The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 36

Luke · Chapter 8

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 36 of 174 · about 11 min

← Chapter 35Chapter 37 →

[ breyta] En eftir það útvaldi Drottinn og aðra (lxxii) og sendi þá út pörum saman fyrir sér í allar þær borgir og álfur er hann vildi koma og sagði til þeirra: Að sönnu er kornskeran mikil en verkmennirnir fáir. Því biðjið herrann kornskerunnar að hann sendi verkmenn í sína kornskeru. Fa tösku og eigi skó, heilsið og öngum á stræti. Og í hvert það hús þér inn gangið þá segið fyrst: Friður sé í þessu húsi. Og ef þar er sonur friðarins, þá hvílist yðar friður yfir honum, en ef eigi er, þá snúist hann til yðar aftur. Blífið í því sama húsi, etið og drekkið hvað þar veitist. Því að verður er verkmaðurinn sinna launa. Eigi skulu þér ráfa hús af húsi.

Og í hverja þá borg sem þér gangið inn og þar þeir meðtaka yður eigi, gangið út á hennar stræti og segið: Einninn það duft, sem á loddi á oss úr yðvarri borg, hristu vær af á yður. Þá skulu þér vita að Guðs ríki nálægist yður. Eg segi yður það Sódóma mun bærilegra vera á þeim degi en þeirri borg. Vei þér Korasin, vei þér Betsaida. Því að ef skeð hefði í Týro og Sídon þau kraftaverk sem hjá yður hafa gjörð verið, hefði þeir forðum setið í sekk og ösku og gjört svo iðran. Þó mun Týro og Sídone bærilegar vera á efsta dómi en yður. Og þú Kaparnaum, sem upphafin ert allt til himinis, munt niður sökkva allt til helvítis. Hver yður heyrir, hann heyrir mér, og hver yður forsmár, hann forsmár mig.

En hver mig forsmár, hann forsmár þann er mig sendi. En þeir tveir og sjötigi komu aftur með fagnaði og sögðu: Lávarður, einninn hafa djöflar oss undirgefnir verið í þínu nafni. Hann sagði til þeirra: Eg sá andskotann svo sem elding hrapa af himni. Sjáið, eg gef yður vald til að stíga yfir höggorma og flugorma og yfir allan kraft óvinarins. Og yður mun ekkert granda mega. En þó skulu þér eigi gleðjast af þessu það andarnir eru yður undirgefnir, heldur fagnið því það yðar nöfn eru skrifuð á himnum. Og samstundis gladdist Jesús í anda og sagði: Eg prísa þig faðir, Drottinn himins og jarðar, að þú huldir þetta fyrir spekingum og forvitringum og opinberaðir það smælingjum.

Já að sönnu, faðir, því að svo þókknaðist það fyrir þér. Allir hlutir eru mér í hendur fengnir af mínum föður. Enginn veit hver eð sonurinn er nema faðirinn, eða hver eð faðirinn er nema sonurinn og hverjum eð sonurinn vill það opinbera. Og hann snerist til sinna lærisveina og sagði þeim sérdeilis: Sæl eru þau augu sem sjá hvað þér sjáið. Því að eg segi yður það margir spámenn og konungar vildu séð hafa hvað þér sjáið, og sáu það eigi, og heyr[a] hvað þér heyrið, og heyrðu það eigi. Og sjá, að nokkur lögvitringur stóð upp, freistaði hans og sagði: Meistari, hvað skal eg gjöra svo að eg eignist eilíft líf? En hann sagði til hans: Hvað er skrifað í lögmálinu? Hverninn les þú?

Hann svaraði og sagði: Elska skalt þú Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri önd þinni og af öllum mætti þínum og af öllu hugskoti þínu og náunga þinn sem sjálfan þig. Hann sagði þá til hans: Rétt svaraðir þú. Gjör það og muntu lifa. En hann vildi réttlæta sjálfan sig og sagði til Jesú: Hver er þá minn náungi? En Jesús svaraði og sagði: Maður nokkur fór frá Jerúsalem ofan til Jeríkó og hrasaði í bland ræningja, hverjir eð rændu hann klæðum og lemstruðu sárum, gengu burt og létu hann þar eftir hálfdauðan liggja. En svo bar til að kennimaður nokkur fór ofan sama veg, og er hann leit hann, gekk hann fram hjá honum.

Líka og levítinn þá hann kom nær þeim stað, og er hann sá hann, gekk hann og fram hjá. En samverskur maður nokkur ferðaðist og kom í nánd honum. Og er hann leit hann, sá hann aumur á honum, gekk að og batt um sár hans, hellandi í þau viðsmjöri og víni og lagði hann á sinn eyk og flutti til herbergis, gaf og gætur að honum. En annars dags ferðaðist hann burt og tók upp tvo peninga og fékk húsbúandanum, sagði: Haf gát á honum og hvað helst þú leggur meira út, þá skal eg borga þér nær eg kem aftur. Hver þeirra þriggja sýnist þér vera þess náungi sem hrasaður var í bland ræningjanna? En hann sagði: Sá er miskunnarverkið gjörði á honum.

Þá sagði Jesús til hans: Far þú og gjör slíkt hið sama.* En það skeði er þeir ferðuðust að hann gekk inn í nokkuð kauptún, og sú kvinna, er Marta hét, meðtók hann í sitt hús. Og hún átti þá systur er María hét, hver eð setti sig fyrir fætur Jesú og heyrði hans orð. En Marta braust nóg fyrir að þjóna honum. Hún gekk að og sagði: Lávarður, hirðir þú ekki um það að systir mín lætur mig eina saman þjóna? Seg henni að hún hjálpi mér. En Jesús svaraði og sagði til hennar: Marta, Marta, þú ert svo syrgjandi og mæðist í mörgu, eitt er þó nauðsynlegt.

María hefir kjörið sér gott hlutskipti, hvað er eigi skal frá henni takast.* Ellifti kapítuli [ breyta] Það skeði eð hann var í nokkrum stað að biðjast fyrir og er hann gaf upp, þá sagði einn af hans lærisveinum til hans: Lávarður, kenn þú oss að biðja líka sem Jóhannes kenndi sínum lærisveinum. Hann sagði þá til þeirra: Nær þér biðjið, segið svo: Faðir vor, sá þú ert á himnum, helgist nafn þitt, til komi ríki þitt, verði þinn vilji svo á jörðu sem á himinum. Gef oss í dag vort daglegt brauð. Og fyrirgef oss vorar syndir svo sem vær fyrirgefum vorum skuldunautum. Og leið oss eigi í freistni, heldur leys oss frá illu.

Hann sagði til þeirra: Hver yðar sem hér hefir vin og fer til hans um miðnætti og segir honum: Vinur, lána mér þrjú brauð því að vinur minn er kominn af leið til mín, og eg hefi eigi það eg megi fram fyrir hann setja. Og hinn sem fyrir innan er, svarar og segir: Gjör mér eigi ónáð því dyr eru luktar og börn mín eru í svefnhúsi hjá mér, og eigi get eg upp staðið að fá þér þau. Eg segi yður: Ef hann stendur eigi upp og fær honum þau fyrir það að hann sé vinur hans, þó mun hann fyrir sakir hans leiðilegrar brekunar upp standa og fá honum svo mikið sem hann þarfnast. Og eg segi yður: Biðjið, og mun yður gefast, leitið að, og munu þér finna, hnýið á, og mun fyrir yður upp lokið.

Því að hver eð biður, hann öðlast, hver eð leitar, hann finnur, og hver eð á hnýr, fyrir honum lykst upp. En hver faðir er sá af yður, ef sonurinn biður um brauð að hann gefi honum stein þar fyrir, eða biðji hann um fisk, gefur hann honum nokkuð höggorm fyrir fisk, eða ef hann biður um egg að hann rétti að honum flugorm þar fyrir? Því ef þér sem vondir eruð, kunnið góð ráð að gefa sonum yðar, miklu meir þá mun faðir yðar af himnum gefa þeim heilagan anda er hann biðja. Og hann rak út djöful þann er dumbi var. Og það skeði er djöfullinn var út farinn að hinn mállausi talaði, og fólkið undraðist það. En nokkrir af þeim sögðu að fyrir Beelsebúb djöflahöfðingja þá drífur hann djöfla út.

Aðrir freistuðu hans og sóktu af honum eftir teikni af himni. En er hann sá þeirra hugrenningar, sagði hann til þeirra: Hvert ríki sem í sjálfu sér er sundurþykkt, það mun eyðast, og hvert hús mun yfir annað hrapa. Og ef andskotinn er í sjálfum sér sundurþykkur, hverninn má hans ríki þá standast - fyrst þér segið mig fyrir Beelsebúb reka út djöfla? Nú ef eg á fyrir Beelsebúb djöfla út að reka, fyrir hvern rekast þeir þá út af sonum yðrum? Fyrir því verða þeir og yðrir dómendur. En ef eg rek út djöfla meður Guðs fingri, að sönnu kemur þá Guðs ríki til yðar.

Nær eð sterkur, hertygjaður, varðveitir sitt fordyri, þá er allt með mak hvað hann á, en þá er annar honum yfirsterkari kemur og yfirvinnur hann og sviptir hann öllum herklæðum, á hver hann treysti, og sundur skiptir svo hans herfangi. Hver hann er eigi með mér, sá er í móti mér, og hver hann dregur eigi saman með mér, sá sundur dreifir. Nær óhreinn andi fer af manninum út, ráfar hann um þurra staði, leitar að hvíld og finnur eigi, þá segir hann: Eg vil hverfa aftur í hús mitt, hvaðan eg fór út.

Og er hann kemur, finnur hann það af sóplimum hreinsað, þá fer hann, tekur með sér sjö aðra anda honum verri, og er þeir eru þar inn komnir, byggja þeir þar, og verður svo þess manns hið síðara verra hinu fyrra. En það skeði er hann talaði þetta, hóf nokkur kona upp sína rödd og sagði til hans: Sæll er sá kviður er þig bar og þau brjóst er þú mylktir. En hann sagði: Hvað um það, sælir eru þeir sem heyra Guðs orð og varðveita þau. En er fólkið flykktist þar að, tók hann að segja: Kynslóð þessi er ein vond kynslóð. Hún girnist teikn, og henni gefst ekkert teikn nema teikn Jóna spámanns. Því að líka sem Jónas var teikn Niníveborgar, svo mun mannsins son verða kynslóð þessari.

Drottning suðurættar mun upp rísa á efsta dómi með mönnum þessarar kynslóðar og fordæma þá því að hún kom af yðstum takmörkum jarðar að heyra speki Salómonis, og sjáið, hér er meir en Salómon. Menn Niníveborgar munu og upp rísa á efsta dómi meður þessari kynslóð og munu hana fordæma því að þeir gjörðu iðran viður predikan Jónas, og sjáið, hér er meir en Jónas. Enginn tendrar ljósið og setji það í leyni eða undir mæliask, heldur á ljósastjakann svo að þeir sem inn ganga, sjái ljósið. Ljós þíns líkama er augað. Því ef þitt auga er einfalt, svo er þinn líkami allur skær, en ef auga þitt er strákur, þá er einninn þinn líkami myrkur. Því sjá svo til að ljós það, sem í þér er, sé eigi myrkur.

Nú ef allur líkami þinn er skær, eigi hafandi nokkurn myrkvan part, svo blífur hann allur skær og mun upplýsa þig svo sem leiftran eldingar. Og er hann var slíkt að mæla, þá bað hann nokkur faríseus að hann æti miðdagsverð hjá sér. Hann gekk inn og setti sig til borðsins. En er farísearinn sá það, undraðist hann, eð hann þvó sér eigi fyrir máltíðina. En Drottinn sagði til hans: Þér farísei, hreinsið nú hið ytra bikara og matdiska, en yðvart ið innra er fullt með rán og illsku. Þér þussar, er eigi svo að sá er gjörði ið ytra, hann gjörði einninn hið innra? En hvað um það, gefið þó ölmusu af því sem til er og sjáið, að þá er yðart hreint.

Ve yður faríseis sem tíundið myntugras og rútu og allt kálgresi og sneiðið svo hjá dómi Guðs og réttlæti. Því þetta byrjar að gjöra, en hitt eigi eftir að skilja. Ve sé yður faríseis sem elskið hin fremstu tignarsæti í samkunduhúsum og kveðjur á torgum. Ve sé yður lögspekingum, faríseis og hræsnurum því þér eruð sem hulin leiði framliðinna, yfir hverju eð menn ganga og þekkja þau eigi. Þá svaraði nokkur lögspekinga og sagði til hans: Segir þú þetta einninn til háðungar við oss? En hann sagði: Og yður lögspekingum sé vei. Því þér hlaðið á menn þeim byrðum er þeir geta eigi borið, og sjálfir þér snertið eigi þær byrðar einum fingri yðar.

Ve yður því að þér uppbyggið spámanna leiðin, en feður yðrir líflétu þá. Að sönnu þá vitni þér það og samsinnið svo verkum yðvarra feðra. Því að þeir aflífuðu þá, en þér uppbyggið leiði þeirra. Fyrir því segir spekin Guðs: Eg mun senda til þeirra spámenn og postula, og suma af þeim munu þeir deyða, en suma ofsóknum sækja svo að krefjist af þessari kynslóð blóð allra spámanna því úthellt hefir verið frá grundvallan veraldar allt frá blóði Abels og til blóðs Sakaríe, hver eð lést í milli altaris og musterisins. Að vísu segi eg yður að það mun krefjast af þessari kynslóð. Ve sé yður lögspekingum.

Því þér berið lykil viskunnar, en komið þó eigi sjálfir þar inn og hamlið þeim er þar vilja inn ganga. En þá hann hafði þvílíkt til þeirra talað, tóku lögspekingar til og farísei þunglega að þrengja að honum og vélsamlega hann að mörgu að spyrja, veitandi honum umsát og leituðu við að jaga það nokkuð af hans munni er þeir mættu hann um kilja.

← Chapter 35Chapter 37 →