The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 52

John · Chapter 9

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 52 of 174 · about 10 min

← Chapter 51Chapter 53 →

[ breyta] Þar lá einn sjúkur maður, Lasarus að nafni af Betanía í híbýlum Maríu og hennar systur Marte. En María var sú sem herrann hafði smurt meður smyrslum og þurrkað hans fætur með sínum hárlokkum, hverrar bróðir var sá Lasarus sem sjúkur lá. Systur hans senda þá til Jesú, svo segjandi: Herra, sjá nú, sá þú elskar, hann er nú sjúkur. Þá Jesús heyrði það, sagði hann þeim: Þessi sótt er eigi til dauða, heldur til Guðs dýrðar svo að Guðs sonur verði fyrir hana dýrkaður. En Jesús elskaði Martam og systur hennar Maríu og svo Lasarum. Þá hann hafði það heyrt að hann var sjúkur, bleif hann samt tvo daga í þeim stað sem hann var þá.

Eftir það talar hann til sinna lærisveina: Göngu vér aftur í Júdeam. Þá sögðu hans lærisveinar við hann: Rabbí, næst þá (xii) stundir á degi? Hver hann gengur um daginn, sá steytir sig eigi því að hann sér þessa heims ljós. En hver hann gengur um nætur, sá steytir sig því að þar er ekkert ljós í honum. Þetta mælti hann, og eftir það sagði hann til þeirra: Lasarus, vinur vor, hann sefur, en eg fer að vekja hann af svefni. Þá sögðu hans lærisveinar: Herra, ef hann sefur, þá batnar honum. Jesús talaði um hans dauða, en þeir ætluðu að hann mundi segja af eðlilegum svefni. Þá sagði Jesús þeim opinberlega: Lasarus er látinn, og eg fagna fyrir yðrar sakir það eg var eigi þar svo að þér trúið.

Og göngum nú til hans. Þá sagði Tómas, sem kallaðist tortrygginn, til lærisveinanna: Göngu vær til og deyjum með honum. Jesús kom og þá og fann það hann hafði fjóra daga í gröfinni legið. En Betanía lá hart nærri Jerúsalem, svo sem xv renniskeið. Margir Gyðingar voru þar komnir til Martam og Maríu að þeir hugguðu þær um lát bróður síns. Sem Marta heyrir að Jesús kemur, rennur hún í móti honum, en María sat heima. Þá sagði Marta við Jesúm: Herra, ef þú hefðir hér verið, þá væri bróðir minn eigi látinn. En eg veit að hvers þú beiðist af Guði, það gefur Guð þér. Jesús sagði til hennar: Bróðir þinn skal upp rísa. Marta sagði þá til hans: Eg veit að hann rís upp á efsta dags upprisu.

Jesús sagði við hana: Eg em upprisa og líf. Hver hann trúir á mig, sá mun lifa þótt nú væri dauður, og hver hann lifir og trúir á mig, sá skal eigi deyja að eilífu. Trúir þú þessu? Hún sagði þá til hans: Já, herra. Eg trúi að þú sért sá Kristur, sonur Guðs, sem í heiminn skyldi koma. Þá hún hafði þetta sagt, fór hún og kallaði Meistarinn er hér nær og kallar á þig. Þá hin heyrði það, stóð hún fljótt upp og kom til hans. Því að Jesús var enn eigi kominn til kastalans, heldur var hann enn í þeim stað sem Marta hafði í móti honum komið. En þeir Júðar, sem í húsinu voru og hana hugguðu, sáu það að hún stóð svo fljótt upp og gekk út.

Fylgdu þeir henni eftir og sögðu: Hún fer til grafarinnar að gráta þar. Þá María kom þangað sem Jesús var og hún leit hann, féll hún til fóta hans og sagði honum: Herra, ef þú hefðir hér verið, þá væri bróðir minn eigi látinn. Sem Jesús sá hana nú gráta og þá Gyðinga grátandi er með henni komu, byrstist hann við í sínum anda og hryggðist með sjálfum sér og sagði: Hvar hafi þér lagt hann? Þeir sögðu honum: Herra, kom og skoða. En þá tárfelldi Jesús. Þá sögðu Gyðingar: Sjáið, hversu kæran hann hefir haft hann. En aðrir af þeim sögðu: Mátti hann, sem opnaði blinds manns augu, eigi gjöra við því að þessi hefði ekki dáið?

Jesús sturlaðist þá enn með sjálfum sér, og þá kom hann til grafarinnar, en það var einn jarðmunni, steinn var þar og yfir lagður. Jesús sagði: Takið af steininn. Þá sagði Marta, systir hins dauða, til hans: Herra, hann lyktar nú því að hann er ferdagaður. Jesús sagði til hennar: Sagði eg þér ekki að ef þú tryðir, þá mundir þú sjá Guðs dýrð? Þá tóku þeir steininn ofan af þeim stað sem hinn dauði var í lagður. En Jesús hóf þá sín augu upp og sagði: Faðir, eg þakka þér það þú heyrðir mig, en eg veit þó að þú heyrir mig jafnan, heldur fyrir fólksins sakir sem hér stendur í kring, þá sagði eg það svo að það trúi því að þú sendir mig.

Þá hann hafði þetta sagt, kallaði hann hárri röddu: Lasari, kom þú út. Og þá strax kom sá út sem dauður hafði verið, reyrður með líkböndum að höndum og fótum, og um hans ásjón var sveipað meður sveitadúki. Jesús sagði til þeirra: Leysið hann, látið burt ganga. Margir af Gyðingum, sem komið höfðu til Mariam og sáu hvað Jesús gjörði, þá trúðu á hann. * En sumir af þeim gengu burt til faríseis og sögðu þeim hvað Jesús hafði gjört. Þá samtóku biskupar og farísei eitt ráð og sögðu: Hvað skulu vær til gjöra því að þessi maður gjörir mörg teikn? Ef vér sleppum honum svo, þá trúa allir á hann, og þá koma Rómverjar að taka vort land og lýði.

En einn af þeim, Kaífas að nafni, sá sem það sama ár var biskup, sagði til þeirra: Þér vitið ekkert og hugleiðið ekkert að betra er fyrir oss að einn maður deyi fyrir fólkið svo að eigi tapist allur lýður. En þetta sagði hann ei af sjálfum sér, heldur af því að hann var þess árs biskup. Þá spáði hann að Jesús skyldi deyja fyrir það fólk, eigi einasta fyrir það fólk, heldur það að hann safnaði í eitt þeim Guðs börnum er sundur voru dreifð. Og upp frá þeim degi samtóku þeir með sér að lífláta hann.

Jesús gekk eigi þaðan af berlega hjá Gyðingum, heldur fór hann burt í eitt byggðarlag nærri eyðimörku, í þá borg sem kallaðist Efrem, og þar dvaldist hann meður sínum lærisveinum. * En þá var páskahátíð Gyðinga nálæg, og margir úr þeirri sveit gengu upp til Jerúsalem fyrir páskana að hreinsa sig. Þeir stóðu og spurðu eftir Jesú og töluðu sín á millum í musterinu: Hvað sýnist yður það hann kemur eigi til hátíðardagsins?

En biskupar og faríseis gáfu út það boðorð að ef nokkur vissi hvar hann væri, þá skyldi undirvísa þeim svo að þeir mættu höndla hann. [Tólfti] kapítuli [ breyta] Sex dögum fyrir páska kom Jesús í Betaníam þar sem Lasarus hafði dauður verið, hvern eð Jesús hafði upp vakið af dauða. En þeir bjuggu honum þar eina kveldmáltíð, og Marta þjónaði. Lasarus var einn af þeim sem til borðsins sat með honum. Þá tók María eitt smyrslapund af hinu skærasta og dýrlegasta narden og smurði með fæturnar á Jesú og þurrkaði svo hans fætur meður sínum hárlokkum. Húsið fylltist og upp af ilm smyrslanna.

Þá sagði einn af hans lærisveinum, Júdas Símeonsson Ískaríot, sá er hann sveik þar eftir: Fyrir því eru þessi smyrsl eigi seld fyrir þrjú hundruð peninga og gefið fátækum? Þetta sagði hann eigi af því að hann hirti um fátæka, heldur af því að hann var þjófur og hafði fépyngjuna og bar það sem gefið var. Þá sagði Jesús: Lofa henni því þetta geymdi hún til míns greftrunardags. Volaða hafi þér jafnan hjá yður, en mig hafi þér eigi að jafnaði.

En er fjöldi mikill af Gyðingum fornam að hann var þar sjálfur, komu þeir ei einasta þangað fyrir Jesús sakir, heldur að þeir sæi Lasarum, þann sem hann hafði af dauða reist. * En prestahöfðingjar samtóku og það að láta í hel slá Lasarum því að fyrir hans sakir gengu margir af Gyðingum þangað og trúðu á Jesúm. Annan dag eftir þá eð lýðurinn heyrði sem til hátíðardagsins var kominn að Jesús kæmi til Jerúsalem, þá tóku þeir sér kvistu af pálmaviði og gengu út í móti honum og hrópuðu: Hósíanna. Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins, konungur Íraels. En Jesús fékk eina ösnu og reið þar á svo sem skrifað er: Óttast eigi, þú dóttir Síon. Sé, þinn konungur kemur ríðandi á einum ösnufola.

En þetta skildu eigi hans lærisveinar í fyrstu, heldur þá eð Jesús var auglýstur, þá hugleiddu þeir að þetta var af honum skrifað og þeir höfðu honum þetta gjört. En það fólk bar honum vitni sem hjá var þá hann kallaði Lasarum úr gröfinni og af dauða upp vakti. Af því gekk múgafólkið út í móti honum, það heyrði að hann hafði gjört sodant teikn. En farísei sögðu sín á milli: Þér sjáið nú að vér afrekum ekkert. Sjáið, að allur heimur fer eftir honum. Þar voru og nokkrir Grikkir meður þeim sem upp höfðu farið að tilbiðja um hátíðina. Þeir gengu til Filippo, hver eð var af Betsaida úr Galílea, báðu hann og sögðu: Herra, vér vildum fá að sjá Jesúm.

Filippus kom og sagði það Andrea, en Andreas og Filippus sögðu það Jesú. En Jesús ansaði þeim: Sá tími er nú kominn að sonur mannsins auglýsist. Sannlega, sannlega segi eg yður: Nema það að frækornið falli í jörðina og deyi, þá blífur það eitt saman. En ef það deyr, færir það mikinn ávöxt. Hver hann elskar sína önd, hann glatar henni, en hver hann hatar sína önd í þessum heimi, sá varðveitir hana til eilífs lífs. Ef nokkur vill mér þjóna, þá fylgi hann mér eftir, og hvar eg em, þar skal og minn þénari vera. Og ef nokkur þjónar mér, þá mun minn faðir hann heiðra.* Mín sála er nú hrygg, og hvað skal eg segja? Faðir, frelsa þú mig af þessum tíma. En fyrir því kom eg þó í þennan tíma.

Faðir, birt þú nafn þitt. Þá kom rödd af himni, svo segjandi: Eg hefi það upp birt, og eg skal það enn upp birta. Þá sagði fólkið sem hjá stóð og á heyrði: Þar urðu reiðarþrumur. Aðrir sögðu: Engill talaði við hann. Jesús svaraði og sagði: Eigi kom þessi rödd fyrir mínar sakir, heldur fyrir sakir yðar. Nú er kominn dómur þessa heims. Nú mun og þessa heims höfðingi út rekast. Og fyrst eg verð upp hafinn af jörðu, þá mun eg draga allt til míns sjálfs. En þetta sagði hann teiknandi með hverjum dauða eð hann skyldi deyja. Þá svaraði fólkið honum: Vér höfum heyrt úr lögunum að Kristur blífi að eilífu. Hverninn segir þú þá að mannsins syni byrjar upp að hefjast? Hver er sá mannsins sonur?

Þá sagði Jesús til þeirra: Ljósið er stutta stund hjá yður. Gangið því á meðan þér hafið ljósið svo að myrkrin höndli yður eigi. Því sá er gengur í myrkrunum, hann veit eigi hvert hann fer. Og á meðan þér hafið ljósið, þá trúið á ljósið upp á það þér séuð synir ljóssins. Þetta talaði Jesús og gekk burt síðan og huldi sig fyrir þeim. Þótt hann gjörði mörg teikn fyrir þeim, þá trúðu þeir þó eigi á hann svo að uppfylltist orðsaga Esæa spámanns, þá hann sagði: Herra, hver trúir vorri predikan, og hverjum er armleggur Drottins opinberaður?

Fyrir það máttu þeir eigi trúa að Esæas segir enn í öðrum stað: Alblindaði hann augu þeirra og ofherti hjörtu þeirra svo að þeir sæi eigi með augunum né skildu með hjartanu að þeir umsnúist svo eg græði þá. Þetta sagði Esæas þá hann leit hans dýrð og talaði af honum. Margir af höfðingjum trúðu einninn á hann, en fyrir sakir faríseis þá meðkenndu þeir það eigi svo að þeir væri eigi forboðaðir af samkomum því að þeir elskuðu meir vegsemd manna en Guðs dýrð. Jesús kallaði þá og sagði: Hver sem á mig trúir, hann trúir eigi á mig, heldur á hann sem mig sendi, en hver hann sér mig, hann sér þann sem mig sendi. Eg em ljós í heiminn kominn svo að hver sem á mig trúir, blífi eigi í myrkrunum.

Og ef nokkur heyrir mín orð og trúir eigi, hann mun eg eigi dæma því að eg kom eigi til að dæma heiminn, heldur að frelsa heiminn. Hver hann fyrirlítur mig og meðtekur eigi mín orð, hann hefir þann eð hann dæmir. Það orð sem eg talaði, það mun dæma hann á efsta degi. Því að eg talaði eigi af sjálfum mér, heldur faðirinn sá mig sendi, hann gaf mér sjálfur boðorð til hvað eg skyldi segja eður mæla, og eg veit að hans boðorð er eilíft líf. Það eg tala, það tala eg svo sem faðirinn sagði mér.

← Chapter 51Chapter 53 →