Luke · Chapter 10
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 38 of 174 · about 4 min
[ breyta] En í þann sama tíma voru þar nokkrir við er kunngjörðu honum frá þeim í Galílea, hverra blóði Pílatus hafði blandað við þeirra fórnir. Jesús svaraði og sagði til þeirra: Meini þér að þessir Galílei væri fyrir öllum Galíleis syndugir þótt þeir þyldu þetta? Eg segi yður: Nei. Heldur ef þér gjörið eigi iðran, þá fyrirfarist þér líka allir. Eða meini þér að þeir átján, á hverja turninn í Síló á hrapaði og drap, hafi sakaðir verið framar öllum mönnum er byggja til Jerúsalem? Eg segi yður: Nei. Heldur ef þér gjörið eigi iðran, munu þér einninn allir fyrirfarast. En hann sagði þeim þessa eftirlíking: Nokkur maður var sá er fíkjutré hafði plantað í sínum víngarði.
Hann kom og leitaði ávaxtar á því og fann eigi. Þá sagði hann til víngarðsfágarans: Sjá, nú í þrjú ár hefi eg árlega komið og leitað ávaxtar af þessu fíkjutré og fundið eigi. Högg það því af. Hvar til hindrar það garðlendið? En hann svaraði og sagði til hans: Herra, lofa því að standa þetta árið þar til eg gref um það og læt að myki ef það vildi svo ávöxt færa. En ef eigi, þá högg það eftir á af. Og hann kenndi í samkunduhúsi þeirra á þvottdegi. Og sjáið, að þar var sú kona er haft hafði krankleiksanda í átján ár. Og hún var bjúg og með öngu móti þá gat hún upp litið.
En er Jesús leit hana, kallaði hann hana til sín og sagði til hennar: Þú kona, vert laus af krankdæmi þínu, -og lagði hendur yfir hana og jafnskjótt rétti hún sig upp og dýrkaði Guð. Þá svaraði yfirmaður samkunduhússins og þykktist við það Jesús læknaði á þvottdögum og sagði til lýðsins: (vi) dagar eru þeir, á hverjum eð hæfir að vinna, - því komi þér eigi á þeim að láta lækna yður? - en eigi á þvottdegi. Drottinn svaraði honum og sagði: Þú hræsnari, leysir eigi hver yðar einn á þvottdegi naut sitt og asna af bási og leiðir til vats? En skyldi þessi eigi leysast á þvottdegi, sem þó er Abrahams dóttir, af því bandi er andskotinn hafði hana fjatrað, sjá, í átján ár?
Og er hann sagði þetta, skömmuðust sín allir hans mótmælendur, og allt fólkið gladdist yfir þeim öllum dýrðarverkum er af honum gjörðust. Hann sagði þá: Hverjum er Guðs ríki líkt og hverju skal eg því samjafna? Líkt er það mustarðskorni því maður tók og varpaði í grasgarð sinn. Það spratt upp og varð mikið tré, og fuglar himins hreiðruðu sig undir þess kvistum. Og enn sagði hann: Hverju skal eg samlíkja Guðs ríki? Líkt er það súrdeigi því er kona tók og mengaði við þrjá mæla mjöls þar til að það sýrðist allt. Og hann gekk í gegnum borgir og kauptún og kenndi og gjörði sína reisu til Jerúsalem. En þar sagði nokkur til hans: Herra, meinar þú eigi að þeir sé fáir eð hjálpast?
En hann sagði til þeirra: Keppið eftir inn að ganga um hið þröngva hliðið því að margir (það segi eg yður) %sækja til þar inn að ganga og fá eigi getað. Og í frá því eð húsbóndinn er inn genginn og hefir dyrnar aftur luktar, þá taki þér til þar fyrir utan að standa og á dyrnar að hnýja svo segjandi: Herra, herra, luktu upp fyrir oss. Hann mun svara og segja til yðar: Eigi þekki eg yður eða hvaðan þér eruð. Þá munu þér hefja upp að segja: Vær höfum etið hjá þér og drukkið, og á strætum vorum kenndir þú. En hann mun þá segja: Eg segi yður það eigi kenni eg yður hvaðan þér eruð, farið frá mér allir þér illgjörðamenn.
Þar mun vera óp og tanna gnístran nær þér sjáið Abraham og Ísak og Jakob og alla spámenn í Guðs ríki, en yður út rekna. Og þeir úr austri og vestri, norðri og suðri munu koma og til borðs sitja í Guðs ríki. Og sjáið, að þeir sem voru síðastir verða fyrstir, og þeir eð voru fyrstir, verða síðastir. Á þeim sama degi gengu nokkrir af faríseis til og sögðu honum: Haf þig burt, og gakk héðan því að Heródes vill aflífa þig. Hann sagði til þeirra: Fari þér og segið þeim ref: Sjáið, að eg rek út djöfla og fullgjöri lækningar í dag og á morgun, en á þriðja degi líð eg undir lok.
Hvað fyrir það, þó byrjar mér í dag og á morgun og næsta dag þar eftir að ganga því að það fær eigi skeð að nokkur spámaður farist utan í Jerúsalem. Jerúsalem, Jerúsalem, þú sem aflífar spámennina og grýtir þá steinum er til þín verða sendir. Hversu oft hefi eg viljað saman safna sonum þínum líka sem hæna sínu hreiðri undir vængi sér, og þér hafið eigi viljað. Sjáið, yðvart hús skal yður því eyði látið verða. En eg segi það eigi munu þér mig sjá þar til það kemur er þér munuð segja: Blessaður sé sá er kemur í nafni Drottins.