John · Chapter 3
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 46 of 174 · about 4 min
[ breyta] Þar var einn mann í bland faríseos, Nikódemus að nafni. Hann var einn af höfðingjum Gyðinga. Hann kom til Jesú um nótt og sagði til hans: Rabbí, vér vitum að þú ert einn meistari af Guði kominn því að enginn getur gjört þá teikn sem þú gjörir nema Guð sé með honum. Jesús svaraði og sagði til hans: Sannlega, sannlega segi eg þér: Nema ef sá nokkur sem að nýju verður endurborinn, hann fær eigi að sjá Guðs ríki. Þá sagði Nikódemus til hans: Hverninn má maðurinn endurberast þá hann er gamall? Eður fær hann stigið aftur í sinnar móður kvið og fæðst svo? Jesús svaraði: Sannlega, sannlega segi eg þér: Nema að sá sem endurborinn verður úr vatni og af anda, getur eigi inn gengið í Guðs ríki.
Hvað af holdinu fæðist, það er hold, og hvað sem fæðist af andanum, það er andi. Undra þú eigi þó eg segða þér að yður byrjaði á nýju að endurfæðast. Vindurinn blæs hvert hann vill, og þú heyrir hans þyt. En eigi veist þú hvaðan hann kemur eður hvert hann fer. Svo eru allir þeir sem af andanum eru endurbornir. Nikódemus svaraði og sagði honum: Hverninn má þetta ske? Jesús svaraði og sagði: Ert þú meistari í Írael og veist eigi þetta? Sannlega, sannlega segi eg þér að vér segjum það vér vitum og vitnum það vér séð höfum, og vort vitni meðtakið þér eigi. Og ef þér trúið eigi þá eg segi yður af jarðlegum hlutum, hverninn munu þér trúa mega ef eg segða yður af himneskum hlutum?
Enginn mun og upp stíga til himna nema sá sem ofan sté af himni, sonur mannsins, sá sem er af himni. Og svo sem Moyses upp festi höggorminn í eyðimörku, líka byrjar mannsins syni upp að festast að allir þeir, er á hann trúa, fortapist eigi, heldur hafi eilíft líf.* Því að svo elskaði Guð heiminn að hann gaf út sinn eingetinn son til þess að allir þeir á hann trúa fyrirfærust eigi, heldur að þeir hafi eilíft líf. Því eigi sendi Guð son sinn í heiminn að hann fyrirdæmdi heiminn, heldur að heimurinn frelsist fyrir hann. Hver á hann trúir fyrirdæmist eigi, en hver hann trúir eigi, hann er nú þegar fyrirdæmdur því að hann trúir eigi á nafn eingetins Guðs sonar.
En þessi er fyrirdæmingin að ljósið kom í heiminn, og mennirnir elskuðu meir myrkrið en ljósið því að þeirra verk voru vond. Hver illa gjörir, sá hatar ljósið, hann kemur og eigi til ljóssins að eigi straffist hans verk. En hver sannleikinn gjörir, hann kemur til ljóssins svo að hans gjörðir verði kunnar því að þær eru í Guði gjörðar. Eftir þetta kemur Jesús og hans lærisveinar til Gyðingalands og dvaldist þar með þeim og skírði. Jóhannes var þar enn og skírði við Enon nærri Salim því að þar voru vötn mörg. Þeir komu þangað og skírðust því að Jóhannes var eigi enn innlátinn í myrkvastofu. En þá gjörðist ein spurning af lærisveinum Jóhannis við Gyðinga um skírsluna.
Þeir komu til Jóhannis og sögðu honum: Meistari, sá sem hjá þér var hinumegin Jórdanar, af hverjum þú bart vitni, sé, hann skírir nú, og allir koma til hans. Jóhannes svaraði og sagði: Maðurinn fær eigi meðtekið nokkuð nema honum verði það af himnum gefið. Þér eruð sjálfir mín vitni það eg sagða að eg væri eigi Kristur, heldur það að eg væra fyrir honum sendur. Því hver eð brúðina hefur, sá er brúðguminn, en vinur brúðgumans er sá sem stendur og hlýðir honum gleðjandist af fagnaði fyrir brúðgumans rödd. Minn fögnuður er nú upp fylltur. Honum ber að vaxa, en mér að minnka. Sá sem að ofan kemur, hann er yfir öllum. Hver hann er af jörðu, hann er jörð, og af jörðu talar hann.
En sá sem kemur af himni, hann er yfir öllum, og hvað hann sá og heyrði, það vitnar hann, og enginn tekur hans vitnisburð. En hver hann tekur hans vitnisburð, sá innsiglar það að Guð sé sannur. Því hvern þann sem Guð sendir, sá talar Guðs orð því að eigi gefur Guð sinn anda af skammti. Faðirinn elskar soninn, og allt gaf hann í hans hendur. Hver hann trúir á soninn, sá hefir eilíft líf, en hver hann er syninum aftrúa, hann mun eigi sjá lífið, heldur að Guðs reiði blífur yfir honum.