John · Chapter 4
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 47 of 174 · about 5 min
[ breyta] En þá Drottinn fornam að farísei höfðu heyrt það Jesús gjörði fleiri lærisveina og skírði en Jóhannes þótt Jesús skírði eigi sjálfur, heldur hans lærisveinar, þá forlét hann Gyðingaland og fór aftur til Galíleam. Honum byrjaði og að reisa um mitt Samaríam. Þá kom hann í eina samverska borg, þá Síkar heitir, nærri því akurlendi er Jakob gaf syni sínum Jósef, en þar var brunnur Jakobs. Sem Jesús var vorðinn vegmóður, þá sat hann á brunninum. Það var nær um séttu stund. Þá kemur þar ein samversk kona vatn að sækja. Jesús sagði til hennar: Gef þú mér að drekka, því hans lærisveinar voru inn gengnir í borgina að kaupa fæðslu.
Þá segir sú samverska kona svo til hans: Hverninn beiðir þú mig drykkjar þar þú ert einn Júði, en eg em ein samversk kona. Því að eigi samneytast Júðar samverskum mönnum. Jesús svaraði og sagði til hennar: Ef þú vissir Guðs gjöf og hver hann væri, sá þér segði: Gef mér að drekka, má vera að þú beiddir af honum og hann gefi þér lifanda vatn. Þá sagði konan við hann: Herra, þú hefir eigi það sem þú getur með ausið, en hátt er ofan í brunninn. Eða hvaðan hefir þú lifanda vatn? Eður ertu meiri föður vorum Jakob, sá eð gaf oss þennan brunn, hann sjálfur drakk af honum, synir hans, hjörð hans?
Jesús svaraði og sagði henni: Allir þeir sem drekka af þessu vatni, þá þyrstir aftur, en hver hann drekkur af því vatni sem eg mun gefa honum, hann skal eigi þyrsta eilíflega, heldur það vatn, sem eg mun gefa honum, skal verða í honum brunnur uppsprettanda vats til eilífs lífs. Konan sagði þá til hans: Herra, gef mér þetta vatn svo að mig þyrsti eigi og að eg komi eigi hingað til vatsaustrar. Jesús sagði til hennar: Far þú, kalla á mann þinn og kom svo hingað. Konan svaraði og sagði: Eigi hefi eg mann. Jesús sagði til hennar: Þú sagðir vel: Eigi hefi eg mann, því að fimm menn hefir þú haft, og þann þú hefir nú, er eigi þinn maður. Þetta sagðir þú satt.
Konan sagði til hans: Herra, eg sé að þú ert spámaður. Feður vorir hafa á þessu fjalli tilbeðið, en þér segið til Jerúsalem sé sá staður þar vær eigum til að biðja. Jesús sagði henni: Kona, trú þú mér. Sú stund kemur að hvorki á þessu fjalli né til Jerúsalem munu þér tilbiðja föðurinn. Þér tilbiðjið það þér vitið eigi. En vér vitum hvað vér tilbiðjum því að heillin er af Gyðingum. En sá tími kemur og er nú þegar nær að sannir tilbiðjendur munu tilbiðja föðurinn í anda og sannleika af því að faðirinn æskir slíkra er hann svo tilbiðja. Guð er andi, og hverjir hann tilbiðja, þeim heyrir í anda og sannleika að tilbiðja hann. Konan sagði til hans: Eg veit að Messías kemur, sá sem Kristur kallast.
Og nær hann kemur, þá mun hann undirvísa oss þetta allt. Jesús sagði henni: Eg em hann, sá sem við þig talar. Og í því bili komu hans lærisveinar og undruðust því hann talaði við konuna. Þó sagði enginn: Að hverju spyr þú? eður: Hvað mælir þú við hana? En konan skildist þar við sína skjólu og gekk inn í staðinn og sagði til þeirra manna: Komið og sjáið þann mann er mér sagði allt það eg hefi gjört, hvort að hann er eigi Kristur? Þá gengu þeir af staðnum og komu til hans. En þess á milli báðu hans lærisveinar og sögðu: Meistari, neyt þú. En hann sagði til þeirra: Eg hefi þá fæðu til að neyta, af hverri þér vitið ekki. Þá sögðu lærisveinarnir sín í millum: Eða hefir nokkur fært honum að eta?
Jesús sagði til þeirra: Minn matur er sá að eg gjöri hans vilja, þess mig hefur sent, að eg fullkomni svo hans verk. Segið þér eigi sjálfir að það eru enn fjórir mánuðir til kornskurðartíma? Sé, eg segi yður: Lyftið upp augum yðar og sjáið akurlöndin það þau hvítna nú þegar til kornskurðar. Og hver hann sár, sá tekur laun og safnar ávexti til eilífs lífs að sá sem sáir, samfagni þeim er upp vinnur. Því sannast hér það orðtak að annar sé sá sem sár, en annar sá sem upp vinnur. Eg sendi yður upp að vinna það þér erfiðuð ekki. Aðrir hafa erfiðað, en þér genguð inn í þeirra erfiði.
Margir samverskir menn af þeim sama stað trúðu á hann fyrir konunnar orð, það vitnandi að, -hann sagði mér allt hvað eg gjört hefi. En þá hinir samversku voru til hans komnir, báðu þeir hann að hann væri þar. Og hann var þar tvo daga. Og miklu fleiri trúðu fyrir hans orð. Þeir sögðu og svo til konunnar: Eigi trú vér fyrir þín orð því að vér sjálfir heyrðum og vitum að þessi er sannur lausnari heimsins.* En eftir tvo daga fór hann þaðan og reisti til Galíleam því að Jesús vitnaði það sjálfur að einn spámaður hafi eigi heiður á sinni föðurleifð.
Þá hann kom í Galíleam, meðtóku hann hinir galeisku menn sem séð höfðu allt það hann gjörði til Jerúsalem um hátíðardaginn því þeir höfðu og komið til hátíðardagsins. Hann kom og aftur til Kana í Galílea þar hann hafði gjört vatn að víni. Og þar var þá einn smákonungur, hvers sonur að lá sjúkur til Kaparnaum. Þá þessi heyrði það að Jesús var kominn af Gyðingalandi í Galíleam, fór hann til hans og bað hann að hann færi ofan og læknaði son hans því að hann væri að mestu látinn. Þá sagði Jesús til hans: Nema þér sjáið teikn og stórmerki, þá trúið þér eigi. Konungurinn sagði þá til hans: Herra, far ofan áður en sonur minn andast. Jesús sagði honum þá: Far þú, sonur þinn lifir.
En maðurinn trúði þeim orðum er Jesús sagði honum og gekk þaðan. En þá hann fór ofan eftir, gengu hans þénarar í móti honum og kunngjörðu honum segjandi að sonur hans lifði. Þá spurði hann þá að á hverjum tíma honum hafði batnað, og þeir sögðu honum að í gær um séttu stund hvarf frá honum kaldan. Þá fann faðirinn að það var um þann tíma, á hverjum Jesús sagði honum: Sonur þinn lifir. Hann trúði og allt hans hús. Þetta er að nýju annað það jarteikn Jesús gjörði þá hann kom af Gyðingalandi til Galíleam.