The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 44

John · Chapter 1

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 44 of 174 · about 5 min

← Chapter 43Chapter 45 →

[ breyta] Í upphafi var orð, og það orð var hjá Guði, og Guð var það orð. Það sama var í upphafi hjá Guði. Og allir hlutir eru fyrir það gjörðir, og án þess er ekkert gjört hvað gjört er. Í því var líf, og lífið var ljós mannanna. Og ljósið lýsir í myrkrunum, og myrkrin hafa það eigi höndlað. Þar var einn maður af Guði sendur. Sá hét Jóhannes. Hann kom til vitnisburðar að hann bæri vitnisburð af ljósinu að allir skyldu fyrir hann trúa. Eigi var hann það ljós, heldur að hann bæri vitnisburð af ljósinu. Það var satt ljós hvert eð lýsir öllum mönnum sem koma í þennan heim. Það var í heiminum, og heimurinn var fyrir það gjörður, og heimurinn þekkti það eigi.

Hann kom til sinnar eiginnar, og hans sjálfir meðtóku hann eigi. En svo margir sem hann meðtóku, þá gaf hann þeim mátt Guðs börnum að verða, þeim er á hans nafn trúa, eigi þeim sem af blóðinu eða þeim sem af holdsins vild eður af mannsins vilja, heldur þeim sem af Guði eru bornir. Og orðið varð hold og byggði með oss, og vér sáum þess dýrð, dýrð svo sem eingetins sonar af föðurnum, fullan náðar og sannleika.* Jóhannes vitnar af honum, kallar og segir: Þessi er sá, af hverjum eg sagða: Eftir mig mun koma sá sem fyrir mig var því að hann var fyrri en eg.

Og af hans gnægð höfum vér allir fengið, náð fyrir náð, því að lögmálið er fyrir Moysen út gefið, en náð og sannleikur er fyrir Jesúm Kristum vorðinn. (Enginn hefur um aldur Guð sénan). Sá eingetni sonur, sem í föðursins faðmi er, hann hefur oss þetta kunngjört. Og þetta er vitnisburður Jóhannis þá þeir Júðar sendu af Jerúsalem presta og kynsmenn Leví að þeir skyldi spyrja hann: Hver ert þú? Og hann kenndist og neitaði því eigi. Og hann viðurkenndist, svo segjandi: Eigi em eg Kristur. Þeir spurðu hann þá enn að: Hvað þá? Ert þú Elías? Hann sagði: Eigi em eg. Ertu spámaður? En hann ansaði: Ekki. Þá sögðu þeir við hann: Hver ert þú þá svo að vér megum gefa andsvar þeim er oss út sendu?

Hvað segir þú af sjálfum þér? Hann sagði: Eg em hrópandi rödd í eyðimörku: Greiði þér götu Drottins, svo sem sagði Esayas spámaður. Og þeir sem útsendust, voru af faríseis. Þeir aðspurðu hann og sögðu honum: Því skírir þú þá ef þú ert eigi Kristur, eigi Elías, eigi spámaður? Jóhannes svaraði þeim og sagði: Eg skíri með vatni, en sá stendur mitt hjá yður, hvern þér þekkið eigi, hann er sá sem eftir mig mun koma, sá eð fyrir mig var, hvers eg em ei verður að eg skal upp leysa hans skóþvengi. Þetta skeði í Betabara hinumegin Jórdanar þar Jóhannes skírði. En annars dags eftir sér Jóhannes Jesúm komanda til sín og mælti: Sjáið, þar er það lamb Guðs, hvert eð ber heimsins syndir.

Þessi er, af hverjum eg sagða: Eftir mig kemur maður, sá fyrir mig var, því að hann var fyrr en eg. Og eg kennda hann eigi, heldur hitt að hann yrði kunnur í Írael, fyrir því kom eg að skíra með vatni. Og Jóhannes vitnaði og sagði: Eg sá andann ofan stíga af himnum í dúfu líki og var yfir honum, og eg þekkta hann eigi, heldur sá mig sendi að skíra með vatni, hann sagði mér: Yfir hvern þú sér andann niður stíga og yfir honum vera, hann er sá sem skírir með helgum anda. Og eg sá það, og þennan vitna eg Guðs son vera. En annars dags aftur stóð Jóhannes enn og tveir af hans lærisveinum. Og sem hann leit Jesúm ganga, segir hann: Sjáið, það er lamb Guðs.

Og tveir af hans lærisveinum heyrðu hann tala og fylgdu Jesú eftir. En Jesús sneri aftur og leit þá sér fylgjandi, sagði hann þeim: Að hverju leiti þér? Þeir sögðu honum: Rabbí, - hvað að þýðist meistari, - hvar ert þú heima? Hann sagði þeim: Komið og sjáið. Þeir komu og skoðuðu hvar hann væri og voru hjá honum þann dag, en það var nær tíundu stund. Einn af þessum tveimur var Andreas, bróðir Símonar Petri, sem heyrði af Jóhanni og Jesú eftir fylgdi. Hann fann þó áður sinn bróður, Símon, og sagði til hans: Vér höfum fundið Messíam, -hvað að útleggst smurður, - og fylgdi honum til Jesú. Þá Jesús leit hann, mælti hann: Þú ert Símon, sonur Jónas, þú skalt kallast Kefas. Það útleggst hellusteinn.

Annan dag þar eftir vildi Jesús ferðast til Galíleam aftur og finnur Filippum og sagði til hans: Fylg þú mér eftir. En Filippus var af Betsaida, úr þeirra borg Andrésar og Petrus. Filippus fann Natanael og sagði honum: Vér höfum þann fundið, af hverjum Moyses í lögmálinu og allir spámenn hafa um skrifað, Jesúm Jósefsson af Nasaret. Natanael sagði til hans: Hvað má af Nasaret góðs koma? Filippus sagði honum: Kom og sjá. Jesús sá Natanael komanda til sín og sagði af honum: Sjá[ið], einn sannan Íraelíta, í hverjum svik eigi eru. Natanael sagði þá við hann: Hverninn þekkir þú mig? Jesús ansaði, sagði til hans: Áður en Filippus kallaði á þig, þá þú vart undir fíkitrénu, sá eg þig.

Natanael svaraði og sagði til hans: Rabbí, þú ert Guðs sonur, þú ert konungur Íraels. Jesús svaraði og sagði við hann: Þú trúir af því að eg sagða þér að eg hefða séð þig undir fíkitrénu. Sjá munt þú enn þessu meira. Hann sagði honum og: Sennilega, sennilega segi eg yður: Upp frá þessu munu þér sjá himininn opinn og engla Guðs stíga upp og ofan yfir mannsins son.

← Chapter 43Chapter 45 →