The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 6

Matthew · Chapter 6

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 6 of 174 · about 6 min

← Chapter 5Chapter 7 →

[ breyta] Eigi skulu þér dæma svo að þér verðið eigi dæmdir. Því að með hverjum dómi þér dæmið, munu þér dæmdir verða, og með hverri mælingu þér mælið, mun yður endurmælt verða. En hvað sér þú ögn í auga bróður þíns, og að þeim vagli, sem er í sjálfs þíns auga, gáir þú ekki? Eða hverninn dirfist þú að segja bróður þínum: Bróðir, leyf að eg dragi út ögnina af auga þínu? Og sjá, að vagl er þó í sjálfs þíns auga. Þú hræsnari, drag fyrst út vaglinn af þínu auga, og gef þá gætur að, að þú fáir út dregið ögnina af þíns bróðurs auga.

Eigi skulu þér gefa hundum hvað heilagt er, og varpið eigi heldur perlum yðar fyrir svín svo að eigi troði þau þær með fótum sér og að snúist þau og yður í sundur slíti. Biðjið, og mun yður gefast, leitið, og munu þér finna, knýið á, og mun fyrir yður upplokið. Því að hver eð biður, hann öðlast, hver eð leitar, hann finnur, og fyrir þeim, eð á knýr, mun upplokið. Eða hver er þann mann af yður, sá, ef sonurinn biður hann um brauð, að hann bjóði honum stein? Elligar, ef hann biður um fisk, að hann bjóði honum þá höggorm. Því ef þér, sem þó eru vondir, kunnið að gefa góðar gjafir sonum yðar, miklu meir mun yðar faðir, sá á himnum er, gefa þeim gott er hann biðja.

Því allt hvað þér viljið mennirnir gjöri yður, það skulu þér og þeim gjöra. Því að þetta er lögmálið og spámennirnir. Gangið inn um hið þröngva hlið. Því að það hlið er vítt, og sá vegur er breiður sem leiðir til fortöpunar, og þeir eru margir sem á honum reika. Og það port er þröngt, og sá vegur er mjór sem til lífs leiðir, og þeir eru fáir er hann rata. Vaktið yður fyrir falsspámönnum sem til yðar koma í klæðum sauðanna, en innra eru þeir glefsandi vargar. Af ávöxtum þeirra megi þér þá kenna. Verða nokkuð vínber saman lesin af þyrnum elligar fíkjur af þistlum? Svo man hvert gott tré gjöra góðan ávöxt, en hvert vont tré vondan ávöxt.

Gott tré getur eigi fært vondan ávöxt, og eigi heldur getur vont tré fært góðan ávöxt. Og hvert það tré, sem eigi færir góðan ávöxt, mun afhöggvið verða og í eld kastast. Fyrir því megi þér af þeirra ávöxtum þá kenna. Þeir munu eigi allir, sem til mín segja: Herra, herra, - innganga í Guðs ríki, heldur þeir sem gjöra vilja míns himneska föðurs. Margir munu til mín segja á þeim degi: Herra, herra, höfum vér eigi spáð í þínu nafni, höfu vær og eigi í þínu nafni djöfla út rekið? Og í þínu nafni gjörðu vær mörg kraftaverk. Og eg mun þá játa þeim að aldri þekkta eg yður.

Farið frá mér allir illgjörðarmenn.* Fyrir því, hver hann heyrir þessi mín orð og gjörir þau, þann mun eg líkja þeim vitrum manni sem byggði upp sitt hús yfir hellustein. Og er hríðviðri gjörði og vatsflóðið kom og vindar blésu og dundu að húsinu, og húsið féll eigi að heldur því að það var grundvallað yfir helluna. Og hver hann heyrir þessi mín orð og gjörir þau eigi, hann er líkur þeim fávísa manni sem upp byggði sitt hús á sandi. Og er þeysidögg gjörði og vatsflóð kom og vindar blésu og dundu að því húsi, og það hrapaði, og þess hrapan varð mikil.

Og það skeði þá Jesús hafði lyktað þessa sína ræðu að fólkinu ægði hans kenning því að hans predikan var voldug og eigi líka sem hinna skriftlærðra og faríseis. [Áttandi] kapítuli [ breyta] En er Jesús gekk ofan af fjallinu, fylgdi honum margt fólk eftir. Og sjá, að líkþrár maður kom, tilbað hann og sagði: Herra, ef þú vilt, getur þú mig hreinsað. Og Jesús útrétti höndina, snart hann og sagði: Eg vil, vert hreinn. Og jafnsnart varð hans líkþrá hrein.

Og Jesús sagði til hans: Sjá til að þú segir það eigi neinum, heldur far þú og sýn þig kennimanninum og oppra þína gáfu, þá er Móses bauð, til vitnisburðar yfir þeim.* En þá Jesús gekk inn í Kapernaum, kom til hans hundraðshöfðingi nokkur, biðjandi hann og sagði: Herra, þjón minn liggur kveisusjúkur heima og kvelst þunglega. Jesús sagði til hans: Eg vil koma og lækna hann. Höfðinginn svaraði og sagði: Lávarður, eg em eigi verðugur að þú gangir inn undir mitt þak, heldur seg þú eitt orð, og mun minn þjón heilbrigður verða.

Því að eg em maður höfðingjaskapnum undirgefinn, hafandi undir mér hernaðarsveina, og nær eg segi þessum: Far, fer hann, og öðrum: Kom þú, og hann kemur, og þræli mínum: Gjör þetta, og hann gjörir það. En þá Jesús heyrði það, undraðist hann og sagði til þeirra er honum eftir fylgdu: Sannlega segi eg yður að slíka trú hefi eg eigi fundið í Írael. En eg segi yður það margir munu koma af austri og af vestri og sitja með Abraham, Ísak og Jakob í himnaríki, en ríkisins synir verða út reknir í yðstu myrkur þar sem vera mun óp og tannagnístran. Og Jesús sagði til höfðingjans: Gakk héðan, verði þér eftir því þú trúðir.

Og hans þjón varð heill á þeirri sömu stundu.* Og þá Jesús kom í hús Péturs, leit hann að móðir konu hans lá haldin í köldu. Hann tók um hönd hennar, og kaldan forlét hana. Hún stóð upp og þjónaði honum. En er kvelda tók, færðu þeir marga djöfulóða til hans, og hann rak andana út með orðinu og læknaði þá alla er krankir voru svo að uppfylltist hvað sagt er fyrir Esaiam spámann: Hann hefir vor meinlæti upp á sig tekið, og vorar sóttir hefir hann borið.* En Jesús leit margt fólk kringum sig; bauð hann sínum lærisveinum að þeir færi yfir um hinumegin þess sjávar. Sé, og einn skrif lærður gekk að og sagði til hans: Meistari, eg vil fylgja þér hvert þú fer.

Jesús sagði til hans: Refar hafa holur og fuglar loftsins hreiður, en mannsins son hefir eigi hvar hann sitt höfuð að hneigi. En annar af hans lærisveinum sagði til hans: Lávarður, lofa mér fyrst að fara og greftra föður minn. Jesús sagði til hans: Fylg þú mér eftir, og lát þá dauðu greftra sína hina dauðu. Og er hann sté á skip, fylgdu hans lærisveinar honum eftir. Og sjá, að mikill ókyrrleiki gjörðist í sjónum svo að skipið huldist bylgjum. En hann svaf. Og hans lærisveinar gengu að honum og vöktu hann upp og sögðu: Herra, hjálpa þú oss, vær forgöngum. Hvað hræðist þér, lítiltrúaðir? Hann reis þá upp og hastaði á vindinn og sjóinn, og þá varð logn mikið.

En mennirnir undruðust og sögðu: Hvílíkur er þessi? Því að vindur og sjór eru honum hlýðnir.* Og er Jesús kom yfir um sjóinn í byggðir Gergesenimanna, hlupu tveir djöfulóðir í móti honum, komandi úr leiðum framliðinna, þeir eð mjög voru ólmir svo að enginn mátti um þann veg fara. Og sjá, að þeir kölluðu og sögðu: Hvað höfu vær með þig, þú Jesús Guðs sonur? Komtu hingað að kvelja oss áður tími er til? En þar var langt í burt frá þeim hjörð margra svína í gæslu. Djöflarnir báðu hann og sögðu: Ef þú rekur oss út héðan, þá leyf oss að fara í svínahjörðina. Og hann sagði til þeirra: Fari þér.

En þeir fóru út og hlupu í svínin, og sjá, að öll svínahjörðin fleygði sér með ös mikilli í sjóinn, og þau drekktust í vatninu. En hirðarnir flýðu og komu í borgina, kunngjörðu allt þetta og hvað þeim djöfulóðum hafði veist. Og sjá, að allur borgarmúgur gekk út í mót Jesú, og er þeir sáu hann, báðu þeir hann burt fara af sínum landamerkjum.

← Chapter 5Chapter 7 →