The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 40

Luke · Chapter 12

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 40 of 174 · about 3 min

← Chapter 39Chapter 41 →

[ breyta] En allir tollheimtumenn og bersyndugir nálægðust hann að heyra honum, og farísei og skriftlærðir mögluðu og sögðu: Þessi meðtekur synduga menn og etur meður þeim. En hann sagði þessa eftirlíking til þeirra og sagði: Hver er sá í bland yður sem hefir hundrað sauða og ef hann týnir einum af þeim, forlætur hann eigi þá níu og níutigi í eyðimörku og fer eftir þeim er týndist þangað til hann finnur hann? Og nær hann hefir hann fundið, leggur hann hann upp með fagnaði sér á herðar, kemur heim og saman kallar vini og nágranna og segir til þeirra: Samgleðjist með mér því að eg hefi minn sauð aftur fundið sem tapaður var.

Eg segi yður að líka svo mun fögnuður vera á himnum yfir einum syndugum, þeim er iðran gjörir, meir en yfir þeim níu og níutigi réttlátum er eigi þurfa yfirbótar við. Eða hver sú kona eð hefir tíu peninga og ef hún týnir einum, kveikir hún eigi ljós og sópar húsið og leitar vandlega þar til hún finnur hann? Og nær hún hefir fundið hann, saman kallar hún vinkonur sínar og grannkonur, segir: Samgleðjist mér því að eg hefi minn pening aftur fundið, hverjum eg hafða týnt. Líka svo segi eg yður að fögnuður mun vera fyrir englum Guðs yfir einum syndugum, þeim yfirbót gjörir.* Enn sagði hann: Nokkur maður var sá er hafði tvo syni.

Og hinn yngri af þeim sagði til föður síns: Faðir, gef mér þá deild af góssinu sem mér ber. Og hann skipti meður þeim góssinu. Og innan fárra daga þá dró hinn yngri sonurinn allt til saman og reisti síðan langt burt í fjarlægt ríki og fortærði þar sínu góssi í eyðslulegum lifnaði. Og eftir á, er hann hafði öllu sóað, gjörðist megnt hungur í því sama ríki svo hann tók vesöld að þola. Hann fór og hélt til hjá einum burgeis þess ríkis. Og sá sendi hann út á sinn bústað að hann gætti þar svína. Hann fýsti og að seðja sinn maga af drafi því er svínin átu, og enginn gaf honum.

En hann komst þá við og sagði: Hve margir leigumenn þá eru í míns föðurs húsi, þeir eð hafa nægð a[f] brauðum, en eg ferst í hungri þessu. Því skal eg upp standa og fara til föður míns og segja til hans: Faðir, eg syndgaði í himininn og fyrir þér. Því er eg eigi verður að kallast þinn sonur. Gjör mig því sem einn af þínum leiguliðum. Hann reis þá upp og kom til föður síns. Og er hann var enn langt í burt þaðan, leit hann faðir hans og sá aumur á honum, hljóp að og féll um háls honum og kyssti hann. En sonurinn sagði til hans: Faðir, eg syndgaði í himininn og fyrir þér. Af því em eg nú eigi verðugur að kallast sonur þinn.

En faðirinn sagði til þjóna sinna: Berið strax hingað hið æðsta klæði og færið hann í og gefið honum hring á sína hönd og skó á hans fætur. Sækið alinkálf og slátrið, og neytum svo og verum kátir. Því að þessi minn sonur var dauður og endurlifnaði. Hann týndist og er nú fundinn. Og þeir tóku að gleðjast. En hans hinn eldri sonur var á akri. Og er hann kom og nálgaðist húsið, heyrði hann kveðskap og danslæti og kallaði einn af þjónustumönnunum til sín og spurði hvað þetta væri. Sá sagði honum: Bróðir þinn er kominn, og slátraði faðir þinn öldum kálfi það hann fékk hann heilan aftur. En hann þykktist við og vildi eigi inn ganga. Þá gekk faðir hans út og bauð honum.

En hann svaraði og sagði til föður síns: Sjá, í svo mörg ár þjóna eg þér og aldri enn yfirtroðið þín boðorð, og þú gaft mér enn aldri kið svo eg mætti meður mínum vinum glaður vera. En nú eð þessi þinn sonur kom, hver út hafði svælt sínu góssi meður portkonum, þá slátraðir þú honum alinkálf. En hann sagði honum: Þú ert jafnan hjá mér, og allt hvað mitt er, þá er þitt. Því ættir þú nú að vera kátur og góðsinnaður því þessi þinn bróðir var dauður og endurlifnaði, hann týndist og er aftur fundinn.*

← Chapter 39Chapter 41 →