The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 42

Luke · Chapter 14

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 42 of 174 · about 4 min

← Chapter 41Chapter 43 →

[ breyta] En hann sagði eftirlíking til þeirra, hverninn vér skyldum jafnan biðja og eigi þreytast, og sagði: Sá dómari var í nokkri borg sem eigi óttaðist Guð og eigi skeytti um neinn. En ekkja nokkur var þar í sömu borg, og hún kom til hans og sagði: Leys mig af mínum mótstöðumanni. Og um langan tíma vildi hann eigi. En eftir á sagði hann með sjálfum sér: Þó eg óttust eigi Guð né skeyti um öngvan, þó fyrir það að þessi ekkja gjörir mér ónáð mikla, þá vil eg leysa hana svo að hún komi eigi að síðustu og ofþreyti mig. Þá sagði Drottinn: Heyri þér hvað sá hinn rangláti dómari segir?

Skyldi Guð nú eigi gjöra frelsan sinna útvaldra, þeirra sem nótt og dag til hans kalla, og þolinmæði yfir þeim hafa? En eg segi yður það hann mun bráðlega gjöra þeirra frelsan. En þá nær mannsins son kemur (meinar þú) að hann muni trú finna á jörðu? En hann sagði til nokkurra þeirra sem trúðu sig sjálfa réttláta vera og forsmáðu aðra þessa eftirlíking: Tveir menn þá gengu upp í musterið að biðjast fyrir. Einn var faríseus, en annar tollheimtumaður. Farísearinn stóð og baðst þannig fyrir með sjálfum sér: Guð, eg þakka þér að eg em eigi svo sem aðrir menn, ræningjar, óréttferðugir, hórdómsmenn eða svo sem þessi tollheimtumaður. Eg fasta tvisvar í viku og gef tíundir af öllu því eg á.

Og tollheimtumaðurinn stóð langt í frá og vildi eigi upp hefja sín augu til himins, heldur barði hann á sitt brjóst og sagði: Guð, vertu mér syndugum líknsamur. Eg segi yður fyrir sann að þessi fór meir réttlættur í sitt hús en hinn því hver sig sjálfur upphefur, hann mun niðurlægjast, og hver sjálfan sig niðurlægir, hann mun upphafinn verða.* Þeir færðu þá til hans ungbörn að hann tæki á þeim. En er það sáu hans lærisveinar, ávítuðu þeir þá. En Jesús kallaði þau til sín og sagði: Leyfið börnunum til mín að koma og bannið þeim eigi því að þvílíkra er Guðs ríki. Sannlega segi eg yður: Hver hann meðtekur eigi Guðs ríki sem ungbarn, hann mun eigi inn ganga í það.

Og höfðingi nokkur spurði hann að og sagði: Góði meistari, hvað skal eg gjöra svo að eg eignist eilíft líf? En Jesús sagði til hans: Hvað kallar þú mig góðan? Enginn er góður nema Guð einn. Boðorðin veist þú, að eigi skulir þú mann vega, eigi hórdóm drýgja, eigi þjófnað fremja, ekkert ljúgvitni bera, heiðra skalt þú föður þinn og móður. En hann sagði: Allt þetta hefi eg haldið frá barnæsku minni. Þá Jesús heyrði það, sagði hann til hans: Eitt brestur þig enn: Sel allt hvað þú hefir og gef það fátækum, og munt þú þá hafa sjóð á himni. Og kom og fylg mér eftir. Þá hann heyrði það, varð hann hryggur af því hann var mjög auðigur.

En er Jesús sá hann hryggvan orðinn, sagði hann: Hversu torvelt er þeim inn að ganga í Guðs ríki sem peninga hafa. Því að hægra er úlfbaldanum að ganga í gegnum nálarauga en ríkum manni inn að ganga í Guðs ríki. Þá sögðu þeir sem til heyrðu: Hver fær þá hjálpast? En hann sagði: Hvað ómáttugt er fyrir mönnum, það er mögulegt fyrir Guði. Þá sagði Pétur: Sjáðu, vær forlétum allt og fylgjum þér eftir. En hann sagði til þeirra: Sannlega segi eg yður: Enginn er sá, hver sitt heimili eður foreldra eða bræður, konu eður börn forlætur vegna Guðs ríkis, að hann meðtaki eigi miklu fleira aftur á þessum tíma og í öðrum heimi eilíft líf.

En Jesús tók þá tólf til sín og sagði til þeirra: Sjáið, að vér förum nú upp til Jerúsalem, og það mun allt fullkomnað verða, hvað skrifað er fyrir spámennina af mannsins syni. Því að hann mun framseldur verða heiðingjum og hann mun hleginn, spýttur og spéaður verða. Og þeir munu hann húðfletta og lífláta, og eftir það á hinum þriðja degi mun hann upp aftur rísa. Og þeir forstóðu ekkert af þessum orðum því að þau voru hulin fyrir þeim, og eigi vissu þeir hvað þau höfðu að segja. En það skeði þá hann tók að nálgast Jeríkó að nokkur mann blindur sat við veginn og bað ölmusu. Og er hann heyrði að fólkið gekk þar fram hjá, spurði hann að hvað það væri.

Þeir sögðu honum þá að Jesús af Nasaret gengi þar hjá. Þá kallaði hann og sagði: Jesús, sonur Davíðs, miskunna þú mér. En þeir sem undan gengu, höstuðu á hann að hann þegði. Hann kallaði því meir og sagði: Sonur Davíðs, miskunna þú mér. En Jesús stóð kyrr og bauð þeim að leiða hann til sín. Og er hann var kominn hart nær honum, tók hann að spyrja hann að: Hvað viltu eg gjöri þér? Hann sagði: Herra, það eg mætti sjá. Jesús sagði til hans: Vert skyggn. Þín trúa gjörði þig hólpinn. Og jafnsnart fékk hann sýnina, fylgdi honum og eftir, vegsamandi Guð. Og allt það fólk er þetta sá, gaf Guði lof.*

← Chapter 41Chapter 43 →