The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 43

Luke · Chapter 15

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 43 of 174 · about 30 min

← Chapter 42Chapter 44 →

[ breyta] Hann gekk og inn og reisti í gegnum Jeríkó. Og sjáið, að maður sá er Sakkeus var að nafni, hver eð var foringi tollheimtumanna og sjálfur hann auðigur, og hann girntist að sjá Jesúm hver hann væri og gat eigi fyrir fólkinu því að hann var lítill vexti. Hann hljóp þá fram undan og klifraði upp í nokkurt aldintré svo að hann sæi hann því þar átti hann fram um að fara. Og sem Jesús kom að þeim sama stað, leit hann upp og sá hann og sagði til hans: Sakkee, stíg þú með skyndingi ofan því að í dag byrjar mér að blífa í þínu húsi. Og hann sté skyndilega ofan og tók við honum fagnandi. Og er þeir sáu það, mögluðu þeir allir það hann skyldi herbergja sig hjá bersyndugum manni.

En Sakkeus stóð og sagði til Jesú: Sjáðu, herra, helftina minna eigna gef eg fátækum og ef eg hefi nokkurn tælt, þá gef eg ferfalt aftur. Jesús sagði til hans: Í dag þá veittist þessu húsi heilsa með því þó að hann er Abrahams sonur. Því að mannsins sonur er kominn eftir að leita og að frelsa hvað fortapað er.* Að þeim enn áheyröndum jók hann við og sagði þessa eftirlíking af því að hann var hart nærri Jerúsalem og það þeir ætluðu að Guðs ríki mundi þá strax opinbert verða og sagði: Nokkur eðluborinn mann ferðaðist í fjarlægt land að hann aflaði sér ríkis og kæmi svo aftur. En þessi kallaði á (tíu) sína þjóna og fékk þeim (x) pund og sagði til þeirra: Sýslið þar til að eg kem aftur.

En hans borgarmenn hötuðu hann og sendu honum boð og létu svo segja: Vær viljum eigi þennan ríkja láta yfir oss. Það skeði og þá hann kom aftur sem hann hafði ríkið undir sig tekið, skipaði hann að kalla á þá sömu þjóna, hverjum hann hafði féið fengið svo að hann vissi hva[ð] mikið hver hefði sýslað. Hinn fyrsti kom og sagði: Herra, þitt pund hefir afrekað tíu pund. Hann sagði þá til hans: Æ hei, þú hinn góði þjón, af því þú vart trúr í litlu, skalt þú vald hafa yfir tíu borgum. Hinn annar kom og sagði: Herra, þitt pund hefir saman dregið fimm pund. Til hans sagði hann: Og þú skalt vera yfir fimm borgum.

Og hinn þriðji kom og sagði: Herra, sjá, þar er þitt pund, hvert að eg hefi í sveitadúki fólgið. Eg hræddunst þig því að þú ert maður ógurlegur, tekur það upp, hvað þú hefir eigi niður lagt, og uppsker það, hvað þú sáðir eigi. Hann sagði þá til hans: Af þínum munni dæmi eg þig, hinn vondi þjón. Vissir þú það að eg er maður ógurlegur, takandi það, hvað eg lagði eigi niður, uppskerandi það, hvað eg sáði eigi. Hvar fyrir gaft þú eigi minn pening í mangarans borð að nær eg kæmi, hefði eg það með okri krafið? Og hann sagði til þeirra sem hjá stóðu: Takið það pund frá honum og fáið það þeim sem tíu pund hefir. Þeir sögðu honum: Herra, tíu pund hefir hann.

En eg segi yður það að hver eð hefur, honum mun gefið verða, en frá þeim sem ekkert hefur, mun og það burt numið verða, hvað hann hefur.* Þó þá mína óvini sem eigi vildu mig ríkja láta yfir sér, leiðið hingað og deyðið hér frammi fyrir mér. Og sem hann sagði nú þetta, fór hann ið beinasta og gekk upp til Jerúsalem. Og það skeði þá hann tók að nálgast Betfage og Betaníam við fjallið Oliveti að hann sendi út tvo af sínum lærisveinum og sagði: Fari þér í það kauptún, hvert gegnt yður er. Og þá þér komið þar inn, munu þér finna ösnufola bundinn, á hverjum aldri hefir enn nokkur manna setið. Leysið hann og leiðið hingað.

Og ef nokkur spyr yður að því þér leysið hann, þá segið honum svo það herrann þurfi hans við. En þeir fóru burt sem sendir voru og fundu sem hann hafði sagt þeim. Og er þeir leystu folann, sögðu hans drottnar: Fyrir hvað leysi þér folann? Þeir sögðu: Því herrann þarf hans við. Og þeir höfðu hann til Jesú og köstuðu sínum klæðum á folann og settu Jesúm þar upp á. En er hann fór af stað, breiddu þeir undir sín klæði á veginn. Og þá hann tók að nálgast og fór ofan af fjallinu Oliveti, hóf upp allur múgur hans lærisveina af fagnaði Guð að lofa meður hárri röddu yfir öllum þeim kraftaverkum sem þeir höfðu séð og sögðu: Blessaður sé sá konungur er kemur í nafni Drottins.

Friður sé á himni og dýrð á upphæðum. Og nokkrir af faríseis, þeir eð voru með fólkinu, sögðu til hans: Meistari, straffa þína lærisveina. Til hverra hann sagði: Eg segi yður það ef þessir þegðu, mundu steinarnir hljóða. Og sem hann tók meir að nálgast, sá hann á borgina og grét yfir henni og sagði: Því ef þú vissir það (mundir þú á þessum degi hugleiða að) hvað til þíns friðar heyrði. En nú er það dulið fyrir yðrum augum.

Því að þeir dagar munu yfir þig koma það þínir óvinir munu um þig og þín börn með þér skjaldborg setja og þér umsát veita og á alla vegu að þér þrengja og þig niður að velli brjóta, og eigi munu þeir í þér láta stein yfir steini vera af því það þú þekktir eigi þinn vitjanartíma. Og hann gekk inn í musterið og tók út að reka þá sem seldu og keyptu þar inni og sagði til þeirra: Skrifað er að mitt hús sé bæna hús, en þér gjörðuð það að spillvirkja inni.

Og hversdaglega kenndi hann í musterinu.* En kennimannahöfðingjar og skriftlærðir og vildarmenn lýðsins sóktu eftir að fyrirkoma honum og gátu eigi fundið hvað þeir skyldu honum gjöra því að allt fólkið var honum áhangandi. xx. kapítuli [ breyta] Og það skeði á einum þessara daga, þá hann var að kenna fólkinu í musterinu og að predika guðsspjöll, að þá komu til hans prestahöfðingjar og skriftlærðir með öldungunum, töluðu til hans og sögðu: Seg oss, af hverri makt er þú gjörir þetta. Eða hver er sá sem þér gaf þessa makt? Jesús svaraði og sagði til þeirra: Eg vil spyrja yður og að einu orði. Svarið mér: Skírn Jóhannis, var hún af himni eður af mönnum?

En þeir hugsuðu með sjálfum sér og sögðu: Því ef vér segjum: Af himni, svo segir hann: Fyrir hví trúðu þér henni eigi? Ef vér segjum af mönnum, þá mun allur lýður lemja oss grjóti því að þeir eru öruggir í því það Jóhannes væri spámaður og svöruðu að þeir vissu eigi hvaðan hún væri. Og Jesús sagði til þeirra: Þá segi eg yður eigi heldur af hverri makt eg gjöri þetta. En hann tók þá að segja til fólksins þessa eftirlíking: Nokkur mann plantaði víngarð og byggði hann víngarðsmönnum, fór síðan og var í burt um langa tíma. Og er tími var til, sendi hann út þjón til víngarðsmannanna að þeir gæfi honum af ávexti víngarðsins, hvern víngarðsmennirnir húðflettu og létu tómum höndum frá sér fara.

Og um það fram sendi hann út enn annan þjón. En þeir strýktu þann og dáruðu og létu eyrindislausan í burt fara. Og enn yfir það fram sendi hann út hinn þriðja, hvern þeir lemstruðu sárum og ráku burt síðan. En þá sagði herrann víngarðsins: Hvað skal eg til gjöra? Eg mun senda son minn elskulegan. Má vera að nær þeir sjá hann, þá feili þeir sér. En þá víngarðsmennirnir sáu soninn, þenktu þeir með sjálfum sér og sögðu: Þessi er erfinginn. Komið, aflífum hann svo að vor verði arfleifðin. Og þeir hnepptu hann út af víngarðinum og líflétu hann. Hvað mun nú herrann víngarðsins gjöra til við þá? Hann mun koma og tortýna þessum víngarðsmönnum og byggja sinn víngarð öðrum.

Þá þeir heyrðu það, sögðu þeir: Burt það. En hann horfði á þá og sagði: Hvað er nú það, hvað þar skrifað er: Þann stein, hvern uppbyggjendur forlögðu, sá er vorðinn að höfði hyrningar. Hver hann fellur á þennan stein, sá mun sundur merjast, en á hvern hann fellur, þann mun hann kremja. Og kennimannahöfðingjar og skriftlærðir leituðu eftir hverninn þeir fengi hendur á hann lagt í það sinn og óttuðust fólkið að því að þeir formerktu að hann hafði sagt til þeirra þessa eftirlíking. Þeir höfðu og varðhöld á honum og sendu út tálsmenn, hverjir sér áttu að breyta sem væri þeir aldyggvir svo að þeir gætu veitt hann í orðum og afent hann herradæminu og yfirvaldinu landstjórnarans.

Og þeir spurðu hann að og sögðu: Meistari, vær vitum að þú segir rétt og kennir og á lítur eigi nokkurs manns yfirlit, heldur kennir þú Guðs götu með sannleika. Hvort hæfir oss að gefa keisaranum skatt eða eigi? En hann merkti þeirra fláttskap og sagði til þeirra: Hvað freisti þér mín? Sýnið mér peninginn. Hvers mynt og innskrift hefur hann? Þeir svöruðu og sögðu: Keisarans. Hann sagði þá til þeirra: Því gefið keisaranum, hvað keisarans er og Guði, hvað Guðs er. Og þeir gátu eigi straffað hans orð fyrir fólkinu, undrandi hans andsvör og þögnuðu.

En nokkrir af saddúkeis gengu til hans, hverjir neittu upprisuna vera, spurðu hann að og sögðu: Moyses skrifaði oss: Ef að einshvers bróðir andaðist, sá er eiginkonu ætti, og væri hann barnlaus dáinn, þá skal hans bróðir taka þá konu og upp vekja svo sínum bróður sæði. Nú voru þar (vii) bræður og hinn elsti fékk sér eiginnar konu og andaðist erfingjalaus. Og sá annar tók þá konu og andaðist líka erfingjalaus. Og hinn þriðji átti hana, líka og einninn allir þeir (vii) létu ekki barn eftir og önduðust. En seinast allra þeirra andaðist og konan. Hvers þeirra eiginkona verður hún nú í upprisunni? Því að allir (vii) hafa þeir haft hana til eignarkonu.

Og Jesús svaraði og sagði til þeirra: Synir þessarar veraldar giftast og láta gifta sig, en þeir sem verðugir verða að öðlast hinn annan heim og upprisuna af dauðanum, þeir munu hvorki giftast né sig gifta láta því að þeir geta eigi oftar dáið því þeir eru englum líkir og Guðs börn á meðan þeir eru upprisunnar börn. En það að hinir framliðnu munu upp rísa, hefir Moyses auðsýnt við skógarrunninn sem þá hann kallaði Drottin Guð Abrahams, Guð Ísaks, Guð Jakobs. En Guð hann er eigi dauðra, heldur lifandra manna Guð því að þeir lifa honum allir. Þá svöruðu nokkrir af hinum skriftlærðu og sögðu: Meistari, þú hefir vel sagt. Og þeir dirfðust eigi framar að spyrja hann nokkurs.

En hann sagði til þeirra: Hverninn segja þeir Krist vera Davíðs son? Og sjálfur Davíð segir í Sálmabókinni: Drottinn sagði til míns drottins: Sit þú til minnar hægri handar þar til eg legg þína óvini til skarar þinna fóta. Fyrst Davíð kallar hann herra, hverninn er hann þá hans sonur?

En öllu fólkinu áheyranda þá sagði hann til sinna lærisveina: Vaktið yður fyrir hinum skriftlærðum, hverjir eð ganga vilja í síðum klæðum og kærar hafa kveðjur á torgum og hin fremstu tignarsæti í samkunduhúsum og æðstan sess í samdrykkjum, hverjir upp svelgja ekknanna hús, forlíkjandi langt bænahald svo þeir öðlist þess þyngri fyrirdæming. xxi. kapítuli [ breyta] En hann leit upp og sá þá hina ríku, hverjir eð létu sitt offur í ölmusustokkinn. Þá sá hann og nokkra ekkju fátæka sem lét þar inn tvo hálfpeninga.

Og hann sagði: Sannlega segi eg yður það þessi fátæka hefir meira lagt þar inn en hinir allir því að þeir hafa allir af sinni yfirverandi eign inn lagt til Guðs offurs, en þessi hefir af sinni fátækt alla sína næring þar inn lagt. Og er nokkrir gátu af musterinu að það væri fágað með góða steina og háfur, sagði hann: Sá tími mun koma, á hverjum að allt þetta, hvað þér sjáið, mun enginn steinn yfir öðrum látinn að eigi sé niður brotinn. En þeir spurðu hann að og sögðu: Meistari, nær skal þetta verða? Og hvað merki er til þá þetta mun til taka að ske? En hann sagði: Sjáið til að þér verðið eigi villtir. Því að margir munu koma í mínu nafni og segja að eg sé það, og sá tími tekur að nálgast.

Fylgið þeim eigi eftir. En nær þér heyrið af bardögum og missáttum, þá hryggvist eigi því að þessu byrjar áður að ske, en endirinn er þó eigi þá strax. Þá sagði hann til þeirra: Ein þjóð mun hefjast upp í mót annarri og eitt ríki í gegn öðru, og miklir jarðskjálftar munu þar verða í ýmsum stöðum, hungur og drepsóttir og ógnanir, og stórar undranir munu þar ske af himni. En fyrir allt þetta munu þeir hendur á yður leggja og ofsókn veita og yður framselja í sín þinghús og myrkvastofur, dragandi yður fyrir konunga og landshöfðingja fyrir míns nafns sakir. En þetta hendir yður til vitnisburðar.

Því setjið yður í hjörtu það þér hugsið eigi fyrir hverninn þér skuluð forsvara yður því að eg mun gefa yður munn og visku, hverjum að eigi skulu geta í gegn staðið né móti mælt allir yðrir mótstöðumenn. En þér munuð og framseldir verða af foreldrum og bræðrum, frændum og vinum, og nokkra af yður munu þeir lífi svipta. Og þér verðið hvers manns hatur fyrir míns nafns sakir, og ekkert hár af yðru höfði skal þó farast. Eignist svo með yðvarri þolinmæði sálir yðrar. En nær þér sjáið Jerúsalem umkringda af herflokkum, þá skulu þér vita að nálgast tekur hennar aleyðing.

Svo að hverjir þá eru í Júdealandi flýi þeir til fjalla, og þeir þar eru þá mitt inni fari út þaðan, og hverjir á landsbyggðum eru, þeir komi eigi þar inn. Því að það eru hefndardagar svo að uppfyllt verði allt hvað skrifað er. En ve óléttum og brjóstmylkingum á þeim dögum því að mikil harmkvæli munu verða á jörðu og reiði yfir þetta fólk. Og fyrir sverðseggjum munu þeir falla og herleiddir verða bland allar þjóðir, og Jerúsalem mun undir troðast af heiðingjum þar til að uppfyllast tímar heiðinna þjóða.

Og þar munu ske teikn á sólu og tungli og stjörnum og á jörðu kvalning þjóða og örvilnan, sjár og bylgjur munu hljóða og menn munu fyrir hræðslu upp þorna og af eftirbíðingu þeirra hluta, hver eð koma skulu yfir allan heiminn því að kraftar himins munu hrærast. Og þá munu þeir sjá mannsins son komanda í skýinu meður tign og miklu valdi. En nær þetta tekur að ske, þá lítið upp og upphefjið yðar höfuð af því að yðar endurlausn tekur að nálgast. Og hann sagði þeim þessa eftirlíking: Skoðið fíkjutréið og öll tré. Nær þeirra aldin tekur út að springa, þá merki þér á þeim það sumarið er í nánd. Svo og líka nær þér sjáið þetta ske, þá vitið það að Guðs ríki er nálægt.

Sannlega segi eg yður það þessi kynslóð mun eigi fyrirfarast þar til að allt þetta sker. Himinn og jörð forganga, en mín orð forganga eigi. * En varið yður að yðar hjörtu þyngist eigi af ofáti og ofdrykkju og með sorgum þessarar næringar, að eigi komi þessi dagur hastarlega yfir yður því að líka sem tálsnara mun hann koma yfir alla þá sem á jörðu byggja. Kostið því vakrir að vera alla tíma og biðjið svo að þér mættuð verðugir vera að umflý allt þetta hvað eftirkomandi er og að standa svo frammi fyrir mannsins syni. Og um daga kenndi hann í mustérinu, en um nætur gekk hann út og dvaldist í fjallinu Oliveti.

Og allt fólk tók sig snemma upp til hans í mustérið honum að heyra. xxii. kapítuli [ breyta] En þá tók að nálgast hátíðardagur ins sæta brauðs, hver eð kallaðist páskar. Og kennimannahöfðingjar og skriftlærðir eftirleituðu hverninn þeir gæti Jesúm líflátið því að þeir óttuðust lýðinn. En andskotinn var hlaupinn í Júdas, þann kallaður var Skariot, hver eð var einn af tólf. Og hann fór burt, talaði við kennimannahöfðingjana og höfuðsmennina hverninn hann vildi selja þeim hann. Þeir glöddust við og hétu að gefa honum peninga til. Og hann lofaði þeim því og leitaði lags að hann fengi selt þeim hann án upphlaups.

En er kom dagur ins sæta brauðs, á hverjum sæfast skyldi páskalambið, og hann sendi út Petrum og Jóhannem og sagði: Fari þér, búið til páskalambið svo að vér neytum. En þeir sögðu til hans: Hvar viltu að við reiðum það til? Hann sagði til þeirra: Sjáið, nær þér gangið inn í borgina, mun maður mæta yður berandi vatsskjólu. Fylgið honum eftir í það hús, hvert hann gengur inn og segið húsbóndanum: Meistarinn lét segja þér: Hvar er það herbergi, þar eg megi páskalambið í eta meður mínum lærisveinum? Og hann mun vísa yður stóran sal fágaðan. Búið það þar til. Þeir gengu burt og fundu svo sem hann hafði sagt þeim og reiddu til páskalambið.

Og þá er sú stund kom, setti hann sig niður og þeir tólf postular með honum. Og hann sagði til þeirra: Mig hefir af hjarta næsta eftir langað að eta þetta páskalamb með yður áður en eg líð. Því að eg segi yður að hér eftir mun eg eigi oftar af því neyta þar til að það fullkomnast í Guðs ríki. Hann tók og kalekinn, gjörði þakkir og sagði: Meðtakið hann og skiptið honum á milli yðar. Því að eg segi yður það eg mun eigi drekka af vínviðarávexti þar til að Guðs ríki kemur. Og hann tók brauðið, gjörði þakkir, braut það, gaf þeim og sagði: Þetta er mitt hold, það fyrir yður gefið verður. Gjörið þetta í mína minning.

Líka einninn og kaleikinn eftir kveldmáltíðina og sagði: þessi er kaleikur nýs testamens í mínu blóði, hvert fyrir yður út hellist. En þó sjáið, að hönd þess mig svíkur, er meður mér á borði. Og að sönnu fer mannsins son eftir því sem ályktað er, þó ve þeim manni, fyrir hvern hann verður svikinn. Og þeir tóku að spyrja sjálfir sín á milli hver af þeim væri, sá er þetta mundi gjöra. En þar hófst upp þræta þeirra á milli hver þeirra mundi sýnast mestur vera. En hann sagði til þeirra: Þeir sem þjóðkonungar eru, þeir drottnast af þeim, og hverjir yfirmaktina hafa, þá kallast náðugir herrar.

En þér skuluð eigi svo, heldur sá sem mestur er yðar á milli, veri hann svo sem inn minnsti og hinn æðsti sem annar þénari. Því hvor er meiri sá er til borðsins situr eður sá hann þjónar? Er eigi svo að hann sem við borðið situr? En eg em á millum yðar sem sá er þjónar. En þér eruð þeir, hverjir hjá mér voru í mínum freistingum. Og eg vil tileinka yður ríki svo sem minn faðir hefir mér það tileinkað svo að þér skulu eta og drekka yfir mitt borð í mínu ríki og sitja á stólum dæmandi tólf kynkvisti Íraels.* En Drottinn sagði: Símon, Símon, sjáðu að andskotinn hefir beiðst yðar að hann mætti sælda yður sem hveiti. En eg bað fyrir þér að þín trúa þrotnaði eigi.

Og hvenar þú snýst um aftur, þá styrk þú bræður þína. En hann sagði til hans: Herra, reiðubúinn em eg með þér í fjötur og dauða að ganga. En hann sagði: Petri, eg segi þér að í dag gelur haninn eigi áður þú hefir þrysvar afneitað því að þú þekkir mig. Og hann sagði til þeirra: Þá eg senda yður út án pungs eður tösku eða skófata, hvort brast yður þá nokkuð? En þeir sögðu: Alls ekkert. Þá sagði hann til þeirra: En nú hver eð pung hefir, sá taki hann líka og einninn töskuna. Og sá er eigi hefir, selji hann kyrtil sinn og kaupi sverð. Því að eg segi yður að það hlýtur á mér að fullkomnast hvað skrifað er, það hann er meður illvirkjum reiknaður. Því hvað af mér skrifað er, hefir nú enda.

En þeir sögðu: Herra, sjá, tvö sverð eru hér. Hann sagði þá til þeirra: Það er nóg. Og hann gekk eftir vana í fjallið Oliveti, og hans lærisveinar fylgdu honum eftir. Og þá hann kom til þess staðar, sagði hann til þeirra: Biðjið að eigi falli þér í freistanir. Og hann veik sér frá þeim mestu steinsnars, féll á kné og tók að biðja og sagði: Faðir, ef þú vilt, þá tak þennan kalek af mér. En þó eigi minn, heldur verði þinn vilji. En honum birtist engill af himni styrkjandi hann. Og þar kom að hann þrýtti við dauðann og tók ákafar að biðja, en hans sveiti varð svo sem blóðsdropar þeir eð féllu á jörðina.

Og hann stóð upp af bæninni og kom til sinna lærisveina og fann þá sofandi af hryggð og sagði til þeirra: Hvað sofi þér? Standið upp, biðjið að þér fallið eigi í freistni. Þá hann var þetta að segja, sjá, það flokkurinn og einn af tólf, sá Júdas hét, gekk fyrir þeim og vildi nálgast Jesúm að hann kyssti hann. En Jesús sagði til hans: Júdas, svíkur þú mannsins son með kossi? En er þeir sem hjá honum voru, sáu hvað verða vildi, sögðu þeir til hans: Herra, skulu vær eigi slá þá með sverði? En einn af þeim sló þjón prestahöfðingjans og hjó af hans hið hægra eyra. Jesús svaraði og sagði: Leyfið þeim að gjöra allt hið frekasta. Og hann snart hans eyra og læknaði hann.

En Jesús sagði til þeirra prestahöfðingja og höfuðsmanna musterisins og öldunganna hverjir eftir honum voru komnir: Svo sem til annars illvirkja gengu þér út með sverðum og stöngum. Þá eg var daglega í musterinu hjá yður, lögðu þér eigi hendur á mig, heldur er þetta nú yðar tími og makt myrkranna. En þeir gripu hann og leiddu inn í prestahöfðingjans hús. En álengdar. Þeir kveiktu þá upp eld í miðjum forsalnum og settu sig í kringum hann, og Pétur var þar á milli þeirra. Þá sá hann ambátt nokkur sitja við logann, horfði á hann og sagði: Þessi var og með honum. En hann afneitaði honum og sagði: Kona, eigi þekki eg hann. Og litlu einu þar eftir sá hann önnur og sagði: Þú ert og af þeim.

En Pétur sagði: Þú maður, eigi em eg. Og er bil var á orðið sem eins tíma, tilstyrkti nokkur annar og sagði: Að sönnu var og þessi með honum því að hann er Galíleari. En Pétur sagði: Maður, eigi veit eg hvað þú segir. Og jafnsnart að honum nú þetta enn talandi, gól haninn og Drottinn snerist við og leit til Péturs. Og Pétur minntist þá orða Drottins hverninn hann hafði sagt: Fyrir en haninn gelur, muntu afneita mig þrisvar. Og Pétur gekk út og grét beisklega. En þeir menn, sem héldu Jesú, dáruðu hann og dustuðu, byrgðu hann og slógu í hans andlit, spurðu hann að og sögðu: Spáðu hver sá er sem þig sló. Og margt annað háðulegt sögðu þeir við hann.

Og er dagur var, komu saman öldungar lýðsins og prestahöfðingjar og hinir skriftlærðu og leiddu hann upp fyrir sitt ráð og sögðu: Ef þú ert Kristur, seg oss það. Og hann sagði til þeirra: Ef eg segi yður, þá trúið þér mér eigi, en ef eg spyr yður, svarið þér mér eigi og látið mig eigi lausan. Og héðan í frá mun mannsins son sitja til hægri handar Guðs kraftar. En þeir sögðu allir: Ertu þá Guðs sonur? Hann sagði til þeirra: Þér segið það því að eg em hann. En þeir sögðu: Hvað þurfu vér vitnisburðinn lengur?

Því að vér sjálfir heyrðum af hans munni. xxiii. kapítuli [ breyta] Og allur þeirra söfnuður stóð upp og leiddu hann fyrir Pílatus, tóku að áklaga hann og sögðu: Þennan finnu vér umturna fólk vort og fyrirbjóðandi skatt að gefa keisaranum og segir sig vera konunginn Gyðinga? Hann svaraði og sagði: Þú segir það. Pílatus sagði þá til prestahöfðingjanna og til lýðsins: Öngva sök finn eg með þessum manni. En þeir voru þess áfjáðari og sögðu: Hann hefir uppæst fólkið meður því hann hefir kennt hér og hvar á öllu Gyðingalandi, til tekinn í Galílea og allt í þennan stað. En er Pílatus heyrði Galíleam nefnt, spurði hann að hvort hann væri galeiskur maður.

Og er hann fornam að hann var undir Heródes veldi, sendi hann hann þá burt til Heródem, hver eð sjálfur var á þeim dögum til Jerúsalem. En er Heródes sá Jesúm, varð hann næsta glaður því að hann hafði fýst um langa tíma að sjá hann af því að hann hafði og heyrt margt af honum og vænti að hann mundi sjá nokkurt teikn af honum gjörast og að spurði hann á marga vegu, og hann svaraði honum öngu. En kennimannahöfðingjar og skriftlærðir ásökuðu hann harðlega, og Heródes með sínu hirðfólki forsmáði hann og spéaði, færði hann í hvítt fat, sendi aftur til Pílato. Og á þeim degi urðu þeir Pílatus og Heródes vinir aftur því að áður voru þeir óvinir sín á milli.

En Pílatus saman kallaði prestahöfðingja, höfuðsmenn og lýðinn og sagði til þeirra: Þér hafið þennan mann til mín haft svo sem þann er umturnar lýðinn. Og sjáið, eg hefi spurt hann hér fyrir yður, og á þessum manni finn eg öngva sök í því þér áklagið hann. Og ekki heldur Heródes því að eg sendi yður sjálfa til hans. Og sjáið, að ekkert hefir upp á hann borist það dauða sé verðugt. Fyrir því vil eg gefa honum ráðning og láta síðan lausan því að hann hlaut þeim einn eftir venju hátíðardagsins lausan að gefa.

En allur söfnuðurinn kallaði upp til líka og sagði: Tak burt þennan og gef oss lausan Barrabam, hver eð var fyrir nokkurt sundurþykki og mannslag er skeð var í borginni, inn settur í myrkvastofu. Pílatus talaði þá enn aftur til þeirra og vildi Jesúm lausan láta. En þeir kölluðu upp og sögðu: Krossfestu, krossfestu hann. Hann sagði enn í þriðja sinn til þeirra: Hvað illt hefir þessi gjört? Öngva dauðasök finn eg með honum. Fyrir því vil eg hegna honum og láta síðan lausan. En þeir stóðu því þéttara með miklum hljóðum, æskjandi það hann yrði krossfestur. Og þeirra hljóð og höfuðprestanna tók yfir.

Og Pílatus dæmdi að ske skyldi þeirra beiðni, en gaf þeim lausan þann er inn var settur fyrir sundurþykkis og mannslags sakir í myrkvastofu, um hvern þeir báðu. En hann framseldi Jesúm í þeirra vild, og þá er þeir leiddu hann út, höndluðu þeir nokkurn Símon af Sýria, hver eð kominn var af byggðinni, og lögðu krossinn upp á hann að hann bæri hann eftir Jesú. En honum fylgdi eftir mikill fjöldi fólks og kvenna, hverjar grétu hann og aumkuðu. En Jesús snerist til þeirra og sagði: Þér dætur af Jerúsalem, grátið eigi yfir mér, heldur grátið yfir yður sjálfum og yfir sonum yðar.

Því sjáið, að þeir dagar munu koma, á hverjum segjast mun: Sælar eru þær óbyrja og þeir kviðir er eigi hafa fætt og þau brjóst hver eigi voru mylkt. Þá munu þær taka að segja fjöllunum: Hrynjið yfir oss, - og hálsunum: Hyljið oss. Því ef þeir gjöra þetta við hið blómgaða tréið, hvað mun þá ske við hið þurra? En tveir spillvirkjar aðrir leiddust og út, að þeir væri afteknir með honum. Og sem þeir komu í þann stað, hver eð kallaðist %Höfuðskeljarstaður, þá krossfestu þeir hann þar og spillvirkjana með honum, einn til hægri handar og annan til vinstri. En Jesús sagði: Faðir, fyrirgef þeim það því að þeir vita eigi hvað þeir gjöra.

Og þeir skiptu hans klæðum og vörpuðu þar um hlutkesti, og fólkið stóð og sá til. Og höfðingjarnir dáruðu hann með þeim og sögðu: Aðra hefir hann frelsað, frelsi hann nú sjálfan sig ef hann er Kristur hinn útvaldi Guðs. Að honum hæddu og stríðsmennirnir, gengu til hans og báru honum edik og sögðu: Ef þú ert konungur Gyðinga, þá frelsa sjálfan þig. En yfirskriftin var rituð yfir honum með girskum, ebreskum og latínu bókstöfum: Þessi er konungur Gyðinga. En einn af þeim spillvirkjum, sem hengdir voru, lastaði hann og sagði: Ef þú ert Kristur, frelsa sjálfan þig og oss. Þá svaraði hinn annar, straffaði hann og sagði: Og þú hræðist eigi heldur Guð sem ert þó í samri fordæming.

Og að sönnu sker okkur þetta réttlega því að við meðtókum hvað okkrar gjörðir eru verðar, en þessi hefir ekkert vondslegt gjört. Og hann sagði til Jesú: Drottinn, minnstu mín þá þú kemur í ríki þitt. Og Jesús sagði til hans: Sannlega segi eg þér: Í dag skalt þú vera með mér í Paradís. Og það var nær um hina séttu stund, og myrkrin gjörðust yfir allt landið til níundu stundar, og sólin sortnaði, og tjaldið musterisins rifnaði í miðju sundur. Og Jesús kallaði hárri röddu og sagði: Faðir, í þínar hendur fel eg minn anda. Og er hann hafði þetta sagt, lést hann. En er hundraðshöfðinginn sá hvað þar skeði, dýrkaði hann Guð og sagði: Að vísu hefir þessi réttlátur maður verið.

Og allt fólk er þar var saman komið að horfa á þetta og sem það sá hvað þar skeði, barði það sér á brjóst og sneri í burt aftur. En allir hans kunningjar stóðu langt frá og þær konur sem honum höfðu eftir fylgt úr Galílea og horfðu á þetta. Og sjá, maður, Jósef að nafni, sá er var einn ráðherra, góður mann og réttvís, eigi samþykkti hann þeirra ráði og gjörningum. Og hann var af borginni Armatía úr Júdea, hver eð og stundaði eftir Guðs ríki. Þessi gekk til Pílato og bað um líkama Jesú og tók hann ofan og sveipaði hann í lérefti og lagði hann í úthöggna gröf, í hverja ekki hafði enn nokkur lagður verið. Og það var aðfangadagur og þvottdagurinn tók að hefjast.

En þær konur, sem komnar voru af Galílea, fylgdu eftir og skoðuðu gröfina og hverninn hans líkami var lagður og sneru aftur, reiðandi til sín smyrsl og dýrlegt salvi. Og um þvottdaginn voru þær kyrrar eftir lögmálsins boðan. xxiv. kapítuli [ breyta] En einn þær höfðu tilbúið og enn nokkrar aðrar með þeim. Þær fundu að steininum hafði velt verið af gröfinni og stigu þar inn og fundu ekki líkamann herrans Jesú. Og sem þær voru hugsjúkar um þetta, sjá, þá stóðu tveir menn hjá þeim í leiftrandi klæðum. En þær urðu þá hræddar og féllu á sína ásjánu til jarðar, og þeir sögðu til þeirra: Hvað leiti þér hins lifanda hjá dauðum? Hann er eigi hér, heldur er hann upprisinn.

Hugleiðið að því hvað hann talaði fyrir yður þá hann var nú enn í Galílea er hann sagði, það mannsins syni byrjaði að seljast í syndugra hendur og krossfestur verða og á þriðja degi upp að rísa. Og þær minntust á hans orð. Og þær gengu burt frá gröfinni aftur og kunngjörðu allt þetta þeim ellifu og svo öllum hinum öðrum. En þetta var María Magdalena og Jóhanna og María Jakobi og þær aðrar er með þeim voru sem þetta sögðu postulunum. Og þeirra orð virtist þeim sem væri það sjónhverfingar og trúðu eigi. En Pétur stóð upp og hljóp til grafarinnar og laut þar inn og sá línlökin einsöm liggja, gekk burt og undraði með sjálfum sér hverninn það væri skeð.

Og sjá, að tveir af þeim gengu á þann sama dag til nokkurs kauptúns það er var frá Jerúsalem rúms sextigi skeiða, hvert eð Emmahus var að nafni. Og þeir voru að tala um alla þá hluti sem við höfðu borið. Og það skeði þá þeir ræddust við og spurðust á sín í millum að sjálfur Jesús nálægist þá og gekk jafnframt þeim. En þeirra augu voru svo haldin að þeir þekktu hann eigi og sagði til þeirra: Hvað er það fyrir ræðu sem þið handlið reikandi ykkar á milli og eruð hryggvir út af? Þá svaraði einn er Kleófas var að nafni og sagði til hans: Ertu alleina svo ókenndur til Jerúsalem að þú veist eigi hvað á þessum dögum þar inni gjörst hefir? Til hverra hann sagði: Hvað þá?

En þeir sögðu til hans það af Jesú hinum naðverska, hver eð var spádómsmaður máttugur í verkum og orðum fyrir Guði og öllu fólki, hversu að vorir höfuðprestar og höfðingjar felldu hann í fordæming dauðans og krossfestu hann. En vér vonuðum að hann mundi endurleysa Írael. Og yfir allt þetta er nú hinn þriðji dagur í dag er þetta skeði. Svo hafa og skelft oss nokkrar konur af oss til, þær eð fyrir lýsingina höfðu hjá gröfinni verið og ekki fundið hans líkama, komu og sögðu sig einninn séð hafa engla sjónir, þeir eð sögðu hann lifa. Og nokkrir út af oss gengu til grafarinnar og fundu einslíka sem konurnar höfðu sagt, en hann fundu þeir ekki.

Og hann sagði til þeirra: Ó, þér heimskir og tregir í hjarta að trúa því öllu hvað spámennirnir hafa talað. Hlaut Kristur eigi þetta að líða og inn ganga svo í sína dýrð? og tók til frá Moyse og öllum spámönnum og lagði út fyrir þeim allar ritningar þær af honum voru. Og þeir tóku að nálgast kauptúnið það þeir gengu til, og hann lét þá sem vildi hann lengra ganga. Og þeir neyddu hann og sögðu: Ver hjá oss, herra, því að kvelda tekur og á daginn líður. Hann gekk inn og var hjá þeim. Það skeði og þá hann sat með þeim til borðs að hann tók brauðið, blessaði það og braut og rétti að þeim. Þá opnuðust þeirra augu svo þeir þekktu hann, og hann hvarf úr þeirra augsýn.

Og þeir sögðu sín á milli: Brann ekki vort hjarta í okkur þá hann talaði við okkur á veginum og opnaði fyrir okkur ritningarnar? Og þeir stóðu upp á sömu stundu og sneru aftur til Jerúsalem og fundu þá ellifu saman safnaða og þá sem með þeim voru, hverjir eð sögðu að Drottinn væri sannarlega upprisinn og birst Símoni. Og þeir tjáðu honum hvað gjörst hafði á veginum og hverninn þeir höfðu þekkt hann í því hann braut brauðið.* Þá þeir voru nú enn að tala um þetta, sté Jesús mitt í milli þeirra og sagði til þeirra: Friður sé yður. En þeir fældust og urðu hræddir og meinuðu að þeir sæi anda nokkurn. Og hann sagði til þeirra: Hvað fælist þér og því koma slíkir þankar í yðar hjörtu?

Sjáið mínar hendur og mína fætur að eg em hann sjálfur. Þreifi þér og skoðið því að andi hefir eigi hold og bein svo sem þér sjáið mig hafa. Og þá hann sagði það, sýndi hann þeim hendur og fætur. Og er þeir trúðu enn eigi fyrir fagnaðar sakir og undrandi það, sagði hann til þeirra: Hafi þér nokkuð matlegt? Og þeir lögðu fyrir hann stykki af steiktum fiski og hunangsseim, og hann tók það og át fyrir þeirra augum. Og hann sagði til þeirra: Þetta eru þau orð, hver eg talaði til yðar þá eg var hjá yður því að það hlaut allt að fullkomnast, hvað af mér er skrifað í Moyses lögmáli og í spámanna bókum og sálmum.

Þá opnaði hann þeirra hugskot svo að þeir forstóðu ritningarnar og sagði til þeirra: Svo er það skrifað og svo byrjaði Kristi að líða og upp að rísa á þriðja degi af dauða og predikast láta í sínu nafni iðran og fyrirgefning synda á meðal allra þjóða upphefjandi til Jerúsalem.* En þér eruð vottar þessara hluta. Og sjáið, að eg mun senda yfir yður fyrirheit míns föðurs, en þér skuluð sitja í borginni Jerúsalem þangað til að þér klæðist með krafti af hæðum. En hann hafði þá út allt til Betaníam og hóf upp sínar hendur og blessaði þá. Og það gjörðist þá hann blessaði yfir þá að hann leið frá þeim og varð uppnuminn til himins.

En þeir tilbáðu hann og sneru aftur til Jerúsalem með miklum fagnaði og voru jafnan í musterinu vegsamandi og lofandi Guð. Endir S. Lúkas guðsspjalla.

← Chapter 42Chapter 44 →