The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 48

John · Chapter 5

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 48 of 174 · about 12 min

← Chapter 47Chapter 49 →

[ breyta] Eftir það var hátíð Gyðinga, og Jesús fór upp til Jerúsalem. En í Jerúsalem hjá fjárhúsinu er vatsdíki sem kallast á ebresku Betesda, hafandi fimm forbyrgi. Í þeim lá mikill fjöldi sjúkra manna, blindra, haltra, visnaðra, bíðandi eftir vatsins hræring. En engill Drottins sté ofan í tilsettan tíma í díkið og hrærði upp vatnið. Og hver sem fyrstur sté ofan í díkið eftir vatsins hræring, sá varð heill af hverri sótt sem hann var haldinn. Þar var einn sá maður sem þrjátigi og átta ár hafði sjúkur verið. Þá Jesús leit þennan liggjanda og fornam að hann hafði langan tíma sjúkur verið, segir til hans: Viltu heilbrigður verða?

Hinn sjúki svaraði honum: Herra, eg hefi eigi þann mann, þá vatnið hrærist, að láti mig í díkið því nær eg kem að, þá stígur annar fyrr inn en eg. Jesús sagði til hans: Rís upp, tak sæng þína og gakk. Og strax varð sá maður heilbrigður og bar sína sæng og gekk þaðan. En á þeim degi var þvottdagur. Þá sögðu Gyðingar honum sem heilbrigður var orðinn: Það er þvottdagur. Eigi hæfir þér að bera sæng þína. Hann svaraði þeim: Sá mig heilan gjörði, hann sagði mér: Tak sæng þína og gakk. Þeir spurðu hann: Hver er sá maður er þér sagði: Tak sæng þína og gakk? En sá sem heilbrigður var vorðinn vissi eigi hver hann var því að Jesús hafði vikið sér afvega fyrst að svo mikill mannfjöldi var í þeim stað.

Eftir það hitti Jesús hann í musterinu og sagði til hans: Sé, nú ertu heill vorðinn. Syndga nú eigi oftar svo að þig hendi eigi annað verra. Sá maður fór og undirvísaði Gyðingum að Jesús væri sá sem hann hefði heilan gjört. * En fyrir það ofsóktu Gyðingar Jesúm og leituðust um að deyða hann af því að hann gjörði þetta á þvottdegi. Jesús svaraði þeim: Faðir minn verkar allt hegat til, eg verkar og. En fyrir þetta sóktu Gyðingar meir til að deyða hann því að hann braut eigi einasta þvottdaginn, heldur sagði hann og að Guð væri sinn faðir, gjörandi sig svo Guði jafnan.

Jesús svaraði og sagði til þeirra: Sannlega, sannlega segi eg yður að sonurinn fær ekkert af sjálfum sér gjört nema það hann sér föðurinn gjöra. Því að hvað helst hann gjörir, það gjörir og einninn sonurinn. Því faðirinn elskar soninn og sýnir honum allt það hann gjörir. Og enn mun hann sýna honum önnur verk þessum meiri svo þér munuð undrast. Því að svo sem faðirinn upp vekur dauða og lífgar, svo lífgar og sonurinn þá sem hann vill. Því eigi dæmir faðirinn nokkurn, heldur gaf hann syninum allan dóm að allir heiðri soninn svo sem þeir heiðra föðurinn. Hver hann heiðrar eigi soninn, sá heiðrar eigi föðurinn, sá sem hann sendi.

Sannlega, sannlega segi eg yður: Hver mín orð heyrir og trúir þeim sem sendi mig, sá hefir eilíft líf, og eigi kemur hann í dóm, heldur líður hann úr dauða til lífs. Sannlega, sannlega segi eg yður að sú stund kemur og er nú það dauðir munu heyra rödd Guðs sonar, og þeir sem heyra munu lifa. Því að líka sem faðirinn hefur lífið í sér sjálfum, svo gaf og hann syninum að hafa lífið í sjálfum sér. Hann gaf honum og vald til yfir að dæma af því að hann er mannsins sonur.

Eigi skulu þér undrast þetta því að sú stund kemur, á hverri að allir þeir, sem í gröfunum eru, skulu heyra rödd Guðs sonar, og þeir munu þá fram ganga sem gjörðu til lífsins upprisu, en þeir sem illa gjörðu í dóms upprisu. * Eigi fæ eg af mér sjálfum gjört nokkuð. Sem eg heyri, svo dæmi eg, og minn dómur er réttur því að eg leita eigi míns vilja, heldur hans vilja sem mig sendi. Ef eg ber mér sjálfum vitni, þá er mitt vitni ekki satt. Annar er sá sem af mér ber vitni, og eg veit að hans vitni er satt, það hann ber mér. Þér senduð til Jóhannis, og hann bar af sannleiknum vitni. En eg tek eigi vitni af mönnum, heldur segi eg yður þetta uppá það þér hjálpist.

Hann var skínanda og loganda ljós, en þér vilduð skamma stund gleðjast af hans ljósi. Eg hefi enn meira vitni en Jóhannes því að þau verk sem faðirinn gaf mér að eg fullkomni þau, því þau verk sem eg gjöri bera mér vitni það faðirinn hafi mig sent. Og faðirinn, sá sem mig sendi, hann sjálfur bar mér vitni. Eigi hafi þér nokkurn tíma heyrt hans rödd né séð hans ásýnd, og hans orð hafi þér eigi í yður blífandi því að þann hann sendi, honum trúið þér eigi. Rannsakið ritningarnar því að þér meinið í þeim að hafa eilíft líf. Og þær eru það, hverjar af mér bera vitni. Og eigi vilji þér koma til mín svo að þér hefðuð líf.

Eg tek öngva dýrð af mönnum af því eg kenni yður að þér hafið eigi Guðs ástsemd með yður. Eg kom í míns föðurs nafni, og þér meðtókuð mig eigi. Ef annar kemur í sínu eigin nafni, þann meðtakið þér. Hverninn megi þér trúa þar sem þér takið dýrð innbyrðis hver af öðrum, og þá dýrð sem af einum Guði er, hennar leiti þér eigi? Eigi skulu þér það meina að eg muni klaga yður fyrir föðurnum. Þar er sá sem yður klagar, Moyses, á hvern þér vonið. Ef þér tryðuð Moysi svo tryðuð þér og mér því að af mér skrifaði hann. Því ef þér trúið eigi hans skrifi, hverninn megi þér þá mínum orðum trúa? * Sétti kapítuli [ breyta] Eftir það fór Jesús burt yfir sjávarhaf Galílee til staðarins Tíberias.

Og mikill mannfjöldi fylgdi honum eftir af því að þeir sáu þau jarteikn er hann gjörði á sjúkum. Jesús gekk þá upp á eitt fjall og settist þar sjálfur meður sínum lærisveinum. Þá var og páskahátíð Gyðinga nálæg. Jesús hóf þá upp sín augu og sá að margt fólk dreif að honum. Sagði hann við Filippum: Hvar kaupum vér brauð það þessir neyti? En þetta sagði hann af því að hann vildi reyna hann því að hann vissi sjálfur hvað hann vildi gjöra. Filippus svaraði honum: Tvö hundruð peninga brauð nægjast þeim eigi þó að hver einn fái þá nokkuð lítið. Þá sagði honum einn af hans lærisveinum, Andrés, bróðir Símonar Petri: Hér er eitt ungmenni. Sá hefir fimm byggbrauð og tvo fiska.

En hvað skal þetta á meðal svo margra? Þá sagði Jesús: Látið mennina setjast niður. Þar var í þeim stað mikið gras. Þá settust þar niður karlmenn að tölu nær fimm þúsundum. Jesús tók brauðin og gjörði þakkir, fékk sínum lærisveinum, en lærisveinarnir fengu þeim sem niður höfðu sest, líka einninn af fiskunum svo mikið sem þeir vildu. En þá þeir voru mettir, sagði hann til sinna lærisveina. Safnið saman þær leifar sem af ganga svo ekki spillist. En þeir söfnuðu saman og fylltu upp tólf karfir meður þessar leifar af fimm byggbrauðum, hvert eð auk var þess sem þeir höfðu neytt.

Þá er þessir menn sáu það að Jesús gjörði þetta teikn, sögðu þeir: Þessi er sannlega sá spámaður sem í heiminn skal koma. * En þá Jesús fann það að þeir mundu koma að grípa hann og kjósa til konungs, flýði hann einn upp aftur á fjallið.* Að kveldi gengu hans lærisveinar ofan til sjávar, stigu þar á skip, og þá þeir komu yfir um þann sjó til Kaparnaum, var þegar myrkt vorðið. Jesús var þá eigi kominn til þeirra, en sjórinn tók að æsast upp af miklu veðri. Þeir höfðu þá róið svo nær sem fimm og tuttugu eður (xxx) skeiða. Þeir sáu þá Jesúm ganganda á sjónum og kominn nær skipinu. Þeir óttuðust þá, en hann sagði til þeirra: Eg em, óttist þér eigi.

Þá vildu þeir hafa tekið hann inn á skipið, og jafnsnart var skipið komið að því landi sem þeir fóru til. Annan dag eftir sá fólkið sem hinumegin sjávarins stóð að eigi var þar annað skip til nema það eina sem hans lærisveinar höfðu á stigið, og Jesús hafði eigi sjálfur stigið á það skip meður sínum lærisveinum, heldur voru hans lærisveinar einir af stað farnir. Þar komu og yfir um önnur skip frá Tíberias, hvar nærri er þeim stað sem þeir höfðu brauðin etið fyrir herrans þakkargjörð. Og þá er fólkið sá að Jesús var eigi þar og eigi heldur hans lærisveinar, steig það á skipin, komu til Kaparnaum og leituðu að Jesúm.

Og þá þeir höfðu fundið hann hinumegin sjávarins, sögðu þeir til hans: Rabbí, nær komt þú hingað? Jesús svaraði þeim og sagði: Sannlega, sannlega segi eg yður: Þér leitið mín eigi af því að þér sáuð teiknin, heldur af því að þér neyttuð af brauðunum og urðuð saddir. Verkið eigi þeirrar fæðu sem líst, heldur þeirrar sem stöðug blífur til eilífs lífs, hverja eð mannsins sonur mun gefa yður. Því að Guð faðir hefir hann innsiglað. Þá sögðu þeir til hans: Hvað skulu vér þá gjöra svo vér gjörum Guðs verk? Jesús svaraði og sagði þeim: Það eru Guðs verk að þér trúið á hann, þann hann sendi. Þá sögðu þeir til hans: Hvert gjörir þú fyrir teikn svo að vér sjáum og trúum þér, eður hvað gjörir þú?

Feður vorir átu himnabrauð í eyðimörku sem skrifað stendur: Hann gaf þeim að eta brauð af himni. Þá sagði Jesús til þeirra: Sannlega, sannlega segi eg yður að eigi gaf Moyses yður brauð af himni, heldur gefur faðir minn yður satt brauð af himni. Því að þetta er Guðs brauð það sem af himni sté ofan og heiminum gefur líf. Þeir sögðu þá við hann: Herra, gef þú oss jafnan þetta brauð. En Jesús sagði þeim þá: Eg em það lífs brauð. Hver hann kemur til mín, þann mun eigi hungra, og sá hann trúir á mig, hann mun aldregi þyrsta.* Eg sagða yður það þér hafið mig sénan og trúið þó eigi. Allt hvað faðirinn gefur mér, það kemur til mín, og hvern þann sem til mín kemur, hann mun eg eigi út reka.

Því að eg sté ofan af himni eigi upp á það að eg gjöri minn vilja, heldur hans vilja sem mig sendi. Þetta er föðursins vilji, þess mig senda að eg glati öngu af öllu því sem hann gaf mér, heldur skal eg upp vekja það á efsta degi. En það er míns föðurs vilji, þess mig sendi, að hver sá sem soninn sér og trúir á hann hafi eilíft líf, og eg mun upp vekja hann á efsta degi. Þá mögluðu Júðar yfir því það hann sagði: Eg em það brauð, hvert eð ofan sté af himni. Og þeir sögðu svo: Er eigi Jesús þessi sonur Jósefs, hvers að vér þekkjum bæði föður og móður? Hverninn segir hann þá það eg em ofan stiginn af himni? Jesús svaraði þeim: Möglið eigi innbyrðis.

Enginn fær til mín komið nema sá faðir, sem mig sendi, togi hann, og eg mun upp vekja hann á efsta degi. Svo er og skrifað á spámannabókum að þeir munu allir verða af Guði lærðir. Hver helst sem heyrir af föðurnum og lærir það, sá kemur til mín. Eigi það að nokkur hafi föðurinn sénan nema sá sem er af Guði, hann hefir séð föðurinn. Sannlega, sannlega þá segi eg yður að hver sem trúir á mig, hann hefir eilíft líf. Eg em lífsins brauð. Feður yðrir átu himnabrauð í eyðimörku og eru dauðir. Þessi er það brauð sem ofan sté af himni að hver sem etur af því, hann deyr eigi. Eg em það lifanda brauð sem af himni sté ofan. Hver sem etur af þessu brauði, sá lifir eilíflega.

Og það brauð, sem eg mun gefa, er mitt hold, hvert að eg mun út gefa heiminum til lífs.* Júðar þráttuðu þá sín á milli, svo segjandi: Hverninn fær þessi gefið oss sitt hold að eta? Jesús sagði til þeirra: Sannlega, sannlega segi eg yður: Nema ef þér etið hold mannsins sonar og drekkið hans blóð, þá hafi þér ekki lífið með yður. Hver hann etur mitt hold og drekkur mitt blóð, sá hefir eilíft líf, og eg mun upp vekja hann á efsta degi. Því að mitt hold er sönn fæða, og mitt blóð er sannur drykkur. Hver hann etur mitt hold og drekkur mitt blóð, sá blífur í mér og eg með honum.

Líka sem að mig sendi lifandi faðir og eg lifi sakir föðursins, svo og hver hann etur mig, sá mun og lifa fyrir mínar sakir. Þetta er það brauð sem ofan sté af himni. Eigi svo sem það er yðrir feður höfðu himnabrauð etið og eru dauðir. Hver hann etur þetta brauð, sá lifir að eilífu.* Þetta sagði hann kennandi í samkunduhúsinu til Kaparnaum. En margir af hans lærisveinum, sem þetta heyrðu, sögðu: Hörð er þessi ræða. Hver kann henni að heyra? En Jesús vissi meður sjálfum sér að hans lærisveinar mögluðu af þessu. Þá sagði hann til þeirra: Misþokkar yður þetta? Hvað mun þá ef þér sæjuð mannsins son upp stíga þangað sem hann var fyrrum. Andinn er sá eð lífgar, holdið er til einskis neytt.

Þau orð er eg tala fyrir yður, þau eru andi og líf. En nokkrir eru þeir af yður, hverjir eigi trúa. Því að Jesús vissi af upphafi hverjir eigi voru trúaðir og hver sá var er hann mundi svíkja. Og hann sagði: Fyrir því sagða eg yður það enginn fær til mín komið nema að honum sé það gefið af mínum föður. Eftir það gengu margir af hans lærisveinum aftur til baka og gengu eigi lengur þaðan af meður honum. Þá sagði Jesús til þeirra tólf: Vilji þér og frá ganga? En honum svaraði Símon Petrus: Herra, hvert skulu vær fara? Þú hefir orð eilífs lífs, vér trúum og kennum það þú ert Kristur, sonur Guðs lifanda. Jesús svaraði þeim: Hefi eg eigi útvalið yður tólf, og einn af yður er fjandi.

En hann sagði af Júdasi Símonssyni Ískaríot því að hann sveik hann þó að hann væri einn af tólf.

← Chapter 47Chapter 49 →