Luke · Chapter 7
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 35 of 174 · about 7 min
[ breyta] En Jesús kallaði saman þá tólf er postular nefndust og gaf þeim kraft og mátt yfir alla djöfla og það þeir læknuðu sóttir, sendi þá og út að predika Guðs ríki og að græða sjúka, sagði til þeirra: Þér skuluð ekkert bera með yður á veg, hvorki staf né tösku, eigi brauð né peninga, og þér skuluð ei hafa tvo kyrtla. Og í hvert það hús sem þér inn gangið, þá blífið þar þangað til þér farið í burt þaðan. Og sá hver er meðtekur yður eigi, þá gangið út úr borg þeirri og hristið duft af fötum yðar til vitnisburðar yfir þá. Þeir gengu út og ferðuðust í gegnum kauptún, boðandi Guðs ríki og læknandi alls staðar.
En er Heródes tetrarka heyrði það allt hvað er hann gjörði, varð hann efa blandinn af því að af sumum sagðist það Jóhannes væri af dauða risinn, en af sumum það Elías væri auglýstur, en af öðrum það einn af gömlu spámönnum væri upp aftur risinn. Heródes sagði: Jóhannem lét eg afhöfða, eða hver er þessi, af þeim eð eg heyri þvílíkt? Og hann fýstist að sjá hann. Postularnir komu aftur og skýrðu honum frá hvað eð þeir höfðu gjört, og hann meðtók þá og veik afvega í eyðimörk þeirrar borgar sem hét Betsaida. Og er fólkið varð þess vart, dró það eftir. Og hann meðtók það og talaði fyrir þeim af Guðs ríki, læknaði og þá sem þess þurftu.
En er líða tók á daginn, gengu þeir tólf til hans og sögðu honum: Lát fólkið í frá þér að það gangi í þau þorp og kauptún er hér eru í kring að herbergja sig og leita sér að fæðu því að vær erum hér á eyðimörk. En hann sagði: Gefi þér þeim að eta. Þeir sögðu: Vær höfum eigi meir en fimm brauð og tvo fiska nema vera megi að vær förum og kaupum fæðu þessu öllu fólki. En þar var fimm þúsund manns. Hann sagði þá til sinna lærisveina: Látið þá setja sig í lag fimmtigum saman. Þeir gjörðu og svo, settu sig niður allir samt. Hann tók þá þau fimm brauð og tvo fiska, leit til himins, blessaði þau og braut sundur, fékk sínum lærisveinum að þeir legði fyrir fólkið. Þeir neyttu og urðu allir saddir.
Það var og upp tekið er þeim hafði af gengið af leifunum, tólf karfir fullar. Það gjörðist og þá hann var einn og baðst fyrir og hans lærisveinar hjá honum að hann spurði þá að og sagði: Hvern segir fólkið mig vera? Þeir svöruðu og sögðu: Þeir segja þú sért Jóhannes baptista, en aðrir Elías, en sumir segja það einn af inum fyrrum spámönnum sé upprisinn. Hann sagði til þeirra: Hvern segi þér mig vera? Símon Petrus svaraði og sagði: Kristur Guðs. En hann hastaði á þá og bauð þeim að þeir segði það ei neinum og sagði það mannsins syni bæri margt að líða og forsmáður að vera af öldungum, kennimannahöfðingjum og skriftlærðum og líflátinn verða og á þriðja degi upp að rísa.
Hann sagði þá til allra: Ef nokkur vill eftir mér fara, hann afneiti sjálfum sér og taki á sig sinn kross hversdaglega og fylgi mér eftir. Því að hver er sínu lífi vill bjarga, hann týnir því, en hver sínu lífi týnir minna vegna, hann gjörir það hólpið. Því hvað gagnar það manninum þó hann hreppi allan heim, en glati sjálfum sér og gjöri svo sitt eigið tjón? Því hver hann feilar sér mín og minna orða, þess mun mannsins sonur feila sér þá hann kemur í dýrð sinni og föðursins og heilagra engla. En eg segi yður sannlega að nokkrir af þeim, hér standa, smakka eigi dauðann þangað til þeir sjá Guðs ríki.
Það skeði og eftir þessa ræðu nær átta dögum að hann tók með sér Petrum, Jakobum og Jóhannem og gekk upp á fjallið að biðjast fyrir. Og þá er hann baðst fyrir, varð hans andlitsmynd önnur og hans klæði hvít og skínandi. Og sjá, að tveir menn töluðu við hann, hverjir eð voru Moyses og Elías sem sáust í birtunni og töluðu um hans %útför, hverja hann mundi fullkomna til Jerúsalem. En Pétur og þeir, er voru með honum, voru mjög svefnþunga, og er þeir vöknuðu, sáu þeir hans dýrð og þá tvo menn er hjá honum stóðu. Það varð og þá er hinir voru frá honum viknir að Pétur sagði til Jesú: Meistari, fínt er oss hér að vera. Og gjörum hér upp þrjár tjaldbúðir, þér eina, Moyse eina, Elíi eina.
Og hann vissi eigi hvað hann sagði. En þá hann talaði þetta, kom ský og skyggði yfir þá, og þeir óttuðust er skýið leið yfir þeim. Og rödd kom úr skýinu er sagði: Þessi er sonur minn elskulegur, heyrið honum. Og í því er röddin varð, fundu þeir Jesúm einan saman. Þeir þögðu og sögðu eigi neinum frá því hvað þeir höfðu séð á þeim dögum. Það skeði og annars dags er þeir fóru ofan af fjallinu að margt fólk rann í móti þeim. Og sjá, að maður í bland fólkið kallaði upp og sagði: Meistari, eg beiði þig, sjá til sonar míns því að hann er minn einkason.
Og sjá, eð andinn grípur hann, þá emjar hann upp jafnsnart, hrífur hann og slítur með froðufalli, og varla skilst hann við hann þá hann hefir slitið hann. Og eg bað þína lærisveina að þeir ræki hann út, og þeir gátu eigi. Þá svaraði Jesús og sagði: Ó, þú hin fráhverfa og vantrúaða kynslóð, hversu lengi þá skal eg hjá yður vera og líða yður? Leið þú hingað son þinn. Og þá hann gekk til hans, hreif djöfullinn hann og sleit. En Jesús straffaði hinn óhreina anda og læknaði piltinn og fékk hann föður sínum. En þeim ógnaði öllum við Guðs mikilvirki.
En er allir þeir undruðust það allt hvað hann gjörði, sagði hann til sinna lærisveina: Setjið þessa ræðu í hjörtu yðar: Því að þar mun koma að mannsins son mun seljast í manna hendur. En það orð undirstóðu þeir eigi, og það var hulið fyrir þeim svo að þeir skildu það eigi. Og þeir óttuðust að spyrja hann að því sama orði. En sá þanki hófst þeirra á milli, eð hver þeirra mundi mestur vera. Og þá er Jesús sá þeirra hjartans þanka, þreif hann barn og setti það hjá sér og sagði til þeirra: Hver helst er meðtekur þvílíkt barn í mínu nafni, sá meðtekur mig, og hver hann meðtekur mig, sá meðtekur þann er mig sendi. Því sá yðar sem minnstur er allra, hann mun mikill verða.
Jóhannes svaraði og sagði fyrirbuðum honum það því að hann fylgdi þér eigi eftir meður oss. Jesús sagði til hans: Fyrirbjóðið honum það eigi. Því að hver hann er eigi í móti oss, sá er fyrir oss. En það skeði þá þeir dagar voru fullkomnaðir er hann skyldi uppnemast frá oss, hressti hann sína ásján að ganga til Jerúsalem. Og hann lét sendiboða fara fyrir sinni augsýn. Þeir fóru og gengu inn í samverskan kaupstað að þeir reiddu þar til fyrir honum. En þeir þar voru, tóku eigi við honum af því að hann hafði snúið sinni ásján að reisa upp til Jerúsalem.
En er hans lærisveinar Jakobus og Jóhannes sáu það, sögðu þeir: Viltu lávarður, þá vilju við segja að eldur komi af himni og fortæri þeim, líka sem að Elías gjörði. En Jesús sneri sér við, hastaði á þá og sagði: Viti þér eigi að hvers anda þér eruð? Því mannsins sonur er eigi kominn til þess að fyrirfara sálum manna, heldur þær að frelsa. Og þeir gengu burt í annað kauptún. Það skeði og er þeir voru á veginum að nokkur sagði til hans: Eg vil fylgja þér eftir hvert helst þú fer. Jesús sagði til hans: Refar hafa holur og fuglar himins hreiður, en mannsins son hefir eigi hvar hann megi sínu höfði að halla. Hann sagði og til eins annars: Fylg þú mér eftir.
En sá sagði: Herra, lofa mér fyrst að ganga og grefta föður minn. Jesús sagði þá til hans: Lát þá dauðu grafa sína hinu dauðu, en þú gakk og boða Guðs ríki. Og annar sagði: Herra, eg vil þér eftir fylgja, en lofa mér þó fyrst að segja þeim mína burtför, sem eru í mínu húsi. Jesús sagði til hans: Enginn sá er þrífur sinni hendi að arðinum og lítur á bak sér aftur, er hæfilegur Guðs ríkis.