The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 55

John · Chapter 12

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 55 of 174 · about 3 min

← Chapter 54Chapter 56 →

[ breyta] Eg em sannur vínviður, og minn faðir er víngarðsvörðurinn. Hvern þann kvist á mér, er eigi færir ávöxt, mun hann af kvista. Hvern þann, sem ávöxt færir, mun hann hreinsa svo að hann færi meira ávöxt. Þér eruð nú hreinir fyrir sakir þess orðs er eg talaði við yður. Blífið í mér og eg með yður. Líka sem vínkvisturinn fær eigi fært ávöxt af sjálfum sér nema hann sé á vínviðartrénu, svo og eigi heldur þér nema þér blífið á mér. Eg em vínviðartréið, en þér eruð vínviðarkvistirnir. Hver hann blífur í mér og eg meður honum, sá færir mikinn ávöxt því að án mín fái þér einskis orkað. Hver sá er eigi blífur í mér, hann er út kastaður sem annar vínviðarkvistur og uppþornar.

Og þeir saman lesa þá og kasta á eld og brenna. Nú ef þér blífið í mér og mín orð blífa í yður, biðjið þá hvers þér viljið, og það skal yður veitast. Því verður minn faðir dýrkaður að þér færið mikinn ávöxt og verðið mínir lærisveinar. Svo sem elskaði mig minn faðir, líka svo elska eg og yður. Blífið í minni ástsemd. Ef þér varðveitið mín boðorð, þá blífi þér í minni ástsemd, líka svo sem eg varðveiti míns föðurs boðorð, og eg blíf í hans ástsemd. Þetta tala eg því til yðar að minn fögnuður blífi hjá yður og yðar fögnuður uppfylltist. * Það er mitt boðorð að þér elskist yðar í milli svo sem eg elskaði yður. Enginn hefir meiri ástsemd en sá er hann setur sitt líf út fyrir sína vini.

Þér eruð mínir vinir ef þér gjörið það eg býð yður. Og héðan af kalla eg yður eigi þénara því að þjónninn veit eigi af hvað hans herra gjörir. En yður segi eg vini því að allt hvað eg heyrða af mínum föður það kunngjörða eg yður. Eigi útvöldu þér mig, heldur hefi eg útvalið yður. Og eg skikkaði yður til að þér genguð og færðuð ávöxt svo að yðar ávöxtur blifi til þess að hvers þér biðjið föðurinn í mínu nafni, þá gefi hann yður. Það býð eg yður að þér elskið hver annan. Ef heimurinn hatar yður, þá vitið að hann hefir hatað mig fyrri en yður. Ef þér væruð af þessum heimi, þá elskaði heimurinn það hans væri.

Því sennilega eruð þér eigi af heiminum, heldur útvalda eg yður úr heiminum, fyrir það hatar yður heimurinn. Minnist á mín orð er eg sagða: Þjóninn er eigi meiri sínum herra. Ef þeir hafa ofsókt mig, þá munu þeir og ofsækja yður. Hafa þeir geymt mín orð, þá munu þeir og geyma yðar orð. En allt þetta munu þeir gjöra yður fyrir míns nafns sakir því að þeir þekkja eigi hann, þann er mig sendi. Ef eg væri eigi kominn og hefði eigi sagt þeim það, þá hefði þeir öngva synd. Nú hafa þeir ekkert það þeir vernda sína synd með. Hver sem mig hatar, sá hatar og minn föður. Ef eg hefða eigi gjört þau verk á meðal þeirra sem enginn hefir annar gjört, þá hefðu þeir öngva synd.

En nú hafa þeir séð og hata þó bæði mig og minn föður, heldur það að sú málsgrein, sem skrifuð er í þeirra lögmáli, uppfylltist: Fyrir ekkert höfðu þeir mig að hatri. * En þá sá huggari kemur er eg mun senda yður af mínum föður sem er sannleiksandi, hver af föðurnum fram gengur, hann mun bera vitni af mér. Þér munuð og bera mér vitni því að þér hafið frá upphafi hjá mér verið.

← Chapter 54Chapter 56 →