The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 33

Luke · Chapter 5

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 33 of 174 · about 10 min

← Chapter 32Chapter 34 →

[ breyta] En það skeði þá er fólkið flykktist að honum til að heyra Guðs orð og hann sjálfur stóð við sjóinn Genesaret og leit tvö skip standa við sjóinn, en fiskimennirnir voru stignir af skipi og þvó net sín, þá sté hann á eitt skipið, það sem Símonar var og bað að draga nokkuð frá landi. Hann sat og kenndi fólkinu af skipinu. Og sem hann gaf upp að kenna, sagði hann til Símonar: Drag upp hærra, og leysið net yðar til fiskidrættar. Símon svaraði og sagði til hans: Meistari, í alla nótt höfu vær erfiðað og fengum ekkert, en í þínu orði mun eg mitt net uppleysa. Og þá er þeir höfðu það gjört, luktu þeir inni mikla mergð fiska, og þeirra net rifnaði.

Þeir bentu og sínum félögum sem voru á öðru skipinu það þeir kæmi og hjálpuðu þeim. Og þeir komu og hlóðu bæði skipin full svo þau sukku að mestu. Þá Símon Pétur sá það, féll hann til knjánna Jesú og sagði: Gakk frá mér lávarður því eg em maður syndugur, af því að felmtur var yfir hann kominn og yfir þá alla sem með honum voru að þeim fiskidrætti er þeir fengu saman. Líka einninn og Jakobo og Jóhanni sonum Sebedei, lagsmönnum Símonar. Jesús sagði til Símonar: Óttast þú eigi því að héðan í frá skalt þú menn veiða. Og þeir drógu sín skip að landi og yfirgáfu alla hluti og fylgdu honum eftir.* Það skeði og þá hann var í einni borg, og sjá, að þar var maður fullur vanheilsu.

Og þá hann sá Jesúm, féll hann fram á sína ásjónu, bað hann og sagði: Drottinn, ef þú vilt, þá kannt þú að hreinsa mig. Og Jesús rétti út sína hönd og tók á honum og sagði: Eg vil, vert hreinn. Og jafnskjótt hvarf vanheilsan af honum. Og hann bauð honum að segja það öngum, -heldur gakk og sýn þig kennimanninum og fórna fyrir þinni hreinsan, sem Moyses bauð, þeim til vitnisburðar. En er hans rykti barst víðara út, kom margt fólk saman honum að heyra og að læknast af sínum sóttum. En hann veik sér afvega í eyðimörk og baðst fyrir. Og það bar til á einum degi er hann sat og kenndi, og þar sátu farísei og lögspekingar sem komnir voru af öllum kauptúnum úr Galílea og Júdea og frá Jerúsalem.

Kraftur Drottins var og meður honum til að lækna þá; og sjá, að menn báru þann mann á sæng er sjúkur var í kveisu og sóktu til að koma honum inn og leggja fyrir hann fram. Og er þeir gátu eigi haft hann inn fyrir fólkinu, fóru þeir upp á ræfrið og létu hann síga á sænginni niður um þekjuna mitt á milli þeirra fram fyrir Jesúm. Og er hann leit þeirra trú, sagði hann: Maður, fyrirgefist þér syndir þínar. Skriftlærðir og farísei tóku að hugsa með sér og sögðu: Hver er þessi sem mælir guðlastan? Hver má syndir fyrirgefa nema Guð einn? En er Jesús fornam þeirra hugsan, svaraði hann og sagði til þeirra: Hvað hugsi þér vont í yðrum hjörtum?

Hvort er auðveldara að segja: Þér eru þínar syndir fyrirgefnar, eða að segja: Statt upp og gakk? En svo að þér vitið það mannsins sonur hefir makt til á jörðu að fyrirgefa syndirnar, sagði hann til ins kveisusjúka: Þér segi eg: Statt upp og tak sæng þína og gakk í þitt hús. Og jafnskjótt stóð hann upp þeim ásjáandum og tók sængina upp, þá er hann hafði á legið og gekk í sitt hús, lofandi Guð. Þeim óaði öllum og lofuðu Guð og fylltust af ótta og sögðu: Í dag höfu vær séð undarlega hluti. Eftir það gekk hann út og sá þann tollheimtumann, er Levis var að nafni, sitja í tollbúðinni og sagði til hans: Fylg þú mér eftir. Og hann forlét allt, stóð upp og fylgdi honum eftir.

Levis gjörði honum mikið heimboð í sínu húsi. Þar var og mikill fjöldi tollheimtumanna og annarra þeirra er meður þeim sátu til borðsins. Farísei og skriftlærðir mögluðu við hans lærisveina og sögðu: Því eti þér og drekkið með tolltektamönnum og bersyndugum? Jesús svaraði og sagði til þeirra: Þeir þurfa eigi læknarans við, sem heilbrigðir eru, heldur þeir sem sjúkir eru því að eigi kom eg að kalla réttláta, heldur synduga til iðranar. En þeir sögðu til hans: Því föstuðu lærisveinar Jóhannis svo oft og báðust fyrir svo og líka faríseis lærisveinar, en þínir eta og drekka? Hann sagði þá til þeirra: Megi þér nokkuð láta brúðgumans syni fasta á meðan brúðguminn er hjá þeim?

Því að þeir tímar munu koma að brúðgumanum mun frá þeim kippt, og þá munu þeir fasta á þeim dögum. Og hann sagði í eftirlíking til þeirra, það að enginn setti bót af nýju klæði á gamalt fat, annars trefur hið nýja það upp, og bótin af því inu nýja fellur eigi við hið gamla. Og enginn lætur nýtt vín í forna belgi, annars sprengir hið nýja vínið belgina, og það spillist, en vínbelgirnir tortýnast, heldur skal nýtt vín látast í nýja belgi, og mun þá hvorutveggja forvarast. Svo er og enginn sem drekkur af hinu gamla og vilji strax ið nýja því að hann segir: Hið gamla er betra.

Sétti kapítuli [ breyta] En það bar til á %annan hátíðardag ins fyrsta þvottdags að hann gekk um sáðna akra og hans lærisveinar tíndu axin ofan af korninu og átu, núandi þau með höndum sér. En nokkrir af faríseis sögðu til þeirra: Fyrir því gjöri þér það sem eigi leyfist á þvottdögum? Jesús svaraði og sagði til þeirra: Hafið þér eigi lesið hvað Davíð gjörði, nær hann hungraði sjálfan og þá sem með honum voru? Hverninn að hann gekk inn í Guðs húsið og tók skoðunarbrauðin og át, gaf og þeim sem með honum voru, þau er öngum leyfðust að eta nema kennimönnum einum? Og hann sagði til þeirra: Því að mannsins sonur er herra og einninn þvottdagsins.

Það skeði og enn á öðrum þvottdegi að hann gekk inn í samkunduhúsið og kenndi. Og þar var sá maður sem hin hægra hönd var á visnuð. En skriftlærðir og farísei hugðu að hvort hann læknaði á þvottdögum svo að þeir fyndi það, hvar af þeir mætti hann ákæra. En hann merkti vel þeirra hugsan og sagði til mannsins, þess sem höndina hafði visnaða: Rís þú upp og statt hér mitt. Hann reis upp og stóð þar. En Jesús sagði til þeirra: Eg spyr yður að, hvort hæfir á þvottdögum vel að gjöra eður illa, lífinu að forða eður tortýna? Og hann leit til allra þeirra er í kringum voru og sagði til mannsins: Réttu út þína hönd. Og hann rétti hana út, en sú hans hönd varð svo heil sem hin önnur.

En þeir fylltust af heimsku og töluðu til hver við annan hvað þeir vildu af Jesú gjöra. En það gjörðist á þeim dögum að hann gekk í fjallið að biðjast fyrir, og hann var um þá nótt á bænum til Guðs. Og þá eð dagur var, kallaði hann sína lærisveina og kjöri tólf af þeim, hverja að hann nefndi apostula: Símon, þann hann kallaði Petrum, og Andream bróður hans, Jakob og Jóhannem, Filippum og Bartólómeum, Matteum og Tómam, Jakobum son Alfei og Símon sem kallaðist selotes, Júdam Jakobs son og Júdam Skariot, hver eð var svikarinn. Og hann fór ofan meður þeim af fjallinu og gekk á einn sléttan flöt í mörkinni.

Og flokkur hans lærisveina og mikill fjöldi annars lýðs af allri Júdea og Jerúsalem og úr sjóstöðunum Týro og Sídonis, hverjir komnir voru honum að heyra og það þeir læknuðust af sínum sóttum og að þeir sem kvöldust af óhreinum öndum, yrði heilbrigðir. Og allur lýður sókti til honum að ná því að kraftur gekk út frá honum, og hann læknaði þá alla. Og hann hóf sín augu upp yfir lærisveina sína og sagði: Sælir eru þér volaðir því að yðart er Guðs ríki. Sælir eru þér sem hungraðir er[u] nú því að þér skuluð saddir verða. Sælir eru þér sem nú grátið því að þér munuð hlæja.

Sælir eru þér þó að menn hati yður og frá skilji yður og hallmæli og forleggi yðart nafn svo sem annars illvirkja vegna mannsins sonar. Fagni þér og gleðjist á þeim degi, sjáið, því að yðart verðkaup er mikið á himni því þanninn gjörðu og þeirra feður við spámennina.* En hvar fyrir, ve yður auðigum, sem hér hafið yðra huggan. Ve yður, sem nú eru saddir því að yður mun hungra. Ve yður, sem hlæið nú því að þér munuð æpa og ýla. Ve yður, nær eð hver mann lofar yður því að svo gjörðu og þeirra feður við hina fölsku spámenn. En eg segi yður sem á heyrið: Elski þér óvini yðra, gjörið þeim vel til sem yður hata, signið þá er yður bölva, og biðjið fyrir þeim sem yður misþyrma.

Og hver hann slær þig á einn kinnvangann, bjóð honum og annan fram, og hver hann tekur af þér þinn möttul, þá ver honum eigi þinn kyrtil. Og hver þig biður, þeim gef, og hver hann tekur burt hvað þitt er, það heimt eigi aftur. Og svo sem þér viljið að menn gjöri við yður, gjöri þér líka svo við þá. Og ef þér elskið þá sem yður elska, hver er þá yðar þökk? Því að syndugir elska sína elskendur. Og þó þér gjörið þeim gott sem yður gjöra vel til, hver verður yðar þökk? Því að þetta gjöra einninn inir syndugu. Og þó þér skiptið við þá, af hverjum þér væntið launa, hver verður þá yðar þökk? Því að syndugir býta við synduga að þeir taki líkt við líku.

Hvar fyrir, þá elski þér óvini yðra, gjörið gott og býtið, einskis þar fyrir væntandi. Þá mun yðart verðkaup mikið verða, og þér munuð verða synir ins hæðsta því að hann er góðfús viður óþakkláta og vonda. Fyrir því verið og miskunnsamir, líka sem yðar faðir er miskunnsamur. Eigi skulu þér dæma, að þér dæmist eigi. Fordæmið eigi svo að þér fordæmist eigi. Fyrirgefið þá mun yður og fyrirgefast. Gefið og yður skal gefast. Góða og saman þrykkta, skekna og yfirfljótanlega mæling mun gefin vera í yðvart skaut því að meður þeirri sömu mælingu, hverri þér mælið, mun yður aftur mælast. Og hann sagði þeim eina eftirlíking: Fær blindur nokkuð leitt blindan? Falla þeir eigi báðir í gröfina?

Eigi er lærisveinninn yfir sínum meistara því nær eð hver er svo sem hans meistari, þá er hann algjörður. En hvað sér þú ögn í þíns bróðurs auga, en að þeim vagli, sem í þínu auga er, gáir þú eigi. Eða hverninn máttu segja bróður þínum: Bróðir, leyf að eg dragi burt ögnina úr auga þínu, er þú sér eigi sjálfur vaglinn í þínu auga? Þú hræsnari, drag þú fyrst út vaglinn úr þínu auga, og sjá þá til að þú dragir út ögnina af þíns bróður auga.* Því ekkert gott tré þá ber vondan ávöxt, og ekkert vont tré ber góðan ávöxt. Hvert tré man og kennast af sínum ávexti því að eigi lesa menn saman fíkjur af klungri og eigi hirða menn vínber af skógarrunni.

Góður maður af góðum sjóð síns hjarta fremur gott, og illur maður af vondum sjóð síns hjarta fremur illt því að af gnægð hjartans mælir munnurinn. Til hvers kalli þér mig herra, herra, og gjörið eigi það eg segi? Hver hann kemur til mín, heyrir mín orð og gjörir þau, þá mun eg sýna yður, að hverjum hann er líkur. Hann er líkur þeim manni er byggði upp hús og gróf djúpt og setti sinn grundvöll á hellusteini. En er vatshríðina gjörði, dundi vatsflóðið að húsinu og mátti það eigi hræra því að það var grundvallað á hellusteini.

En hver hann heyrir þau og gjörir eigi, hann er líkur þeim manni er byggði sitt hús á jörðu án grundvölls, að hverju vatsflóðið dundi, og það féll jafnsnart, og hrapan þessa húss varð mikil.

← Chapter 32Chapter 34 →