Luke · Chapter 9
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 37 of 174 · about 7 min
[ breyta] En er mikill og ótölulegur lýður flykktist þar saman svo að nálega trað hver annan undir, hóf hann upp og sagði til sinna lærisveina: Í fyrstu, vaktið yður við súrdeigi faríseorum, hvað er hræsni. Því að ekkert er svo hulið að ei verði augljóst né nokkuð svo leynt að eigi vitist. Fyrir því hvað þér segið í myrkrum, það mun í ljósi heyrast, og hvað þér í svefnhúsum hvíslið í eyra, mun á ræfrum uppi predikað. En eg segi yður vinum mínum: Hræðist eigi þá sem líkamann aflífa, og eftir það fá þeir eigi meir að gjört. En eg vil sýna yður hvern þér skuluð hræðast. Hræðist þann, sem eftir það er hann hefir líflátið þá, hefir hann makt til að senda í helvíti.
Að vísu segi eg yður, þá hræðist hann. Seljast eigi fimm skógarþrestir tveimur peningum? Og einn af þeim er eigi gleymdur fyrir Guð i. Svo eru og öll höfuðhár yðar talin. Fyrir það skulu þér eigi óttast því að þér eruð dýrri en margir skógarþrestir. En eg segi yður: Hver helst hann viðurkennir mig hér fyrir mönnum, þann mun mannsins son viðurkenna fyrir englum Guðs. En hver hann afneitar mér hér fyrir mönnum, honum mun afneitað verða fyrir Guðs englum. Og hver eð talar orð í gegn Guðs syni, þá mun honum fyrirgefast, en hver hann hæðir að heilögum anda, honum skal eigi fyrirgefast.
En nær þeir draga yður inn í samkunduhús og fyrir sína yfirboðara og valdsmenn, þá verið eigi hugsjúkir um hverninn eða hverju þér skuluð svara eða hvað þér skuluð segja. Því að heilagur andi mun fræða yður á sömu stundu hvað yður byrjar að segja. En nokkur af fólkinu sagði til hans: Meistari, seg bróður mínum að hann skipti við mig arfleifð minni. En hann sagði honum: Þú maður, hver setti mig fyrir dómara eða arfskiptismann yfir yður. Og hann sagði til þeirra: Sjáið til og varið yður við allri ágirni. Því að enginn lifir þar af það hann hafi mikil auðæfi. Og hann talaði þá eina eftirlíking til þeirra og sagði: Auðigur maður nokkur var sá, hvers akur eð fært hafði frjóvan ávöxt.
Hann hugsaði þá með sér og sagði: Hvað skal eg til gjöra? Eg hefi eigi það hvar eg megi mínum ávexti í safna, og sagði: Það vil eg gjöra. Eg vil mína hlöðu niður rífa og gjöra upp aðra meiri og safna þangað öllu því er mér hefir gróið og svo mínum auðæfum. Og þá mun eg segja til sálu minnar: Sála mín, þú hefir mikinn auð saman sett til margra ára, hvíl þig nú, et og drekk, haf og allsnægtir. En Guð sagði til hans: Þú dári, á þessari nótt munu þeir þína sál af þér krefja, og hvers verður þá það er þú hefir tilreitt? Svo er með þeim er sér draga sjóð saman og er eigi í Guði ríkur.
Þá sagði hann til sinna lærisveina: Fyrir því segi eg yður: Stúrið eigi fyrir lífdögum yðar, hvað þér skuluð eta, og eigi fyrir líkama yðar, hverju hann skuli klæðast. Lífið er meira en fæðan og líkaminn meiri en fötin. Hyggið að hröfnunum. Þeir sá hvorki né uppskera, eigi hafa þeir hlöðu né kjallara, og þó fæðir Guð þá. Miklum mun meiri eru þér þó fuglunum. En hver yðar fær með sinni hugsýki aukið lengd sína alin einni? Því ef þér orkið eigi hins minnsta hvar fyrir stúri þér þá fyrir hinu öðru? Hugleiðið hverninn liljugrösin vaxa. Þau vinna eigi né spinna. En eg segi yður það Salómon í allri sinni prýði var ei svo skrýddur sem eitt af þeim.
Nú fyrst Guð skrýðir svo það gras er í dag stendur á akri og á morgun verður í baksturofn látið, miklu meir mun hann þó klæða yður, ó þér vesaltrúaðir. Þér skuluð og eigi eftir spyrja hvað þér etið eða drekkið og eigi hefja yður hátt. Því að eftir þessu öllu sækir heiðin þjóð veraldar, en faðir yðar veit vel að þér þurfið þessa við. Því leitið fyrst að Guðs ríki og hans réttlæti, og mun yður þá allt til falla. Hræðst eigi þú, vesul hjörð, því að það þókknaðist föður yðar að gefa yður ríkið. Seljið hvað þér hafið og gefið ölmusu, gjörið yður og þá sekki er eigi eldast og þann sjóð er eigi minnkar á himnum, að hverjum þjófar fá eigi komist né melur skorið.
Því hvar yðar sjóður er, þar er og yðart hjarta. Yðrar lendar sé um gyrtar og logandi ljós í höndum yðrum, verið og líkir þeim mönnum er bíða eftir sínum lánardrottni hvenær hann muni aftur koma af brullaupum svo að þá hann kemur og ber, sé strax fyrir honum upp lokið. Sælir eru þeir þjónar, hverja eð (þá er herrann kemur) finnur hann vakandi. Sannlega segi eg yður það hann mun uppstytta sig, lætur og þá til borðs sitja, gengur fyrir þeim og þjónar. Og þó ef hann komi á annarri vöku eða á hinni þriðju og finni það líka svo, sælir eru þeir þjónar. En það skulu þér vita að ef húsbóndinn vissi á hverri stundu eð þjófurinn kæmi, þá vekti hann og léti eigi grafa sitt hús.
Fyrir því verið og reiðubúnir því að mannsins sonur mun á þeirri stundu koma er þér ætlið eigi. Þá sagði Pétur til hans: Herra, segir þú þessa eftirlíking til vor eða til allra? En Drottinn sagði: Hve mikils er vert um trúan og forsjálan fyrirsjónarmann, hvern er Drottinn setur yfir sitt heimkynni, að hann gefi þeim í tíma sinn mæltan verð. Sæll er sá þjón sem hans herra finnur svo gjörandi þá eð hann kemur.
Sannlega segi eg yður það hann mun setja hann yfir allt hvað hann eignast.* En ef sá sami þjón segir í hjarta sínu: Herra minn gjörir dvöl á að koma og tekur að berja vinnumenn og ambáttir og að eta og drekka og sig drukkinn að gjöra, og þá kemur herrann þess þjóns á þeim degi er hann vonar eigi og á þeirri stundu er hann veit eigi og skiptir honum sundur og leggur honum sín laun meður ótrúuðum. En hver sá þjón, er veit síns herrans vilja og bjó sig eigi til, gjörði og eigi eftir hans vilja, hann mun mikla refsing fá. En sá hann veit eigi og gjörir það hegningar er vert, hann mun minni hirting fá.
Því að þeim sem mikið er veitt, af honum æskist mikið, og hverjum mikið verður í hendur selt, af honum heimtist mikið. Eg kom að snæra upp eld á jörðu hvað eg gjarna vilda að hann brynni nú þegar. En eg hlýt áður með skírn að skírast. Og hversu eg þrengjunst þangað til hún fullkomnast. Meini þér að eg kæmi að senda frið á jörðu? Eg segi yður: Nei, heldur sundurþykkju. Því að héðan frá munu fimm verða í einu húsi sundurþykkir, þrír í móti tveimur og tveir í móti þremur, faðirinn mun verða í móti syninum og sonurinn í móti föðurnum, móðirin í móti dótturinni og dóttirin í móti móðurinni, og móðir konu manns í móti sonarkonunni og sonarkonan í móti móðurkonu mannsins.
En hann sagði til fólksins: Hver nær [sic] þér sjáið ský upp ganga í vestri, þá segi þér jafnskjótt að regn komi. Og það sker. Og nær þér sjáið sunnanvind blása, þá segi þér hita verða. Það sker. Og þér hræsnarar, ásýnd himins og jarðar þá kunni þér að prófa, en hví prófi þér eigi þennan tíma sem nú er? Eða fyrir því dæmi þér eigi af sjálfum yður hvað réttvíst er? En nær þú gengur meður þínum sökudólg fyrir valdsmanninn, þá kosta kapps á veginum að þú losir þig frá honum, að eigi dragi hann þig nokkuð sinn fyrir dómarann, og dómarinn selji þig refsaranum, og refsarinn kasti þér svo í dýplissu. Eg segi það eigi fer þú út þaðan þar til þú borgar einninn hinn síðasta skarf.