Luke · Chapter 11
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 39 of 174 · about 4 min
[ breyta] Og það skeði að Jesús gekk á þvottdegi inn í hús nokkurs þess sem var yfirboðari faríseorum brauðs að neyta, þeir höfðu og vörð á honum. Og sjá, að maður nokkur, sá vatssótt hafði, var þar frammi fyrir honum. Jesús ansaði og sagði til lögspekinga og faríseis svo segjandi: Leyfist nokkuð að lækna á þvottdögum? En þeir þögðu við. Hann tók þá á honum og læknaði hann og lét burt fara, svaraði og sagði til þeirra: Hvers yðar asni eða naut sem fellur í pytt, er það eigi jafnsnart út dregið á þvottdegi? Og þeir gátu honum öngu þar til svarað.
En þessa eftirlíking sagði hann til boðsmannanna þá hann merkti hverninn þeir mátust eftir inum fremstu sætum og sagði til þeirra: Nær þú verður boðinn af nokkrum til brúðlaups, þá set þig eigi í hin æðstu sæti. Kann ske að annar eigi ærlegri en þú sé boðinn af honum og komi sá sem þér bauð og honum, segi til þín: Gef þessum rúm, -og hljótir þá með kinnroða að halda hinn yðsta sess. Heldur nær að þú verður boðinn, þá far og set þig í hið yðsta sæti svo að nær sá kemur, er þér bauð, og segi til þín: Vinur þoka þér upp betur, - og mun þér þá virðing veitt fyrir þínum sessunautum.
Því að hver sig sjálfur upphefur, hann skal niðurlægjast, og hver sig sjálfur lækkar, hann skal upp hefjast.* Hann sagði þá til hans er honum hafði boðið: Nær þú heldur miðdagsverð eður kveldmáltíð, þá skalt þú eigi bjóða vinum þínum né bræðrum, eigi frændum þínum né nágrönnum þeim sem ríkir eru að eigi bjóði þeir þér heim til sín aftur og sé þér þá endurgoldið. Heldur nær þú gjörir heimboð, þá bjóð fátækum, vönuðum, höltum og blindum, og muntu sæll verða því að þeir hafa eigi til þér aftur að lúka, en það mun þér endurgoldið verða í upprisu réttlátra. En er þetta heyrði nokkur af þeim er til borðsins sat, sagði hann til hans: Sæll er sá maður sem að etur brauð í Guðs ríki.
En hann sagði til hans: Nokkurs konar maður var sá er gjörði mikla kveldmáltíð og bauð mörgum til hennar og sendi út sinn þjón um kveldmálstímann að hann segði svo boðsmönnunum: Komið, því að allt er nú reiðubúið. En þeir tóku þá allir til hver eftir annan að afsaka sig. Hinn fyrsti sagði til hans: Búgarð keypta eg, og hefi eg því þörf að fara út og sjá hann. Eg bið þig afsaka mig. Og annar sagði: Fimm akneyti keypta eg, og fer eg nú út að reyna þau. Eg bið þig afsaka mig. Hinn þriðji sagði: Konu hefi eg festa, fyrir því má eg eigi koma. Og þjónustumaðurinn kom aftur og undirvísaði þetta sínum herra.
Þá varð húsbóndinn reiður og sagði til síns þjóns: Far snarlega út á stræti og götur borgarinnar og leið volaða, vanaða, blinda og halta hingað inn. Og þjóninn sagði: Herra, það er gjört hvað þú skipaðir, og þó er enn meira rúm. Og herrann sagði til þjónsins: Far þú út á þjóðbrautir og um túngarða og nauðga þeim hér inn að koma svo mitt hús verði fullt. En eg segi yður það að enginn þeirra manna, sem boðnir voru, munu smakka mína kveldmáltíð.* En margt fólk gekk með honum. Og hann sneri sér við og sagði til þeirra: Ef nokkur kemur til mín og hafnar eigi föður sínum og móður, konu og börnum, bræðrum og systrum og þar til sínu eigin lífi, hann fær eigi minn lærisveinn verið.
Og hver hann dregur eigi sinn kross og fylgir mér eftir, sá getur eigi minn lærisveinn verið. Því hver yðar sem turn vill upp byggja, situr hann eigi áður og saman reiknar kostnaðinn hvað þarflegt er og hvort hann hefir til nægta? Svo að eigi eftir á, er hann hefir grundvöllinn lagt, geti hann eigi fullgjört hann, og allir þeir það sjá, taka að dára hann og segja: Þessi maður tók að byggja og gat eigi við lokið. Eða hver konungur gengur út að halda orrustu gegn öðrum konungi, situr hann eigi áður og hugsar um með sér hvort hann getur með (tíu) þúsundir runnið í móti honum er með (xx) þúsundir kemur til hans?
En ef eigi, þá sendir hann boðskap út, þá þegar hinn er þó fjarlægur, og biður hann þess sem friðsamlegt er. Svo og líka sérhver yðar, sem eigi afsegir öllu því hann eignast, fær eigi minn lærisveinn verið. Saltið er gott, en ef saltið dofnar, hverju kryddi þér þá? Því að það er þá hvorki á túnjörð né í taðhauga þarflegt, heldur verður því út varpað. Hver eyru hefir að heyra, hann heyri.