The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 49

John · Chapter 6

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 49 of 174 · about 11 min

← Chapter 48Chapter 50 →

[ breyta] Eftir þetta gekk Jesús um Galíleam því að hann vil eigi ganga um Júdeam af því að Gyðingar vildu helslá hann. Þá var og nálæg tjaldbúðarhátíð Gyðinga. Bræður hans sögðu þá til hans: Far þú héðan og gakk til Júðalands svo að þínir lærisveinar sjái þau verk eð þú gjörir. Því að sennilega gjörir enginn sá nokkuð leynilega sem sjálfur hann eftir leitar kunnur að verða. Ef þú gjörir það, þá opinbera þú sjálfan þig heiminum. Því hans bræður trúðu eigi á hann. Jesús sagði til þeirra: Minn tími er eigi enn kominn, yðar tími er jafnan reiðubúinn. Heimurinn fær yður eigi hatað, en mig hatar hann því að eg ber vitnisburð af honum það hans verk eru vond. Fari þér upp til hátíðardagsins.

Eg vil enn eigi fara upp til þessarar hátíðar því að minn tími er enn eigi upp fylltur. En þá hann hafði sagt þeim þetta, bleif hann samt í Galílea. Nú sem að hans bræður voru upp farnir, þá fór hann og sjálfur upp, eigi opinberlega heldur svo sem nokkur á laun. Júðar spurðu að honum um hátíðina og sögðu: Hvar er hann? Og mikill krytur var í lýðnum um hann því sumir sögðu: Góður er hann, en aðrir sögðu: Nei, að heldur leiði hann lýðinn afvega. Enginn talaði þó bert um hann fyrir hræðslu sakir við Gyðinga. En að hálfnaðri hátíðinni sté Jesús upp í musterið og lærði. Júðar undruðust, svo segjandi: Hverninn veit hann ritningarnar þar hann hefir þó eigi lært þær?

Jesús svaraði þeim og sagði: Minn lærdómur er eigi minn, heldur hans sem mig sendi. Ef sá er nokkur sem gjöra vill hans vilja, hann reynir hvort þessi lærdómur er af Guði eður hvort eg tala af mér sjálfum. Því hver sem af sjálfum sér talar, sá leitar sinnar eiginnar dýrðar, en hver hann leitar þess dýrðar sem hann sendi, sá er sannur, og ekkert ranglæti er með honum. Gaf Moyses yður eigi lög þó enginn yðar haldi lögin? Eður því sæki þér eftir að lífláta mig? Lýðurinn svaraði og sagði: Djöfulinn hefir þú. Hver sækir til að lífláta þig? Jesús svaraði og sagði: Eitt verk gjörða eg, og það undri þér allir.

Moyses gaf yður því umskurðarskírn, eigi það hún væri af Moyse komin, heldur af forfeðrunum, og þó umskeri þér manninn á þvottdegi. Nú ef maðurinn meðtekur umskurðarskírn á þvottdegi svo að eigi brjótist Moyses lögmál, en þér afvirðið þó fyrir mér það eg gjörða allan manninn heilan á þvottdegi. Þér skuluð eigi dæma eftir yfirlitum, heldur dæmið réttum dómi. Þá sögðu nokkrir af þeim sem voru af Jerúsalem: Er það ekki sá sem þeir sóktu til að lífláta? Sjáið, nú talar hann opinberlega, og enginn þeirra segir honum grand. Eða vita vorir höfðingjar það víst að þessi sé sannur Kristur? En vér vitum þó hvaðan þessi er. Þá Kristur kemur, veit enginn hvaðan hann er.

Þá kallaði Jesús í musterinu, lærandi og svo segjandi: Þér kennið mig og vitið hvaðan eg em. En eg kom eigi af sjálfum mér, heldur er hann sannorður, sá mig sendi, hvern þér þekkið eigi. Eg þekki hann vel því að eg em af honum, hann sjálfur sendi mig. Þá sóktu þeir til að grípa hann, en enginn lagði þó hendur á hann því að eigi var hans tími enn kominn. Margt af fólkinu trúði á hann * og sögðu: Þá Kristur kemur, mun hann nokkuð gjöra fleiri teikn en þessi gjörir? Þá faríseis heyrðu nú lýðinn krytja þetta um hann, þá sendu prestahöfðingjar og faríseis þénara út að þeir handtæki hann. Jesús sagði þá til þeirra: Litla stund em eg enn hjá yður, og þá fer eg til hans sem mig sendi.

Þér leitið mín og finnið mig eigi, og þar sem eg er, þangað fái þér eigi að koma. Þá sögðu Gyðingar sín á milli: Hvert vill hann fara svo að vér finnum hann eigi? Eður vill hann ganga í sundurdreifing heiðinna manna og læra þær heiðnar þjóðir? Hverninn er sú ræða sem hann sagði: Þér leitið mín og finnið eigi, og þar sem eg er, þangað fái þér eigi að koma? Á síðasta degi hinnar miklu hátíðar stóð Jesús upp og kallaði, svo segjandi: Ef nokkurn þyrstir, komi hann til mín og drekki. Hver hann trúir á mig (svo sem ritningin segir), af hans kviði skulu fram fljóta vötn hins lifanda vats. En þetta sagði hann af þeim anda, hvern þeir skyldu meðtaka sem á hann tryðu.

Því heilagur andi var þá eigi út gefinn af því að Jesús var enn eigi auglýstur. Og margir af lýðnum, sem heyrðu þessa hans ræðu, sögðu: Þessi er sannur spámaður. Aðrir sögðu: Hann er Kristur. En sumir sögðu: Skal Kristur nokkuð koma af Galílea? Segir eigi ritningin að Kristur komi af Davíðs sæði og úr kastalanum Betlehem þar sem Davíð var? Líka svo varð ein misgreining með fólkinu um hann. Nokkrir af þeim vildu hafa gripið hann, en enginn lagði þó hendur á hann. Þénararnir komu aftur til faríseis og prestahöfðingjanna, og þeir sögðu þá til þeirra: Því höfðu þér hann eigi hingað? Þénararnir svöruðu: Þar hefir aldri nokkur maður svo talað sem þessi maður.

Þá svöruðu faríseis þeim: Eða eru þér og villtir? Trúir nokkur höfðingjanna eður af faríseis á hann, heldur það fólk sem ekkert veit af lögmálinu og bölvað er? Níkódemus sagði þá til þeirra, sá sem kom til hans um nótt, hver eð einn var af þeim: Dæmir vort lögmál nokkuð manninn nema hann sé fyrri rannsakaður og sé vitað hvað hann gjörir? Þeir svöruðu og sögðu til hans: Eða ertu einn af Galíleis? Rannsaka þú ritningina og skoða það af Galílea mun ekki spámaður upp rísa. Og hver gekk heim til sinna húsa. * Áttandi kapítuli [ breyta] Jesús gekk þá í fjallið Oliveti. Og að morgni í dögun kom hann aftur í musterið, og allt fólkið kom til hans. Hann setti sig og lærði það.

En hinir lögklóku og farísear leiddu fram fyrir hann þá konu sem í hórdóm var fallin og settu hana þar í miðið, sögðu svo til hans: Meistari, þessi kona er nú fundin í hórdómi. En Moyses býður oss í lögmálinu að berja þess háttar menn grjóti. Eða hvað segir þú til? En þetta sögðu þeir af því þeir freistuðu hans að þeir mættu svo ákæra hann. En Jesús laut niður og páraði með fingrinum á jörðina. Og sem þeir létu eigi af að spyrja hann, þá rétti hann sig upp og sagði til þeirra: Hver yðar, sem er án syndar, kasti sá fyrstur steini á hana. Þá laut hann niður aftur og páraði á jörðina. Þá þeir heyrðu þetta, gekk einn eftir öðrum út, fyrstir þó öldungarnir.

Jesús var þá einn eftir og konan þar standandi mitt fyrir honum. En þá Jesús rétti sig upp og sá þar öngvan nema konuna, sagði hann til hennar: Kona, hvar eru þeir sem þig áklaga? Hefir nokkur fordæmt þig? En hún sagði: Herra, enginn. Jesús sagði henni þá: Eigi mun eg fordæma þig. Gakk héðan og syndga nú ei oftar héðan af. Jesús talaði enn aftur til þeirra, svo segjandi: Eg em ljós heimsins. Hver hann fylgir mér eftir, sá gengur eigi í myrkrunum, heldur hefir hann ljós lífsins. Þá sögðu farísei til hans: Þú ber vitni af sjálfum þér. Þinn vitnisburður er eigi sannur.

Jesús svaraði og sagði til þeirra: Ef eg ber af sjálfum mér vitni, þá er minn vitnisburður sannur því að eg veit hvaðan eg kom og hvert að eg fer. En þér vitið eigi hvaðan eg kom eður hvert eg fer. Þér dæmið eftir holdinu. Eg dæmi öngvan. En ef eg dæmi, þá er minn dómur réttur því að eg er eigi einn saman, heldur eg og sá faðir sem mig sendi. Svo er og skrifað í lögum yðar að tveggja manna vitnisburður sé sannur. Eg em sá sem af mér sjálfum ber vitni, og faðirinn, sá mig sendi, hann ber og af mér vitni. Þá sögðu þeir til hans: Hver er faðir þinn? Jesús svaraði: Eigi kenni þér mig né minn föður. Ef þér þekktuð mig, þá þekktu þér og minn föður.

Þessi orð talaði Jesús við ölmusukistuna þá hann kenndi í musterinu. Og enginn tók hann því að hans stund var enn eigi komin. * Þá sagði Jesús enn til þeirra: Eg fer, og þér leitið mín, og í synd yðvarri deyi þér. Hvert eg fer, þangað fái þér eigi að koma. Þá sögðu Gyðingar: Mun hann vilja drepa sjálfan sig það hann segir: Hvert að eg fer, þangað fái þér eigi að koma? Þá sagði hann þeim: Þér eruð hér neðan að, eg em að ofan. Þér eruð af þessum heimi, eg em eigi af þessum heimi. Því segði eg yður að þér mynduð deyja í syndum yðrum. Þá sögðu þeir til hans: Hver ert þú? Jesús sagði til þeirra: Það upphaf sem nú talar við yður.

Margt hefi eg að tala og dæma um yður, en sá mig sendi, hann er sannorður, og hvað eg heyrða af honum, það tala eg fyrir heiminum. En þeir skildu það eigi að hann sagði þeim af Guði föður. Þá sagði Jesús til þeirra: Nær þér upp hefjið mannsins son, þá skilji þér að eg sé hann, og af mér sjálfum gjöri eg ekkert, heldur það sem lærði mig minn faðir, það tala eg. Og sá er mig sendi, hann er meður mér. Og eigi lét hann mig einn saman því að eg gjöri jafnan það honum er þægt.* Þá hann talaði þetta, trúðu margir á hann. Þá sagði Jesús til þeirra Gyðinga sem á hann trúðu: Ef þér blífið við mína ræðu, þá eru þér mínir sannir lærisveinar, og þá þekki þér sannleikinn, og sannleikurinn mun yður frelsa.

Þá svöruðu þeir honum: Vér erum Abrahams sæði, og aldri höfum vér nokkrum þjónað. Hverninn segir þú það þér skuluð frjálsir verða. Jesús svaraði þeim og sagði: Sannlega, sannlega segi eg yður að hver helst sem syndina gjörir, hann er syndarinnar þræll. Þrællinn blífur eigi eilíflega í húsinu, en sonurinn blífur þar eilíflega. Nú ef sonurinn frelsar yður, þá eru þér réttlega frjálsir. Eg veit að þér eruð Abrahams synir. Þó sæki þér til að deyða mig því að mín ræða grípur öngvan stað hjá yður. Eg tala það sem eg séð hefi hjá mínum föður, og hvað þér sáuð hjá yðrum föður, það gjöri þér. Þeir svöruðu og sögðu til hans: Abraham er vor faðir.

Þá sagði Jesús þeim: Ef þér væruð Abrahams synir, þá gjörðu þér Abrahams verk. En nú leiti þér eftir að lífláta mig, þann mann þó sem sannleikinn talar fyrir yður. En þetta gjörði eigi Abraham. Þér gjörið yðars föðurs verk. Þá svöruðu þeir: Eigi erum vér í hórdómi bornir. Einn Guð höfum vér fyrir föður. Jesús sagði þá til þeirra: Ef Guð væri yðar faðir, þá elskuðu þér mig því að eg em af Guði kominn og fram stiginn. Því eigi kom eg af sjálfum mér, heldur sendi hann mig. Fyrir því þekki þér þá eigi mitt mál af því þér megið eigi heyra mína ræðu. Þér eruð af föðurnum fjanda, og girndum yðars föðurs þá vilji þér eftir fylgja.

Hann var einn morðingi þegar að upphafi, og eigi stóð hann í sannleiknum því að sannleikurinn er eigi með honum. Þá hann talar lygi, talar hann af sínu eigin því að hann er einn ljúgari svo og þess hlutar faðir. En eg af því eg segi sannleikinn, þá vilji þér mér eigi trúa. Hver yðar kann straffa mig af nokkurri synd? Nú ef eg segi sannleikinn, því trúi þér þá eigi á mig? Hver hann er af Guði, sá heyrir Guðs orð. Af því heyri þér eigi að þér eruð eigi af Guði. Þá svöruðu Júðar og sögðu honum: Segju vær eigi vel að þú ert samverskur og hefir djöfulinn? Jesús svaraði: Eigi hefi eg djöful, heldur vegsama eg föður minn, og þér vanheiðrið mig. En eg leita eigi að minni dýrð.

Sá er sem leitar og dæmir. Sannlega, sannlega segi eg yður: Ef nokkur er sá sem geymir mín orð, hann mun eigi sjá dauðann að eilífu. Þá sögðu Júðar við hann: Nú finnu vær að þú hefir djöfulinn. Abraham er dauður og spámennirnir, og þú segir: Ef nokkur er sá eð geymir mín orð að hann muni eigi smakka dauðann að eilífu. Eður ert þú meiri feður vorum Abraham, hver framliðinn er, og spámennirnir eru og framliðnir? Hvern gjörir þú sjálfan þig? Jesús svaraði: Ef eg vegsama mig sjálfur, þá er mín dýrð engin. Þar er minn faðir, sá mig vegsamar, hvern þér segið yðvarn Guð vera og þekkið hann þó eigi. En eg þekki hann.

Og ef eg segða það eg þekkti hann eigi, þá væri eg einn ljúgari líkur yður, heldur þekki eg hann og geymi hans orð. Abraham faðir yðar gladdist að hann skyldi sjá minn dag, og hann sá hann og varð glaður við. Þá sögðu Júðar til hans: Þú ert enn eigi fimmtugur, þó sátt þú Abraham. Jesús sagði til þeirra: Sannlega, sannlega segi eg yður: Áður en Abraham var, em eg. Þá tóku þeir upp steina að þeir köstuðu á hann. En Jesús forðaði sér og gekk úr musterinu. *

← Chapter 48Chapter 50 →