The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 51

John · Chapter 8

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 51 of 174 · about 4 min

← Chapter 50Chapter 52 →

[ breyta] Sannlega, sannlega segi eg yður: Hver hann gengur eigi inn um dyrnar í sauðahúsið, heldur stígur hann inn með öðrum hætti, sá er þjófur og spillvirki. En sá sem gengur inn um dyrnar, hann er hirðir sauðanna. Fyrir honum lýkur dyravörðurinn upp, og sauðirnir heyra hans rödd, og hann kallar sína sauði með nafni, leiðir þá og út. Og þá hann hefir sína sauði út látið, gengur hann frammi fyrir þeim, sauðirnir fylgja honum og eftir því að þeir þekkja hans rödd. En öðrum annarlegum fylgja þeir eigi eftir, heldur flýja þeir frá honum því að þeir kenna eigi annarlegra rödd. Þessa málsgrein talaði Jesús til þeirra, en þeir vissu eigi hvað hann sagði þeim.

Þá sagði Jesús enn aftur til þeirra: Sannlega, sannlega þá segi eg yður að eg em dyr sauðanna. Og allir hverjir helst fyrir mér komu, þeir eru þjófar og spillvirkjar, og sauðirnir hlýddu þeim eigi. Eg em dyrnar. Ef nokkur gengur inn um mig, sá mun frelsast. Hann mun og ganga út og inn, hann skal og finna sitt fóður. Þjófurinn kemur ei til annars en hann steli, drepi og fordjarfi. En eg em kominn til þess að þeir skyldu hafa líf og fulla nægð. * Eg em góður hirðir. Góður hirðir gefur sína önd út fyrir sína sauði. En leiguliðinn, sá eigi er hirðir og hvers sauðirnir eru eigi eiginlegir, sér hann úlfinn komanda, yfirgefur hann sauðina og flýr, en úlfurinn grípur og stökkvir sauðunum.

En leiguliðinn flýr af því að hann er leiguliði og gætir ekki sauðanna. Eg em góður hirðir, og eg þekki mína sauði, eg þekkjunst og af mínum svo sem að þekkir mig minn faðir, og eg þekki föðurinn. Og mína önd legg eg út fyrir mína sauði. Eg hefi og aðra sauði sem eigi eru af þessu sauðahúsi. Þá byrjar mér og hegat til að leiða, og þeir munu heyra mína rödd svo að það verði eitt sauðahús og einn hirðir. * Fyrir því elskar mig minn faðir að eg legg út önd mína, eg tek hana og aftur. Enginn tekur hana og af mér, heldur legg eg hana út af sjálfum mér. Eg hefi vald til hana af að leggja, eg hefi og vald til hana aftur að taka. Þetta boðorð fékk eg af mínum föður.

Þá varð enn sundurþykkja í millum Gyðinga fyrir sakir þessara orða. En margir af þeim sögðu: Djöfulinn hefir hann, og óður er hann. Til hvers heyri þér honum? Aðrir sögðu: Þessi orð eru einskis óðs manns. Eða fær djöfullinn blinds manns augum upp lokið? Þá gjörðist mustérisvígsla til Jerúsalem. Það var um vetur. Og Jesús gekk í musterinu í forbyrgi Salamonis. Þá umkringdu hann Júðar og sögðu til hans: Hversu lengi þá heldur þú vorri sálu upp? Ef þú ert Kristur, þá seg oss það berlega. Jesús svaraði þeim: Eg sagða yður það, en þér trúið eigi. Þau verk, er eg gjöri í míns föðurs nafni, bera vitni af mér, en þér trúið eigi því að þér eruð ei af mínum sauðum.

Svo sem eg sagða yður að mínir sauðir heyra mína rödd, eg þekki þá og þeir fylgja mér eftir. Og eg gef þeim eilíft líf, og eigi skulu þeir fyrirfarast að eilífu, enginn skal þá og grípa úr minni hendi. Faðir minn, sá eð mér gaf, hann er öllum meiri, og enginn fær gripið af míns föðurs hendi. Eg og faðirinn erum eitt. Þá tóku Gyðingar enn steina upp að grýta hann. Jesús svaraði þeim þá: Mörg góð verk sýndi eg yður af mínum föður. Fyrir hverra verka sakir þá vilji þér grýta mig? Gyðingar svöruðu honum þá, svo segjandi: Fyrir góð verk grýtu vér þig eigi, heldur fyrir þá guðlastan þar sem þú ert maður og gjörir þig sjálfan að Guði.

Jesús svaraði þeim: Er eigi svo skrifað í yðru lögmáli: Eg sagða það þér eruð guðir? Nú ef það kallar þá guði, til hverra Guðs orð eru skeð - og því ritningin má eigi rjúfast - en við þann, sem faðirinn helgaði og í heiminn sendi, þá segi þér: Þú guðlastar, af því eg sagða: Eg em sonur Guðs? Ef eg gjöri ekki míns föðurs verk, þá trúið mér ekki. Nú fyrst eg gjöri þau, þá trúið verkunum þó þér viljið mér ekki trúa svo að þér kennið og trúið það faðirinn sé meður mér og eg meður honum. Þá sóktu þeir enn til að grípa hann, en hann gekk út af þeirra höndum og fór aftur í þann stað hinumegin Jórdanar sem Jóhannes hafði áður skírt og var þar.

Margir komu til hans og sögðu: Jóhannes gjörði að vísu ekkert teikn, en allt hvað Jóhannes sagði af þessum, þá er satt. Og margir trúðu þar á hann.

← Chapter 50Chapter 52 →