The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 54

John · Chapter 11

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 54 of 174 · about 3 min

← Chapter 53Chapter 55 →

[ breyta] Þá sagði hann til sinna lærisveina: Hryggvist eigi í yðru hjarta. Trúi þér á Guð, þá trúið og á mig. Í míns föðurs húsi eru margar verur, en ef eigi svo væri, þá segði eg að eg færa að tilbúa yður staði. Og ef eg fer héðan að tilbúa yður stað, þá vil eg þó aftur koma og taka yður til mín sjálfs svo þér séuð þar sem eg er. Og hvert eg fer, það viti þér, og veginn viti þér. Tómas sagði til hans: Herra, vér vitum eigi hvert þú fer, eða hverninn megu vér þá veginn vita? Jesús sagði til hans: Eg em vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til míns föðurs nema fyrir mig. Því ef þér þekkið mig, þá þekki þér og minn föður, og nú héðan frá þá þekki þér og svo sáu þér hann.

Filippus sagði til hans: Herra, sýn oss föðurinn. Þá nægir oss. Jesús sagði þá til hans: Svo lengi em eg í hjá yður, og þú þekkir mig eigi, Filippe? Hver mig sér, sá sér og föðurinn. Og hverninn segir þú þá: Sýn oss föðurinn? Trúir þú eigi að eg em með föðurnum og faðirinn með mér? Þau orð er eg tala til yðar, þau tala eg eigi af sjálfum mér. Faðirinn, sá sem meður mér byggir, hann sjálfur gjörir þau verk. Trúið mér að eg sé með föðurnum og faðirinn meður mér. Ef eigi annars þá trúið mér þó fyrir verkanna sakir. Sannlega, sannlega segi eg yður: Hver hann trúir á mig, sá mun gjöra þau verk sem eg gjöri. Hann mun og gjöra þessum meiri því að eg fer til míns föðurs.

Og hvers þér biðjið föðurinn í mínu nafni, það vil eg gjöra svo að faðirinn dýrkist í syninum. Og hvers þér biðjið í mínu nafni, það vil eg gjöra. * Ef þér elskið mig, þá haldið mín boðorð. Og eg mun biðja föðurinn að hann gefi yður annan huggara, þann er blífur með yður eilíflega, þann sannleiksanda, hvern heimurinn fær eigi meðtekið því hann sér hann eigi og þekkir hann eigi. En þér þekkið hann því að hann blífur hjá yður og mun vera með yður. Eigi læt eg yður föðurlausa. Eg kem til yðar. Innan skamms tíma þá mun heimurinn ei sjá mig meir. En þér skuluð sjá mig því að eg lifi og þér munuð og lifa. Á þeim degi kenni þér að eg em með föðurnum og faðirinn með mér og eg með yður.

Hver hann hefir mín boðorð og heldur þau, hann er sá sem mig elskar. En hver hann elskar mig, sá elskast af mínum föður, og eg mun elska hann, eg mun og opinbera mig honum. Þá sagði Júdas eigi Skariot til hans: Herra, hvað verður þess gjört að þú munt vilja opinbera sjálfan þig fyrir oss, en eigi heiminum? Jesús svaraði og sagði til hans: Hver hann elskar mig, sá varðveitir mín orð, og minn faðir mun elska hann. Og við komum til hans og gjörum okkur í hjá honum vistarveru. En hver hann elskar eigi mig, sá varðveitir eigi mín orð. Og það orð, er þér heyrið, er eigi mitt, heldur föðursins, þess er mig sendi. Þetta * sagði eg yður á meðan eg var hjá yður.

En huggarinn, hinn heilagi andi, þann er minn faðir mun senda yður í mínu nafni, hann sjálfur mun læra yður alla hluti og áminna yður á allt það hvað eg sagða yður. Minn frið læt eg hjá yður, minn frið gef eg yður. Eigi svo sem heimurinn gefur, þá gef eg yður. Yðart hjarta hryggvist eigi né skelfist. Þér heyrðuð það eg sagða yður: Eg fer og kem til yðar. Ef þér elskuðuð mig, þá gleddust þér við það eg sagða: Eg fer til föðursins, því að faðirinn er mér meiri. Og nú sagði eg yður það fyrr en það sker svo að þér trúið þá það er skeð.

Hér eftir mun eg eigi tala margt við yður því að höfðingi þessa heims kemur og með mig hefur hann ekkert, heldur það að heimurinn kenni það eg elska föðurinn og það eg gjöri svo sem faðirinn hefir mér boðið. * Stöndum upp og göngum héðan.

← Chapter 53Chapter 55 →