The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 45

John · Chapter 2

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 45 of 174 · about 2 min

← Chapter 44Chapter 46 →

[ breyta] Og þriðja dag þar eftir varð brúðkaup til Kana í Galílea, og þar var móðir Jesú. Jesús var einninn boðinn og hans lærisveinar til brúðkaupsins. Og þá er þá þraut vínið, sagði móðir Jesú til hans: Þeir hafa eigi vín. Jesú sagði til hennar: Þú kona, hvað hefi eg með þig? Mín stund er eigi enn komin. Móðir hans sagði við þjónustumennina: Hvað helst hann segir yður, það gjörið. En þar voru sex steinker sett eftir venju ebreskrar hreinsunar. Hvert eitt tók tvo eður þrjá mælir. Jesús talaði til þeirra: Fyllið upp kerin af vatni. Og þeir fylltu þau allt á barma. Og hann sagði þeim: Hellið nú á og færið kæmeistaranum. Og þeir færðu honum.

En þá kæmeistarinn smakkaði vatnið, það að víni var orðið, eigi vissi hann hvaðan að kom, en þjónustumennirnir, sem vatnið sóktu, vissu það. Hann kallar á brúðgumann og segir honum: Allir menn gefa í fyrstu gott vín og nær þeir gjörast ölvaðir, þá það hið léttara, en þú hefir geymt hið góða til þessa. Þetta er hið fyrsta jarteikn það Jesús gjörði til Kana í Galílea, og hann opinberaði sína dýrð, hans lærisveinar trúðu og á hann.

Eftir það fór hann ofan til Kapernaum, hann og móðir hans, bræður hans og lærisveinar, og voru þar eigi mjög marga daga.* Þá var og nálæg páskahátíð Gyðinga, og Jesús fór upp til Jerúsalem og fann í musterinu sitjandi þá sem seldu naut, sauði, dúfur og þá sem umskipti gjörðu á peningum. Þá gjörði hann sér eina svipu af strengjum og rak út allt af musterinu, bæði naut og sauði, og hratt niður peningum þeirra er umskiptin gjörðu og sagði við þá sem dúfurnar seldu: Beri þér þetta burt héðan, og gjörið eigi míns föðurs hús að söluhúsi. Hans lærisveinar hugleiddu þá hvað skrifað er, að vandlæti húss þíns át mig. Þá önsuðu Júðar og sögðu honum: Hvert teikn sýnir þú oss að þú megir þetta gjöra?

Jesús svaraði og sagði þeim: Brjóti þér niður musteri þetta, en eg skal á þriðja degi það upp reisa. Þá sögðu Gyðingar: Þetta musteri er upp byggt í sex og fjöritigi ár, en þú vilt upp reisa það á þrim dögum. Hann talaði um musteri síns líkama. Og þá hann var af dauða risinn hugleiddu hans lærisveinar að hann hafði þetta mælt og trúðu ritninginni og þeim orðum er Jesús hafði talað. En hann var í Jerúsalem um páska. Á þeim hátíðardegi þá trúðu margir á hans nafn, þeir sem sáu þau tákn er hann gjörði. En Jesús trúði þeim eigi til um sjálfan sig af því að hann þekkti alla og þurfti eigi við að nokkur bæri af manninum vitni því að hann sjálfur vissi hvað með manninum var.*

← Chapter 44Chapter 46 →