The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 53

John · Chapter 10

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 53 of 174 · about 4 min

← Chapter 52Chapter 54 →

[ breyta] Fyrir páskahátíðina, og Jesús vissi að hans tími var kominn að hann gengi úr þessum heimi til föðursins. Og líka sem hann elskaði sína þá er hér voru í heimi, svo elskaði hann þá og allt til enda. Og að gjörðri kveldmáltíðinni (því djöfullinn hafði þá þegar sent í hjarta Júdasar Símonssonar Ískaríot, að hann sviki hann) vissi Jesús það faðirinn hafði allt gefið honum í hendur og það að hann var af Guði út kominn og til Guðs færi hann. Stóð hann upp frá kveldmáltíðinni, lagði af sér klæðin og tók eitt línklæði, gyrti um sig. Eftir það hellti hann vatni í eina munnlaug og tók til að þvo fæturna á lærisveinunum og þurrkaði meður því línklæði er hann var með gyrtur.

Þá kom hann til Símonar Petri. En Pétur sagði til hans: Herra, átt þú að þvo á mér fætur? Jesús svaraði og sagði honum: Hvað eg gjöri, það veist þú nú eigi, en seinna veist þú það. Þá sagði Pétur til hans: Aldri um ævi skalt þú mína fætur þvo. Jesús svaraði honum: Ef eg skal eigi þvo þér, þá hefir þú ekki hlutdeild meður mér. Símon Petrus sagði þá: Herra, ei einasta fæturna, heldur jafnvel höfuð og hendur. Jesús sagði til hans: Sá þveginn er, hann þarf eigi að þvo nema fæturnar því hann er allur hreinn. Þér eruð og hreinir, en eigi allir. Því hann vissi fyrir hver sá var er hann mundi svíkja. Fyrir það sagði hann: Þér eruð ei allir hreinir.

En eftir það hann hafði þvegið fætur þeirra, tók hann sín klæði, settist niður aftur og sagði þá enn til þeirra: Viti þér hvað eg gjörða yður? Þér kallið mig meistara og herra, þér segið það og rétt því að eg er hann, og nú ef eg, herra og meistari, þvó yðra fætur, þá skulu þér og innbyrðis þvo hver annars fætur. Þetta gaf eg yður til eftirdæmis svo þér gjörið líka sem eg gjörða við yður. Sannlega, sannlega segi eg yður að þjóninn er eigi meir sínum herra né sendiboðinn æðri þeim er hann út sendi. Ef þér vitið þetta, þá eru þér sælir ef þér gjörið þetta. Eigi segi eg af yður öllum.

Eg veit hverja eg hefi út valið, heldur það að uppfyllist ritningin: Sá sem að etur brauð meður mér, hann treður mig undir fætur. Nú segi eg yður það áður en það sker svo að þér trúið þá það er skeð að eg em hann. Sannlega, sannlega þá segi eg yður: Hver hann meðtekur þann er eg sendi, sá meðtekur mig, en hver hann meðtekur mig, hann meðtekur þann sem mig sendi. Þá Jesús hafði þetta sagt, hryggðist hann í sínum anda, vottaði og sagði: Sannlega, sannlega segi eg yður það einn af yður mun forráða mig. Þá leit hver lærisveinanna til annars uggandi við af hverjum hann segði. En þar var einn af hans lærisveinum sem sat til borðsins í faðmi Jesú, hvern er Jesús elskaði mjög.

Honum benti Símon Petrus að hann spyrði hann hver sá væri er hann hefði til talað. Af því að hann lá þá á brjósti Jesú sagði hann til hans: Herra, hver er sá? Jesús svaraði: Sá er hann, að hverjum eg rétti vökvaðan brauðbita. Og þá hann vökvaði brauðið, gaf hann það Júdasi Símonssyni Ískaríot, og eftir þann bita fór andskotinn í hann. Þá sagði Jesús til hans: Hvað þú gjörir, þá gjör það snart. En enginn af þeim sem til borðsins sátu, vissi til hvers hann talaði. Sumir ætluðu það af því að Júdas hafði fépungana að Jesús mundi segja honum: Kaup þú það er oss gjörist þörf til hátíðardagsins, eða að hann gæfi nokkuð fátækum. Og þá hann hafði bitann tekið, gekk hann strax út, og þá var nótt.

En þá hann var út genginn, sagði Jesús: Nú er mannsins sonur auglýstur, og Guð er auglýstur með honum. Fyrst Guð er auglýstur með honum, þá mun Guð auglýsa hann í sjálfum sér, og snarlega mun hann auglýsa hann. Sonakorn mín, eg em enn litla stund hjá yður. Þér leitið mín, og líka sem eg sagði við Gyðinga: Hvert eg fer, þangað kunni þér eigi að koma, svo segi eg yður nú. Eitt nýtt boðorð þá gef eg yður að þér elskið hver annan. Líka sem eg elskaði yður, svo skulu þér og elskast innbyrðis, og af því kenna allir að þér eruð mínir lærisveinar ef þér hafið kærleikann yðar í milli. Símon Petrus segir til hans: Herra, hvert fer þú?

Jesús svaraði honum: Þangað sem eg fer, máttu nú að sinni eigi fylgja mér, en seinna meir þá muntu fylgja mér. Pétur segir til hans: Herra, því má eg nú ekki fylgja þér? Eg vil setja mitt líf út fyrir þig. Jesús svaraði honum: Hvað mundir þú setja þitt líf út fyrir mig? Sannlega, sannlega þá segi eg þér að haninn gelur ei áður en þú hefir neitað mér þrisvar.

← Chapter 52Chapter 54 →