The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 34

Luke · Chapter 6

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 34 of 174 · about 12 min

← Chapter 33Chapter 35 →

[ breyta] En þá hann hafði lyktað sína ræðu fyrir fólkinu, gekk hann inn í Kapernaum. En þjón eins hundraðshöfðingja lá dauðvona, hver eð honum var geðfelldur. Og er hann heyrði af Jesú, sendi hann menn af öldungum Gyðinga til hans og bað hann að koma og gjöra sinn þjón heilbrigðan. En er þeir komu til Jesú, grátbændu þeir hann og sögðu: Verður er hann þess að þú veitir honum það því að hann elskar vora þjóð og hefir upp byggt fyrir oss vort samkunduhús. En Jesús gekk með þeim þaðan. Og þá er þeir voru eigi langt frá húsinu, sendi höfðinginn vini til hans og sagði: Herra, þjáið yður eigi því að eg em ei verður að þú gangir inn undir mitt þak.

Þar fyrir hefi eg og eigi reiknað sjálfan mig verðugan til þín að koma. Heldur mæl þú orð og verði minn sveinn svo heill. Því að eg em maður valdinu undirgefinn, hafandi undir mér hernaðarmenn, og ef eg segi þessum: Far, þá fer hann, og til annars: Kom, svo kemur hann, og þjón mínum: Gjör þetta, og þá gjörir hann það. En er Jesús heyrði það, undraðist hann og sneri aftur og sagði til fólksins sem honum fylgdi eftir: Sannlega segi eg yður að eg hefi eigi fundið þvílíka trú í Írael. Og er þeir sem út voru sendir, komu aftur til hússins, fundu þeir þann þjón, er sjúkur hafði verið, heilbrigðan.

Það skeði og eftir það að Jesús gekk til þeirrar borgar sem hét Nain, og margir hans lærisveinar fylgdu honum og fjöldi annars fólks. En er hann nálgaðist borgarhliðið, sé, var framliðinn maður borinn út, einkasonur sinnar mæður, og hún var ekkja, og mikill borgarmúgur gekk út með henni. Og er Drottinn leit hana, hrærðist hann miskunnar og sagði til hennar: Æptu eigi. Og hann gekk þar að og á hrærði börunnar, en þeir eð báru, stóðu við. Hann sagði: Ungmenni, eg segi þér, rís upp. Og sá reistist upp við, sem framliðinn var, og tók að mæla. Og hann fékk hann aftur sinni móður.

En yfir alla þá kom ótti, lofuðu Guð og sögðu: Spámaður mikill er á meðal vor upprisinn, og Guð hefir vitjað síns lýðs.* Og þessi saga barst út af honum um allt Júdeam og um öll nálæg héruð. Og allt þetta kunngjörðu Jóhanni hans lærisveinar. Og Jóhannes kallaði tvo af sínum lærisveinum til sín og sendi þá til Jesú og lét segja: Ert þú sá er koma mun, eða eigu vær annars að bíða? En er þeir menn komu til hans, sögðu þeir: Jón baptista sendi okkur til þín og lét segja þér: Ert þú sá er koma mun, eða eigu vær annars að bíða? En á þeirri stundu læknaði hann marga af sóttum sínum og meinum og af óhreinum öndum, og mörgum blindum gaf hann sýn.

Og Jesús svaraði og sagði til þeirra: Gangið og kunngjörið Jóhanni hvað þér hafið heyrt og séð, það blindir sjá, haltir ganga, líkþráir hreinsast, daufir fá heyrn, dauðir rísa upp, fátækum boðast guðsspjöll. Og sæll er sá sem eigi skammfyllir sig á mér. En er sendiboðar Jóhannis voru burt gengnir, hóf Jesús að segja til fólksins af Jóhanni: Hvar til fóru þér út í eyðimörk? Eða fóru þér að sjá reyrvönd vindi skekinn? Eða vildu þér heldur út fara að sjá mann í mjúkum klæðum prýddan? Sjáið, að þeir, sem dýrmæt klæði bera og að fýsn lifa, eru í konungs görðum. Eða hvað fóru þér að sjá? Vildu þér sjá spámann? En eg kann yður að segja framar en spámann.

Þessi er sá, af hverjum að skrifað er, að eg sendi minn engil fyrir þínu augliti, sá er til reiða skal þinn veg fyrir þér. Því að eg segi yður að á meðal þeirra, sem af konu eru fæddir, er enginn spámanna meiri en Jón baptista. En sá eð minni er í Guðs ríki, er honum meiri. Og allt það fólk, er á heyrði, og líka tollheimtumenn, réttlættu Guð og létu sig skíra meður skírn Jóhannis. En farísei og lögspekingar forsmáðu Guðs ráð í stríð við sjálfa sig og létu eigi skírast af honum. En Drottinn sagði: Við hvað skal eg jafna mönnum þessarar kynslóðar og hverju þeir eru líkir?

Börnum þeim eru þeir líkir, sem sitja á torgi og klakar hvert til annars og segja: Vær pípuðum fyrir yður, og þér dönsuðuð eigi. Vær sungum fyrir yður vor harmakvæði, og þér æptuð eigi. Því að Jón baptista er kominn, át eigi brauð né drakk vín, þó segi þér hann hafi djöful. Mannsins son er og kominn, át og drakk, og þér segið: Sjáið, etarann og víndrykkjumanninn, ástvin tollheimtumanna og bersyndugra. Og spekin hlýtur svo að réttlætast af sínum sonum öllum. En nokkur af faríseis bað hann að hann æti með honum, og hann gekk inn í farísearans hús og settist til borðs. Og sjá, að kona var sú í borginni, er bersyndug var.

Og er hún vissi að Jesús sat til borðs í farísearans húsi, hafði hún þangað smyrslabuðk og fór á baki honum til fóta hans og tók að væta hans fætur með tárum og að þurrka meður lokkum síns höfuðs, kyssti og á hans fætur og reið á smyrslum. En er hinn faríseus sá það, sem honum bauð inn, mælti hann með sér: Ef að þessi væri spámaður, þá vissi hann hver og hvílík væri sú kona er á honum tekur því að hún er ein bersyndug kvinna. Jesús svaraði og sagði til hans: Símeon, eg hefi nokkuð þér að segja. En hann sagði: Seg þú meistari. Tveir skuldamenn voru nokkurs okurkalls. Einn var honum skuldugur fimm hundruð peninga, en annar fimmtigi. Og er þeir höfðu eigi að gjalda, gaf hann þeim báðum til.

Því seg nú hvor þeirra er, hann elskar meir. Símon svaraði og sagði: Eg meina að sá sem hann gaf meira til. En hann sagði til hans: Það úrskurðaðir þú rétt. Og hann vendi sér til konunnar og sagði til Símonar: Sér þú þessa konu. Eg gekk inn í þitt hús, og þú gaft eigi vatn mínum fótum, en þessi vætti mína fætur með tárum og þurrkaði með sínum höfuðlokkum. Koss gaft þú mér öngvan, en þessi, síðan hún gekk hér inn, hefir hún eigi linnt að kyssa mína fætur. Mitt höfuð smurðir þú eigi viðsmjöri, en þessi reið á mína fætur smyrslum. Fyrir það segi eg þér að henni fyrirgefast margar syndir því að hún elskaði mikið. En þeim sem minna fyrirgefst, hann elskar miður.

Og hann sagði til hennar: Þér eru þínar syndir fyrirgefnar. Og þeir tóku að segja, sem við borðið sátu, með sjálfum sér: Hver er þessi sá er einninn fyrirgefur syndir? En hann sagði til konunnar: Þín trúa gjörði þig hólpna, far í friði. Áttandi kapítuli [ breyta] Það skeði og eftir það að hann ferðaðist í gegnum borgir og kauptún, predikaði og boðaði Guðs ríki og þeir tólf meður honum og nokkrar þær konur sem hann hafði grætt af óhreinum öndum og öðrum sóttarferlum, einkum María sú er hét Magdalena, frá hverri er sjö djöflar höfðu út farið, og Jóhanna, húsfrú Kúsa, forsjónarmanns Heródis, og Súsanna og margar aðrar, þær honum veittu af sínum eignum.

En þá er margt fólk var saman komið og er þeir drifu að honum úr stöðunum, sagði hann í eftirlíkingu: Sá gekk út, er sáði, að sá sínu sæði. Og þá hann sáði, féll sumt hjá veginum og var fóttroðið, og fuglar himins átu það. Og sumt féll á hellu og þá er það spratt upp, visnaði það af því það hafði eigi vökva. Og sumt féll á meðal þyrna og þyrnin spruttu upp með og kefðu því niður. Sumt féll í góða jörð, og það vóx upp og bar hundraðfaldan ávöxt. Þá er hann sagði þetta, kallaði hann: Hver eyru hefir að heyra, hann heyri.

En hans lærisveinar spurðu hann að, hver eð væri þessi eftirlíking, hverjum hann sagði: Yður er unnt að vita leynda dóma Guðs ríkis, en þeim öðrum í eftirlíking að sjáandi, þá sjái þeir það eigi, og á heyrandi, skilji þeir það eigi. En þessi er eftirlíkingin: Sæðið er Guðs orð. En hinir við veginn eru þeir sem heyra, en eftir á þá kemur djöfullinn og tekur orðið úr hjörtum þeirra svo að þeir trúi eigi og verði hólpnir. En hinir, er á helluna [féllu] eru það, nær þeir heyra það, þá meðtaka þeir það með fagnaði og hafa þó eigi rót neina. Um stundar sakir trúa þeir, og á freistunar tíma þá falla þeir frá.

En það sem féll á millum þyrnanna, eru þeir sem það heyra og velkjast í sorgum, auðæfum og girndum þessara lífdaga, kefjast svo og færa öngvan ávöxt. En það sem í góða jörð féll, eru þeir sem heyra orðið og halda það í góðu og siðsömu hjarta og færa ávöxt í þolinmæði.* En enginn kveikir á ljósinu og byrgi það í keri eða setji það undir sængarstað, heldur setur hann það á kertahaldinn svo að þeir sem þar inn ganga, sjái ljósið. Því að ekki er svo dulið að eigi verði opinbert og ekkert svo leynt að eigi kunngjörist og í augljós komi. Fyrir því gætið að hverninn þér heyrið til.

Því að þeim eð hefir, honum mun gefast, og hver helst eigi hefir, frá honum mun burt takast, einninn það hann meinar sig hafa. En móðir hans og bræður komu til hans og gátu eigi fundið hann fyrir fólkinu. Og honum var það undirvísað: Móðir þín og bræður eru hér úti og vilja sjá þig. En hann svaraði og sagði til þeirra: Mín móðir og mínir bræður eru þeir sem heyra Guðs orð og gjöra. Og það bar til á einum degi að hann sté sjálfur á skip lítið og hans lærisveinar. Hann sagði þá til þeirra: Föru vær yfir um þenna sjó. Og þeir leystu frá landi. En er þeir sigldu, sofnaði hann. Og þar kom hverfilvindur á sjóinn svo að fyllti undir þeim, og þeim lá við töpun.

Þá gengu þeir að honum, vöktu hann og sögðu: Meistari, vær forgöngum. En hann stóð upp og hastaði á vindinn og á sjávaröldurnar, og þær sefuðust og gjörði logn. Hann sagði til þeirra: Hvar er yðar trú? En þeir óttuðust það og undruðu, segjandi sín á milli: Hver ætli þér að þessi sé? Því að hann býður vindi og vatni, og þau hlýða honum. Þeir sigldu þá til þeirrar byggðar hvar Gadareni bjuggu, hver eð liggur jafngegnt Galílea. Og þá hann sté af skipi á land, rann í móti honum maður nokkur úr borginni sem haft hafði djöful um langan tíma og klæddist eigi fötum, var og eigi í húsum, heldur í dauðra manna leiðum.

En er hann leit Jesúm, féll hann fram fyrir honum, kallaði upp hárri röddu og sagði: Hvað á eg með þig Jesú, sonur Guðs ins hæðsta? Eg beiði þig að eigi kveljir þú mig. En hann bauð óhreinum anda að hann færi út af manninum. Því að hann hafði um langa ævi hann kvalið. Hann var og bundinn járnviðjum og í fjötrum varðveittur, en að slitnum böndunum var hann rekinn af djöflinum í eyðimörk. Jesús spurði hann að og sagði: Hvert er nafn þitt? Hann sagði: Legion, því að margir djöflar voru í hann farnir. Og þeir báðu hann að ei skipaði hann þeim að fara í undirdjúpið. En þar var mikil svínahjörð á biti um fjallið. Og þeir báðu hann að leyfa sér að fara í þau, og hann lofaði þeim það.

Þá fóru djöflarnir út af manninum og hlupu í svínin, og hjörðin fleygði sér með einu áhlaupi í sjáinn og drekktist þar. En er þeir sáu það, sem hjörðina geymdu, flýðu þeir og kunngjörðu það í borgina og um þorpin. Þá gengu þeir út að sjá hvað skeð var og komu til Jesú, fundu manninn, af hverjum djöflarnir höfðu út farið, sitjanda klæddan og heilvita til fóta Jesú. Og þeim óaði það. En þeir sem höfðu séð, kynntu þeim hverninn sá hinn djöfulóði var heilbrigður vorðinn. Og allur múgur Gadareni byggðar báðu hann að hann viki burt frá þeim því að þeir voru af miklum ótta haldnir. Hann sté þá á skip og sneri aftur.

En sá maður, sem djöflarnir voru út af farnir, bað hann að hann mætti vera hjá honum, en Jesús lét hann frá sér og sagði: Far aftur í þitt hús og seg hve mikið Guð veitti þér. Og hann fór og predikaði um alla borgina hve mikið Jesús hafði honum gjört. Það skeði og er Jesús kom aftur að lýðurinn meðtók hann því að allir biðu hans. Og sjá, að maður kom þar er Jaírus var að nafni, og sá var samkunduhússins höfðingi. Hann féll til fóta Jesú og bað hann að hann gengi í hans hús. Því að hann átti sér einkadóttur, nær tólf ára gamla, og hún var að dauða komin. Og er hann gekk þangað, þrengdi fólkið að honum.

Kona var þar og nokkur sem haft hafði blóðfall í tólf ár, hver eð út hafði og gefið læknurum sína alla aleigu og varð þó af öngum grædd. Hún gekk á bak til og snart fald hans klæða, og jafnsnart stemmdist hennar blóðlát. Jesús sagði: Hver er sá er mig snerti? En er allir neituðu, sagði Pétur og þeir er með honum voru: Meistari, fólkið þrengir og þjakar að þér, og þú segir: Hver snart mig? Jesús sagði: Einhver hefir snortið mig því að eg kenni kraft út af mér genginn. En er konan sá að það var eigi hulið, kom hún skjálfandi og féll fram fyrir fætur hans og kunngjörði fyrir öllu fólki fyrir hverja sök eð hún hafði hann snortið og hversu hún hafði jafnsnart heil orðið.

En hann sagði til hennar: Vert glöð mín dóttir, þín trúa gjörði þig hólpna. Far í friði. Og er hann talaði um þetta, kom nokkur til samkunduhússins höfðingja, segjandi honum: Þín dóttir er látin, ómaka hann eigi. En er Jesús heyrði það, svaraði hann og sagði við föður stúlkunnar: Hræðst eigi þú, trúðu heldur, þá verður hún heilbrigð. Og er hann kom að húsinu, lofaði hann ei neinum inn að ganga með sér nema Pétri, Jakobo og Jóhanni og föður og móður stúlkunnar. En þeir grétu allir og syrgðu hana. Hann sagði þá: Grátið eigi því að hún er ei dauð, heldur sefur hún. Þá dáruðu þeir hann því að þeir vissu að hún var látin.

En hann rak þá alla út og tók í hönd hennar, kallaði og sagði: Stúlka, statt upp. Og hennar andi kom aftur, og hún stóð jafnsnart upp. Hann skipaði og að gefa henni að eta. Hennar foreldrum felmtraði við, en hann bauð þeim að segja öngum frá hvað gjörst hafði.

← Chapter 33Chapter 35 →