The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 41

Luke · Chapter 13

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 41 of 174 · about 7 min

← Chapter 40Chapter 42 →

[ breyta] En hann sagði til sinna lærisveina: Auðigur maður nokkur var sá sem sér hafði ráðsmann, og sá var rægður við hann sem hefði hann fargað hans góssi, og kallaði hann til sín og sagði til hans: Hverninn heyri eg þetta af þér? Gjör reikning þinnar ráðsmennsku því að þú mátt eigi héðan af ráðsmennsku hafa. En ráðsmaðurinn sagði með sjálfum sér: Hvað skal eg til gjöra þá minn herra sviptir mig ráðsmennskunni? Eigi dugi eg að grafa, en eg skömmunst að biðja. Eg veit hvað eg skal gjöra, því nær að eg verð af settur ráðsmennskunni, það þeir meðtaki mig í sín hús. Hann saman kallaði og líka alla skuldamenn síns herra og sagði til hins fyrsta: Hversu mikið ertu skyldugur mínum herra?

Hann sagði: Hundrað tunnur viðsmjörs. Hann sagði þá til hans: Tak þitt bréf, set þig og skrifa strax fimmtigi. Eftir það sagði hann til annars: En ertu mikið skuldugur? Sá sagði: Hundrað trog hveitis. Þá sagði hann til hans: Tak þitt bréf og skrifa fimmtigi. Og herrann lofaði þann rangláta ráðsmann það hann hafði svo forsjálega gjört. Því að synir þessarar veraldar eru kænari sonum ljóssins í sinni kynslóð. Og eg segi yður: Gjörið yðar vini af hinum rangferðuga %Mammon svo nær eð yður þrotar að þeir meðtaki yður í eilífar tjaldbúðir.* Hver trúr er í minnstu, sá er og trúr í miklu, og hver rangsnúinn er í litlu, hann er og rangferðugur í miklu.

Því ef þér eruð eigi trúir í inum rangferðuga Mammon, hver trúir yður þá til þess sem sannlegt er? Og ef þér voruð eigi trúir í annarlegu, hver mun gefa yður þá hvað yðart er? Enginn þjón getur tveimur herrum senn þjónað. Því annað hvort hafnar hann þeim eina og elskar hinn annan eða þýðist þann og forsmár hinn annan. Þér getið eigi Guði þjónað og svo þeim Mammon. En þeir farísei heyrðu allt þetta, sem ágjarnir voru, og dáruðu hann. Þá sagði hann til þeirra: Þér eruð þeir, hverjir sjálfa sig réttlæta fyrir mönnum, en Guð þekkir hjörtu yðar. Því að hvað hátt er hjá mönnum, það er svívirðulegt fyrir Guði. Lögmálið og profetarnir spáðu allt til Jóhannem.

En upp frá því boðast Guðs ríki, og sumir hverjir menn gjöra því ofurefli. Því léttfelldara er að himinn og jörð forgangi en einn titill af lögunum falli. Hver sína eiginkonu forlætur og giftist annarri, sá drýgir hór, og hver eð giftist þeirri sem frá manni er skilin, hann drýgir hór. Nokkur mann ríkur var þar sá er klæddist með pell og purpura og át daglega skínandi krásir. Og þar var þurfamaður sá sem Lasarus var að nafni, hver eð úti lá fyrir hans dyrum fullur kauna. Og hann fýstist að seðja sig af þeim molum sem féllu af borði hins ríka, og enginn gaf honum nokkuð, heldur komu hundar og sleiktu hans kýli. En svo varð að hinn volaði dó og var borinn af englum í faðm Abrahams.

Hinn ríki andaðist líka og var jarðaður. Og sem hann var í helvíti og kvölunum, þá hóf hann upp sín augu og leit Abraham langt burt og Lasarum í hans faðmi. Þá hrópaði hann og sagði: Abraham faðir, miskunna mér og send Lasarum að hann drepi hinu fremsta síns fingurs í vatn og kæli tungu mína því að eg kvelst í þessum loga. Og Abraham sagði til hans: Hugleittu sonur að þú meðtókst þinn góða í lífi þínu, Lasarus þar í mót sitt hið vonda. Því hlýtur hann nú að huggast, en þú að kveljast. Og fram yfir allt þetta er í milli vor og yðar mikið hvelfi staðfest svo að þeir sem vilja héðan fara til yðar, geta það eigi og þeir eigi þaðan frá yður upp til vor farið.

Þá sagði hann: Þá bið eg þig faðir að þú send hann í míns föðurs hús því að eg hefi fimm bræður að hann gefi þeim vitneskju af svo að eigi komi þeir í þennan kvalastað. Abraham sagði til hans: Þeir hafa Moysen og spámennina, heyri þeir þeim. En hann sagði: Nei, Abraham faðir, heldur ef nokkur framliðinna færi til þeirra, þá mundi þeir iðran gjöra. En hann sagði honum: Ef þeir heyra eigi Moyses og spámönnunum, þá munu þeir og eigi heldur trúa þótt nokkur framliðinna rísi upp.* Seytjándi kapítuli [ breyta] En hann sagði til sinna lærisveina: Ómögulegt er að þar skyldi eigi koma hneykslanir, en ve þeim, fyrir hvern þær koma.

Þarfara væri honum það kvarnarsteinn hengdist við háls honum og væri í sjó kastað en það að hann hneykti einum af þessum vesalingum. Vaktið yður. Ef bróðir þinn brýtur við þig, þá átel hann, og ef hann iðrast, þá fyrirgef honum það. Og þó hann brjóti (vii) sinnum á degi við þig og snúist (vii) sinnum aftur á degi til þín og segi: Það iðrar mig, þá fyrirgef honum það. Og postularnir sögðu til Drottins: Auk þú oss trú. En Drottinn sagði: Ef þér hefðuð trú sem annað mustarðskorn og segðuð þessu aldintré: Uppræt þig og rótset þig um í sjónum aftur, og mundi það yður hlýða.

En hver yðar sem hefir þann þjón er plægir og fénað hirðir, nær eð hann kemur heim af akri, að hann segi honum þá: Far strax og set þig til borðs, er það eigi svo að hann segi til hans: Bú til það eg haldi kveldverð og stytt þig upp og þjóna mér þar til að eg hefi etið og drukkið, og eftir á þá skaltu eta og drekka. Þakkar hann nokkuð þeim þjón þó hann gjörði hvað honum var boðið? Eg meina: Nei. Svo og þér líka nær þér hafið allt það gjört hvað yður var boðið, þá segið: Ónýtir þjónar eru vér, hvað vær áttum með skyldu að gjöra, það gjörðu vér. Það skeði og þá hann fór til Jerúsalem að hann dró mitt í gegnum Samaríam og Galíleam.

Og er hann gekk inn í nokkurt kauptún, mættu honum tíu líkþráir menn, hverjir eð stóðu langt frá, hófu upp sína raust og sögðu: Jesú, góði meistari, miskunna oss. Og er hann sá þá, sagði hann til þeirra: Fari þér og sýnið yður prestunum. Og það skeði er þeir gengu þaðan að þeir urðu hreinir. En einn af þeim, nær hann sá það hann var hreinn vorðinn, sneri hann aftur og lofaði Guð með hárri raust og féll fram á sína ásjónu fyrir fætur honum og þakkaði honum. Og þessi var samverskur. En Jesús svaraði og sagði: Voru eigi tíu hreinsaðir? En hvar eru hinir (ix)? Fundust öngvir aðrir þeir aftur sneru og gæfi Guði dýrð nema þessi útlendingur? Og hann sagði til hans: Statt upp og far héðan.

Þín trúa gjörði þig hólpinn.* En er hann varð að spurður af faríseis hvenær eð Guðs ríki kæmi, svaraði hann og sagði: Guðs ríki kemur eigi með varðveitingu. Þar mun og eigi segjast: Sé, hér eða sé, þar er það, því sjáið, að Guðs ríki er innan í yður. Og enn sagði hann til sinna lærisveina: Þær stundir koma það þér munuð girnast að sjá einn dag mannsins sonar og munuð hann eigi sjá. Og þeir munu segja til yðar: Sjá hér, sjá þar. Þá gangið eigi þangað og eigi heldur eftir fylgið. Því að svo sem elding af himni leiftrar og lýsir yfir allt hvað undir himninum er, líka svo mun mannsins sonur vera á sínum degi. En honum byrjar fyrst margt að þola og hraktur vera af þessari kynslóð.

Og svo sem það skeði á dögum Nóa, líka svo mun það ske á dögum mannsins sonar. Þeir átu og drukku, þeir kvæntust og létu sig kvæna allt til þess dags er Nói gekk í örkina og flóðið kom og tortýndi þeim öllum. Líka einninn skeði á dögum Lots: Þeir átu og drukku, þeir keyptu og seldu, þeir plöntuðu og uppbyggðu. En þann dag er Lot fór út af Sódóma rigndi ofan eldi og brennisteini af himni og fyrirfór þeim öllum. Eftir slíkum hætti mun sá dagur ske er mannsins sonur mun opinberast. Hver hann verður í þann sama tíma í ræfri staddur og sé hans búgagn í húsinu, þá stígi hann ei ofan það burt að hafa. Svo og einninn sá hann er á akri, þá snúi hann eigi aftur eftir því sem á baki honum er.

Minnist þér á konu Lots. Hver helst sem eftir sækir sína önd að forvara, sá fyrirfer henni, og hver helst hann týnir henni, sá býr hana til lífs. Eg segi yður að á þeirri nótt munu tveir verða á einni sæng, mun einn meðtekinn og annar forlátinn. Og tvær munu mala tilsaman, mun ein meðtekin og önnur forlátin. Þeir svöruðu og sögðu til hans: Hvar þá, herra? En hann sagði til þeirra: Hvar helst eð hræið er, þangað safnast og ernirnir.

← Chapter 40Chapter 42 →