The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 32

Luke · Chapter 4

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 32 of 174 · about 4 min

← Chapter 31Chapter 33 →

[ breyta] En Jesús, fullur af heilögum anda, kom aftur frá Jórdan og færðist af andanum á eyðimörk og freistaðist af djöflinum í xl daga. Og hann neytti einskis á þeim dögum, og að þeim liðnum hungraði hann. Djöfullinn sagði þá til hans: Ef þú ert Guðs sonur, seg steini þessum að hann verði að brauði. Jesús svaraði og sagði til hans: Skrifað er, það maðurinn lifir eigi af brauði einu, heldur af sérhverju Guðs orði. Og djöfullinn flutti hann upp á hátinda fjallsins og sýndi honum á augabragði öll ríki veraldarinnar og sagði til hans: Allt þetta veldi og þess prýði mun eg gefa þér því að þau eru mér í hendur fengin og hverjum eg vil, má eg þau gefa.

Því ef þú fellur fram og tilbiður fyrir mér, skulu þau öll þín vera. Jesús svaraði og sagði til hans: Far burt frá mér, þú andskoti. Skrifað er: Drottin, Guð þinn, skalt þú tilbiðja og honum einum þjóna. Og hann færði hann þá til Jerúsalem og setti hann ofan á burst musterisins og sagði til hans: Ef þú ert Guðs sonur, fleyg þér hér ofan af. Því að skrifað er, það sínum englum bífól hann þig að þeir varðveiti þig og á sínum höndum beri þeir þig svo að þú drepir eigi fæti þínum við steini. Jesús svaraði og sagði til hans: Sagt er að eigi skulir þú áreita Drottin, Guð þinn. Og er djöfullinn hafði lyktað allar freistanir, veik hann frá honum um stundar sakir.

Og Jesús kom aftur í anda krafti til Galíleam, og ryktið gekk út um öll héruð af honum. Og hann sjálfur kenndi í þeirra samkunduhúsum, og af öllum var hann miklaður. Og hann kom til Naðaret, þar hann var upp alinn, og gekk inn eftir vana sínum á þvottdegi, stóð upp og tók að lesa. Og honum var fengin bók Jesaja spámanns. Og er hann fletti um bókinni, fann hann þann stað hvar skrifað var: Andi Drottins er yfir mér, og af því smurði hann mig og sendi að boða fögnuð voluðum og að græða sundraða í hjörtum, að predika herteknum endurlausn og sýn blindum og kramda að kvitta til lausnar og að predika þakknæmilegt ár Drottins.

Og þá lét hann saman bókina og fékk hana þénaranum aftur og setti sig, og allir þeir, sem í samkunduhúsinu voru, settu honum augu. En hann hóf að segja til þeirra: Í dag er þessi ritning uppfyllt í yðrum eyrum. Og allir gáfu vitnisburð af honum og undruðust þau náðarsamleg orð sem gengu fram af hans munni og sögðu: Er þessi eigi sonur Jósefs? Hann sagði til þeirra: Þér munuð fullkomlega til mín segja þennan orðskvið: Læknir bjarga sjálfum þér. Því hve mikið að vér höfum heyrt að gjört var til Kapernaum, gjör þú og hér á þinni fósturjörð. En hann sagði: Sannlega segi eg yður að enginn spámaður er þakknæmur á sinni fósturjörð.

Í sannleik segi eg yður: Margar ekkjur voru á dögum Elíe í Írael þá himinninn var luktur í þrjú ár og sex mánaði, þá gjörðist og mikill sultur um allt landið, og til öngrar þeirrar var Elías sendur nema í Sarepta Sídonie til einnrar ekkju. Og margir líkþráir menn voru í Írael á dögum Elisæi spámanns, og enginn þeirra var hreinsaður nema Naaman af Sýria. Og allir fylltust þeir upp reiði sem í samkunduhúsinu voru er þeir heyrðu það, stóðu upp og hnepptu hann út af borginni og leiddu hann allt upp á fjallsgnípuna, þá eð þeirra borg var yfir byggð, að þeir hryndi honum þar af fram.

En hann gekk mitt á millum þeirra og fór í burt.* Og hann fór ofan til Kapernaumborgar í Galílea og kenndi þeim þar á þvottdögum. Og allir undruðust hans kenning því hún var voldug. Í samkunduhúsinu var maður sá er hafði óhreinan djöfulsanda og kallaði upp hárri röddu og sagði: Hættu, hvað höfu vær með þig, Jesús af Naðaret? Þú komt að fyrirfara oss. Eg veit vel að þú ert hinn heilagi Guðs. Og Jesús straffaði hann og sagði: Þegi þú og far út af honum. Og djöfullinn fleygði honum mitt fram í milli þeirra og fór út af honum og grandaði honum að öngu.

Ótta sló og yfir alla þá og töluðust við sín á milli og sögðu: Hvaða orði er þetta að hann býður óhreinum öndum af valdi og krafti, og þeir fara út? Hans rykti barst og alls staðar út um öll nálæg héruð. En er Jesús stóð upp af samkundunni, gekk hann inn í hús Símonar. En %vermóðir Símonar var haldin í mikill köldu, og þeir báðu hann fyrir henni. Hann gekk til hennar og fyrirbauð köldunni, og hún forlét hana. Og jafnskjótt reis hún upp og þjónaði þeim. En þá sólin var undir gengin, fluttu þeir til hans alla þá sjúka menn sem margháttaðar sóttir höfðu. En hann lagði hendur yfir sérhvern og læknaði þá. Djöflar fóru og út af mörgum, kallandi upp og sögðu: Þú ert Kristur, sonur Guðs.

Hann hastaði á þá og leyfði þeim eigi að mæla því að þeir vissu það hann var Kristur. En eð dagur var, fór hann og gekk út á eitt eyðiból. Fólkið leitaði að honum og kom til hans og höfðu gát á honum að hann færi eigi í frá þeim, hverjum hann sagði: Mér byrjar og í öðrum borgum að boða Guðs ríki því að til þess em eg sendur. Og hann predikaði í samkunduhúsum til Galílea.

← Chapter 31Chapter 33 →