðrunarskírn til syndanna fyrirgefningar svo sem skrifað er í málabók Jesaja spámanns sem segir, að hrópandi rödd er í eyðimörku: Reiði þér til götu Drottins og gjörið hans stigu rétta. Hver dalur mun fyllast, og öll fjöll og hálsar munu lægjast. Og það bogið er, mun réttast, og hvað snarpt er, mun snúast í slétta vegu.

Og allt hold mun sjá Guðs hjálpráð. En hann sagði til fólksins, þess er út gekk að skírast af honum: Þér nöðru kyn, hver kenndi yður að flýja undan ókominni reiði? Fyrir því gjörið maklega ávöxtu iðranar, og takið ei að segja með sjálfum yður: Vær höfum Abraham fyrir föður. Því að eg segi yður að máttugur er Guð upp að reisa Abrahams syni af steinum þessum. Því öxin er nú sett að rót trésins og hvert það tré, sem eigi færir góðan ávöxt, mun af höggvast og í eld kastast. Og fólkið spurði hann að og sagði: Hvað skulu vær þá gjöra? En hann svaraði og sagði til þeirra: Sá yðar sem hefir tvo kyrtla, hann gefi þeim er öngvan hefur. Og sá er vistir hefir, gjöri hann slíkt hið sama.

Tollheimtumenn komu og til hans að láta sig skíra og sögðu til hans: Meistari, hvað skulu vær gjöra? En hann sagði til þeirra: Krefjið eigi meira en til er skipað. Þá spurðu hann stríðsmenn að og sögðu: Hvað skulu vær gjöra? Hann sagði til þeirra: Kúgið öngvan né gjörið órétt, og látið yður nægja yðvart kaupgjald. En þá fólkið grunaði og að það hugleiddu allir í sínum hjörtum ef verða mætti það að Jóhannes væri Kristur, svaraði Jóhannes og sagði til allra: Eg skíri yður í vatni, en sá er mér styrkri sem eftir mig mun koma, hvers eg em ei verður upp að leysa þvengi hans skóklæða. Hann mun skíra yður í heilögum anda og eldi, hvers vindskófl að er í hans hendi.

Og hann mun hreinsa sinn láfa og saman safna hveitinu í kornhlöðu sína, en agninnar brenna í eldi óslökkvanlegum. Og margt annað meira minnti hann og boðaði fólkinu. En er Heródes tetrarka straffaðist af honum yfir Heródíadem bróðurkonu sína og fyrir allt annað illt er Heródes gjörði, þó jók hann ofan á þetta allt og lukti Jóhannem í myrkvastofu. En það skeði þá er allt fólk lét sig skíra og þá er Jesús var skírður og baðst fyrir að himinninn opnaðist og heilagur andi sté ofan í líkamlegri mynd yfir hann sem dúfa. Og rödd kom af himni sem sagði: Þú ert sonur minn elskulegur, í þér þókknast mér.

Og Jesús var nær þrjá tigi ára þá hann hóf upp og var haldinn son Jósefs, sá er var sonur Elí, sá er var sonur Mattat, sá eð var sonur Leví, sá eð var sonur Melkí, sá eð var sonur Janna, sá eð var sonur Jósefs, sá eð var sonur Mattatías, sá eð var sonur Amos, sá eð var sonur Naúm, sá eð var sonur Eslí, sá eð var sonur Nangí, sá eð var sonur Maat, sá eð var sonur Mattatías, sá eð var sonur Semeí, sá eð var sonur Jósek, sá eð var sonur Júda, sá eð var sonur Jóhanna, sá eð var sonur Resía, sá eð var sonur Sóróbabel, sá eð var sonur Salatíel, sá eð var sonur Nerí, sá eð var sonur Melkí, sá eð var sonur Addí, sá eð var sonur Kósam, sá eð var sonur Elmadam, sá eð var sonur Er, sá eð var sonur Jesó, sá eð var sonur Elíeser, sá eð var sonur Jórem, sá eð var sonur Matta, sá eð var sonur Leví, sá eð var sonur Símeon, sá eð var sonur Júda, sá eð var sonur Jósefs, sá eð var sonur Jónam, sá eð var sonur Eljakím, sá eð var sonur Melea, sá eð var sonur Menam, sá eð var sonur Mattatam, sá eð var sonur Natan, sá eð var sonur Davíð, sá eð var sonur Jesse, sá eð var sonur Óbeð, sá eð var sonur Boos, sá eð var sonur Salmon, sá eð var sonur Nahasson, sá eð var sonur Amínadab, sá var sonur Aram, sá eð var sonur Esrom, sá eð var sonur Farem, sá eð var sonur Júda, sá eð var sonur Jakobs, sá eð var sonur Ísaks, sá eð var sonur Abrahams, sá eð var sonur Tara, sá eð var sonur Nakór, sá eð var sonur Sarúk, sá eð var sonur Ragahú, sá eð var sonur Falek, sá eð var sonur Eber, sá eð var sonur Sala, sá eð var sonur Kainan, sá eð var sonur Arfaksad, sá eð var sonur Sem, sá eð var sonur Nói, sá eð var sonur Lamek, sá eð var sonur Matúsala, sá eð var sonur Enok, sá eð var sonur Jared, sá eð var sonur Malelek, sá eð var sonur Kainan, sá eð var sonur Enos, sá eð var sonur Set, sá eð var sonur Adams, sá var Guðs.

← Chapter 30Chapter 32 →