The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 50

John · Chapter 7

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 50 of 174 · about 4 min

← Chapter 49Chapter 51 →

[ breyta] Og þá eð Jesús gekk fram hjá, sá hann þann einn mann sem blindur var borinn. Hans lærisveinar spurðu hann þá að og sögðu: Rabbí, hvort braut þessi eður hans foreldrar að hann fæddist svo blindur? Jesús svaraði: Eigi braut þessi né hans foreldrar, heldur að Guðs verk skulu auglýsast á honum. Mér byrjar að verka hans verk, þess mig sendi, á meðan að dagur er. Nóttin kemur nær enginn fær verkað. Svo lengi sem eg er í veröldinni, þá em eg ljós veraldar. Þá hann hafði sagt þetta, spýtti hann á jörðina og gjörði sér hrákasaur og neri saurnum um augu hins blinda og sagði honum: Far þú til díkisins Sílóa, og hvað að þýðist sendur, og þvo þér. Þá gekk hann og þvó sér og kom sjáandi.

Þá sögðu nágrannar hans og þeir sem hann höfðu áður þekkt að hann var bónarmaður: Er það eigi sá sem sat og beiddi? Sumir sögðu: Hann er það. En aðrir sögðu: Líkur er hann honum. Hann sjálfur sagði: Eg em sá. Þeir sögðu þá við hann: Hverninn eru þín augu upp lokin? Hann svaraði og sagði: Sá maður, sem nefndist Jesús, gjörði sér saur og reið á mín augu, og hann sagði mér: Far þú til díkisins Sílóa og þvo þér. Eg gekk að þvo mér og fékk sýnina. Þeir sögðu til hans: Hver er hann? Hann sagði: Eg veit ekki. Þá leiddu þeir hann fyrir faríseos sem áður hafði blindur verið. En þá var þvottdagur er Jesús gjörði þann saurinn og opnaði hans augu.

Þá spurðu farísei hann enn að hverninn hann hefði sýnina fengið, en hann sagði þeim: Saur lagði hann á mín augu, eg þvó og nú sé eg. Þá sögðu sumir af faríseis: Eigi er þessi maður af Guði því að hann heldur eigi þvottdaginn. En aðrir sögðu: Hverninn má syndugur maður gjöra þvílík teikn? Og þar varð sundurþykkja þeirra á milli. Þá sögðu þeir enn til hins blinda: Hvað segir þú af honum því að hann opnaði þín augu? En hann sagði: Spámaður er hann. Gyðingar trúðu eigi af honum að hann hefði blindur verið og væri nú skyggn vorðinn þangað til þeir kölluðu á hans foreldra, sem sýnina hafði aftur fengið, og spurðu þau að, svo segjandi: Er hann ykkar son, hvern þér segið blindan borinn vera?

Eða hverninn sér hann nú? Hans foreldrar svöruðu þeim og sögðu: Við vitum að þessi er okkar sonur og það hann var blindur borinn. En með hverjum hætti hann sér nú, það vitum við ekki, eður hver hans augu opnaði, það vitu við og ekki. Hann hefir sjálfur aldur til að svara fyrir sig. Spyrjið hann að. Þetta sögðu hans feðgin, af því að þau óttuðust Gyðinga, því að Gyðingar höfðu þá þegar samblásið með sér það ef nokkur meðkenndi hann fyrir Kristum, að sá skyldi út rekinn af þeirra samkundum. Fyrir því sögðu hans feðgin að hann hefði aldur til, spyrjið hann að. Þá kölluðu þeir aftur í öðru sinni á þann mann sem blindur hafði verið og sögðu honum: Gef Guði heiðurinn.

Vér vitum að þessi maður er syndugur. Hann svaraði og sagði: Er hann syndugur? Það veit eg ekki. Eitt veit eg að eg var blindur og nú sé eg. Þeir sögðu þá enn til hans: Hvað gjörði hann þér? Eður hverninn lauk hann upp þínum augum? Hann svaraði þeim: Eg sagða yður það. Hafi þér ekki heyrt það? Til hvers vilji þér heyra það aftur? Eða vilji þér verða hans lærisveinar? Þá bölvuðu þeir honum og sögðu: Þú ert hans lærisveinn, en vær erum Moyses lærisveinar. Vér vitum að Guð talaði við Moyses, en vér vitum eigi hvaðan þessi er. Sjá maður svaraði og sagði þeim: Það er undarlegt að þér vitið eigi hvaðan hann er, og þó lauk hann upp mínum augum.

En vér vitum að Guð heyrir eigi synduga, heldur það ef nokkur er Guðs dýrkari og gjörir eftir hans vilja, þann heyrir hann. Um aldur hefir það eigi heyrt verið að nokkur hafi upp lokið þess manns augum sem blindur var borinn. Væri þessi maður eigi af Guði, þá mætti hann ekkert gjöra. Þá svöruðu þeir og sögðu til hans. Allur ert þú í synd alinn, og þú lærir oss. Og þá ráku þeir hann út. Þá Jesús heyrði það að þeir höfðu hann út rekið og er hann fann hann, þá sagði hann til hans: Trúir þú á Guðs son? Hann svaraði og sagði: Herra, hvar er hann það eg trúi á hann? Jesús sagði til hans: Þú sátt hann, og hann sem við þig talar, sá er hann. Hinn svaraði: Herra, eg trúi. Og hann tilbað hann.

Jesús sagði honum: Til dóms kom eg í þennan heim að þeir, sem eigi sjá, skyldu sjá og að þeir verði blindir sem sjá. * Og nokkrir af faríseis heyrðu þetta sem hjá honum voru og sögðu til hans: Eða eru vér þá blindir? Jesús sagði þeim: Ef þér væruð blindir, þá hefðu þér öngva synd. Nú fyrst þér segið: Vér sjáum, þá blífur yðar synd.

← Chapter 49Chapter 51 →