Matthew · Chapter 5
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 5 of 174 · about 9 min
[ breyta] En er Jesús sá fólkið, gekk hann upp á fjallið. Og þá hann setti sig niður, gengu hans lærisveinar til hans. Hann lauk sinn munn upp og tók að kenna þeim og sagði: Sælir eru þeir sem andlega eru volaðir því að þeirra er himnaríki. Sælir eru þeir sem harma því að þeir munu huggaðir verða. Sælir eru hógværir því að þeir munu jarðríki erfa. Sælir eru þeir sem hungra og þyrsta eftir réttlætinu því að þeir skulu saddir verða. Sælir eru miskunnsamir því að þeir munu miskunn hljóta. Sælir eru hreinhjartaðir því að þeir munu Guð sjá. Sælir eru þeir sem friðinn gjöra því að þeir munu Guðs synir kallaðir verða.
Sælir eru þeir sem fyrir réttlætisins sakir ofsóktir verða því að þeirra er himnaríki. Sælir eru þér nær eð lýðurinn formælir yður og ofsókn veitir og talar í gegn yður alla vonsku, fyrir mínar sakir þá ljúgandi. Fagni þér og verið glaðir því að yðar verðkaup eru mikil á himnum. Því að svo hafa þeir ofsókt spámennina þá er fyrir yður voru.* Þér eruð salt jarðar. Nú ef saltið deyfist, í hverju verður þá saltað? Þá dugir það til einskis meir nema að það verður út snarað svo það sé fóttroðið af mönnum. Þér eruð ljós veraldar. Sú borg, sem á fjallinu er sett, fær eigi fólgist.
Og eigi tendra þeir ljósið og setji það undir mæliask, heldur yfir ljóshaldinn svo að það lýsi öllum þeim sem í húsinu eru. Líka skal yðvart ljós lýsa fyrir mönnum svo að þeir sjái yðar góðverk og dýrki föður yðvarn á himnum. Þér skuluð eigi meina að eg sé kominn lögmálið eður spámennina upp að leysa. Eg em eigi kominn að leysa, heldur upp að fylla. Því að eg segi yður fyrir sann: Þangað til himinn og jörð forgengur, mun eigi hinn minnsti bókstafur eður titil af lögmálinu forganga og þar til að allt þetta skeður.
Því hver hann uppleysir eitt af þessum minnstu boðorðum og kennir það lýðnum svo, sá mun kallast minnstur í himnaríki, en hver það gjörir og kennir, hann mun mikill kallast í himnaríki. Því að eg segi yður: Nema svo sé að yðvart réttlæti sé betra en hinna skriftlærðu og faríseis, þá munu þér eigi inn ganga í himnaríki. Þér hafið heyrt hvað sagt er til inna gömlu: Þú skalt eigi mann vega. En hver eð mann vegur, hann verður dóms sekur, en eg segi yður: Hver eð reiðist bróður sínum, að hann verður dóms sekur. En hver sem til bróður síns segir: %Racha, - hann verður ráðs sekur, en hver eð segir: Þú afglapi, - hann verður sekur helvítis elds.
Fyrir því, nær þú opprar þína gáfu á altarið og þér kemur þar til hugar það bróðir þinn hafi nokkuð á móti þér, þá láttu þar þína gáfu fyrir altarinu, og gakk áður að sætta þig við bróður þinn, og kom þá að oppra þína gáfu.* Vertu snarlega samþykkur þínum mótstöðumanni á meðan þú ert enn á vegi með honum svo að eigi selji þig þinn mótstöðumaður dómaranum og dómarinn selji þig þénaranum og verðir þú í dýplissu kastaður. Að sönnu segi eg þér að þú munt eigi þaðan út fara þar til þú borgar hinn síðasta pening. Þér hafið og heyrt, það sagt er til hinna gömlu: Þú skalt eigi hórdóm drýgja.
En eg segi yður að hver hann lítur konu til að girnast hennar, sá hefir þegar drýgt hór með henni í sínu hjarta. Því ef þitt hægra auga hneykslar þig, þá %kipp því út, og rek það frá þér. Því að skárra er þér að einn þinna lima farist, heldur en allur þinn líkami kastist í helvískan eld. Og ef þín hægra hönd hún hneykslar þig, þá sníð hana af og rek frá þér. Því að skárra er þér að einn þinna lima tortýnist en að allur líkami þinn fari í helvískan eld. Svo er og enn sagt að hver hann skilur sig við sína eiginkonu, sá skuli gefa henni skilnaðarskrá. En eg segi yður: Hver hann forlætur sína eiginkonu (að undantekinni hórunar sök), sá gjörir það að hún verður hórdómskona.
Og hver eð fastnar þá sem frá manni er skilin, sá drýgir hór. Þér hafið enn framar heyrt hvað sagt er til hinna gömlu að eigi skulir þú rangt sverja, og þú skalt Guði þín særi lúka. En eg segi yður að þér skuluð öldungis ekki sverja, hvorki við himin því að hann er Guðs sæti, eigi heldur við jörð því að hún er skör hans fóta, eigi við Jerúsalem því að hún er borg hins mikla konungs. Þú skalt og eigi sverja við höfuð þitt því að þú formátt eigi að gjöra eitt hár hvítt eður svart. Því sé yðar ræða já, já; nei, nei. En hvað fram yfir það er, þá er af hinu vonda. Þér hafið og heyrt hvað sagt er: Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn.
En eg segi yður að þér skuluð eigi brjótast í gegn illu, heldur ef nokkur slær þig á þína hægri kinn, þá bjóð honum hina aðra. Og þeim sem við þig vill lög þreyta og þinn kyrtil af þér hafa, þá lát honum og þinn möttul lausan. Og hver þig neyðir um mílu eina, þá gakk með honum og tvær aðrar. Gef og þeim er þig biður, og vert eigi afundinn þeim er af þér vill lán taka. Þér hafið heyrt að sagt er: Elska skaltu náunga þinn og óvin þinn að hatri hafa.
En eg segi yður: Elski þér óvini yðra, blessið þá er yður bölva, gjörið þeim gott sem yður hata, og biðjið fyrir þeim er yður lasta og ofsókn veita svo að þér séuð synir föðurs yðvars þess á himnum er, hver sína sól lætur upp ganga yfir vonda og yfir góða og rigna lætur yfir réttláta og rangláta. Því ef þér elskið þá sem yður elska, hvert verðkaup hafi þér fyrir það? Gjöra það eigi líka tollheimtumenn? Og þó þér látið kært aðeins við bræður yðra, hvað gjöri þér þeim meira? Gjöra þetta og eigi líka hinir heiðnu? Fyrir því verið algjörðir svo sem yðar himneskur faðir er algjörður.
Sétti kapítuli [ breyta] Gætið að, það eigi gjöri þér yðrar ölmusur fyrir mönnum svo að þér sjáist af þeim, annars hafi þér ekkert verðkaup hjá yðrum föður sem á himnum er. Því nær þú gefur ölmusu, skalt þú eigi lúður þeyta láta fyrir þér svo sem hræsnarar gjöra í ráðhúsum og á strætum svo að þeir heiðrist af mönnum. Sannlega segi eg yður að þeir hafa sín laun út tekin. En nær þú gefur ölmusu, þá lát þína vinstri hönd eigi vita hvað hin hægri gjörir svo að þín ölmusa sé í leyni og faðir þinn sá er í leynum sér, gjaldi þér opinskárt aftur.
Og nær þú biður, skalt þú eigi vera svo sem hræsnarar, hverjum kært er að standa og biðjast fyrir í samkunduhúsum og á gatnahornum svo að þeir sjáist af mönnum. Sannlega segi eg yður að þeir hafa sín laun út tekin. En nær þú biðst fyrir, gakk inn í þinn svefnkofa, og að luktum þínum dyrum bið þú föður þinn sem í leynum er. Og faðir þinn, sá í leyni sér, mun þér það opinskárlega aftur gjalda. Og nær þér biðjið, skulu þér eigi fjölmálugir vera svo sem heiðingjar gjöra. Því að þeir meina að af sinni fjölmælgi munu þeir heyrðir verða. Fyrir það skulu þér eigi þeim líkjast. Því að faðir yðar veit hvers yður er þörf áður en þér biðjið hann. Af því skulu þér svo biðja: Faðir vor, sá þú ert á himnum.
Helgist nafn þitt, til komi þitt ríki, verði þinn vilji svo á jörðu sem á himni. Gef oss í dag vort daglegt brauð og fyrirlát oss vorar skuldir svo sem vér fyrirlátum vorum skuldunautum. Og inn leið oss eigi í freistni, heldur frelsa þú oss af illu. Því að þitt er ríkið, máttur og dýrð um aldir alda, amen. Því að ef þér fyrirlátið mönnum sínar afgjörðir, þá mun yðar himneskur faðir fyrirláta yður og yðar brot. En ef þér fyrirlátið eigi mönnum sínar misgjörðir, þá mun yðar faðir og eigi fyrirgefa yður yðrar syndir. Nær þér fastið, skulu þér eigi vera svo sem kámleitir hræsnarar. Því að þeir syrta sína ásjánu svo að skíni fyrir mönnum það þeir fasti.
Sannlega segi eg yður að þeir hafa út tekið sín laun. En nær þú fastar, smyr höfuð þitt og þvo þitt andlit svo að eigi skíni fyrir mönnum það þú fastir, heldur fyrir föður þínum sem er í leyni. Og faðir þinn, sá er í leynum sér, hann mun þér það opinskárt aftur gjalda. Eigi skulu þér fjársjóðum safna á jörðu, hvar þeim má mölur og ryð granda og hvar eð þjófar megu eftir grafa og stela, heldur safnið yður fjársjóðum á himni, hvar eð hvorki má mölur né ryð granda og hvar þjófar fá eigi stolið né eftir grafið. Því að hvar yðar sjóður er, þar er yðvart hjarta.* Ljós þíns líkama er þitt auga; og ef auga þitt er einfalt, þá er allur líkami þinn skær.
En ef auga þitt er skálkur, þá er allur líkami þinn myrkur. Því ef það ljós, sem að er í þér, er myrkur, hve mikil munu þá myrkrin sjálf? Enginn kann tveimur herrum í senn að þjóna. Annaðhvort hann afrækir þann eina eða elskar hinn annan, elligar hann þýðist þann eina og forlítur hinn annan. Þér getið eigi Guði þjónað og hinum Mammon. Fyrir því segi eg yður: Verið eigi hryggvir fyrir yðru lífi hvað þér skuluð eta eður drekka og eigi fyrir yðrum líkama hverju hann skal klæðast. Er eigi lífið meir en fæðan og líkaminn meir en klæðin? Sjáið fugla himins, þeir eð hvorki sá né upp skera, og eigi safna þeir í kornhlöður, og yðar himneskur faðir hann fæðir þá. Eru þér eigi miklu framar en þeir?
Eða hver yðar getur aukið með sinni áhyggju alin eina að lengd sinni? Og hvar fyrir eru þér hugsjúkir fyrir klæðnaðinum? Hyggið að akursins liljugrösum, hverninn þau vaxa. Þau vinna hvorki né spinna. En eg segi yður það Salómon í allri sinni dýrð var eigi svo skrýddur svo sem eitt af þeim. Því að ef Guð skrýðir svo grasið það í dag er á akri og á morgun verður í ofn kastað, skyldi hann eigi miklu framar við yður gjöra, ó þér lítiltrúaðir? Fyrir því skulu þér ekki hryggvir vera og segja: Hvað munu vær eta? Eða: Hvað munu vér drekka? Eða: Hverju munu vér klæðast? Því að eftir þessu öllu sækir heiðin þjóð, og yðar himneskur faðir veit að þér þurfið alls þessa við.
Fyrir því leitið fyrst Guðs ríkis og hans réttlætis, og mun yður allt þetta til leggjast. Og fyrir því skulu þér eigi önn ala annars morguns af því að morgundagur mun kvíða fyrir sjálfum sér bera. Hverjum degi nægir sín óværð.