The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 56

John · Chapter 13

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 56 of 174 · about 7 min

← Chapter 55Chapter 57 →

[ breyta] En þetta tala eg til yðar svo að þér blygðist eigi því þeir munu forboða yður. Og sá tími kemur að hver yður líflætur, hann meinar sig gjöra þægt verk Guði. Og þetta gjöra þeir yður af því að þeir þekkja hvorki föðurinn né mig. En þetta tala eg því til yðar að nær sú stund kemur, þá skulu þér minnast þar á því að eg sagða yður það. En þetta sagða eg yður eigi í upphafi því eg var hjá yður. * Og nú fer eg til hans sem mig sendi, og enginn yðar spyr mig að: Hvert fer þú? heldur að því eg talaði þetta til yðar, þá uppfylltist yðart hjarta af hryggð. En eg segi yður þó sannleikinn að það batar yður að eg fari héðan því að ef eg fer eigi héðan, þá kemur eigi huggarinn til yðar.

En ef eg fer héðan, þá mun eg senda hann til yðar. Og þá hann kemur, straffar hann heiminn fyrir synd og fyrir réttlæti og fyrir dóm, -fyrir syndina því þeir trúa eigi á mig, en fyrir réttlætið því að eg fer til föðursins, og þaðan af sjái þér mig eigi, en fyrir dóminn því að þessa heims höfðingi er dæmdur. Enn hefi eg margt að segja yður, en þér fáið eigi allt borið að sinni. Nær að kemur sá sannleiksandi, þá mun hann kenna yður allan sannleik því að eigi talar hann af sjálfum sér, heldur hvað hann heyrði, það talar hann, og hvað ókomið er, það kunngjörir hann yður. Hann sami mun og auglýsa mig því að af mínu mun hann það taka og kunngjöra yður. Allt hvað minn faðir hefur, það er mitt.

Fyrir því sagða eg að af mínu mun hann það taka og kunngjöra yður. * Og innan skamms þá munu þér eigi sjá mig, og enn aftur innan skamms þá munu þér sjá mig því að eg fer til föðursins. Þá sögðu hans lærisveinar sín á milli: Hvað er það að hann sagði oss: Innan skamms þá munu þér eigi sjá mig, og þá aftur innan skamms munu þér sjá mig því að eg fer til föðursins? Þá sögðu þeir: Hvað er það: Innan skamms? Vér vitum eigi hvað hann segir. Þá fornam Jesús að þeir vildu spyrja hann að og sagði til þeirra: Þér spyrjið að því yðar í milli: Innan skamms þá munu þér eigi sjá mig, og þá aftur innan skamms munu þér sjá mig.

Sannlega, sannlega segi eg yður: Þér munuð gráta og kveina, en heimurinn mun fagna. Þér verðið og hryggvir, en yðar hryggð skal snúast í fögnuð. Konan, nær hún skal fæða, þá hefir hún hryggð því að hennar stund er komin. En þá hún hefir barnið fætt, minnist hún eigi þess harmkvælis fyrir fagnaðar sakir því maður var í heiminn borinn. Þér hafið nú hryggð, en eg skal sjá yður aftur, og yðart hjarta skal fagna, og yðvarn fögnuð skal enginn af yður taka. Á þeim degi munu þér mig og einskis spyrja. * Sannlega, sannlega segi eg yður: Hvers þér biðjið föðurinn í mínu nafni, það mun hann gefa yður. Hingað til hafi þér einskis beðið í mínu nafni.

Biðjið, þá munu þér meðtaka svo að yðar fögnuður fullkomnist. Þetta hefi eg talað í orðskviðum til yðar. Sá tími kemur að eg tala eigi lengur orðskviði til yðar, heldur kunngjöri eg yður berlega af mínum föður. Á þeim degi munu þér og biðja í mínu nafni. Og eigi segi eg yður að eg muni biðja föðurinn fyrir yður því að sjálfur faðirinn elskar yður af því þér elskið mig og trúið það eg sé af Guði út genginn. Eg em af föðurnum út genginn og kominn í þennan heim. Eg fyrirlæt og aftur þennan heim og fer til föðursins. Hans lærisveinar segja þá til hans: Sé, nú talar þú berlega og mælir öngva orðskviðu. Nú vitum vær að þú veist alla luti, og þú þarft eigi að nokkur spyrji þig.

Fyrir það trúum vér að þú sért af Guði út genginn. * Jesús svaraði þeim: Nú trúi þér. Sjáið, sú stund kemur og er nú þegar komin að þér sundrist hver til sinna og látið mig einan saman. En eg er þó eigi einn saman því að faðirinn er með mér. Þetta tala eg því til yðar að þér hefðuð frið í mér því í heiminum hafi þér hörmung. En verið þó hughraustir því að eg yfirvann heiminn. Seytjándi kapítuli [ breyta] En þetta talaði Jesús og hóf upp sín augu til himins og sagði: Faðir, stundin er komin að þú auglýsir son þinn svo að þinn sonur auglýsi og þig svo sem þú gaft honum yfir vald alls holds að hann gefi þeim öllum er þú gaft honum eilíft líf.

En það er eilíft líf að þeir játi þig einan og sannan Guð vera og þann þú út sendir, Jesúm Krists. Eg auglýsti þig á jörðu og fullkomnaði það verk er þú fékkst mér að gjöra. Og nú auglýs þú mig faðir hjá sjálfum þér meður þeirri dýrð er eg hafða hjá þér áður en heimurinn var. Eg hefi opinberað nafn þitt fyrir mönnum þeim er þú gaft mér af heiminum. Þeir voru þínir, og þú gaft mér þá, og þeir geymdu þín orð. Nú vita þeir að allt, hvað þú gaft mér, sé af þér því að þau orð er þú gaft mér, þá gaf eg þeim. Og þeir hafa þau meðtekið og sennilega viðurkennt það eg em af þér út genginn og trúa því að þú sendir mig. Eg bið fyrir þeim.

Eigi bið eg fyrir heiminum, heldur fyrir þeim, hverja þú gaft mér því að þeir eru þínir, og hvað mitt er, það er þitt, og hvað þitt er, það er mitt, og í þeim er eg auglýstur. Og eigi em eg nú meir í heiminum, en þeir eru í heiminum, og eg kem til þín. Heilagur faðir, geym þá í þínu nafni, hverja þú gaft mér, að þeir sé eitt svo sem við. Á meðan eg var hjá þeim í heiminum, þá geymdi eg þá í þínu nafni, hverja þú gaft mér, þá varðveitti eg, og enginn af þeim er glataður nema sá einn glatanar sonur svo að ritningin uppfylltist. En eg kem nú til þín, og þetta tala eg í heiminum svo að þeir hafi minn fullan fögnuð meður sjálfum sér.

Eg gaf þeim mín orð, og heimurinn hatar þá því að þeir eru eigi af heiminum, líka sem það að eg er eigi af heiminum. Eg bið eigi að þú takir þá af heiminum, heldur að þú geymir þá frá illu. Þeir eru eigi af heiminum svo sem að eg er eigi af heiminum. Helga þú þá í þínum sannleik. Þín orð eru sannleikur. Líka sem þú sendir mig í heiminn, svo sendi eg þá í heiminn, og fyrir þá helga eg sjálfan mig svo að þeir sé og helgaðir í sannleiknum. Eg bið eigi einasta fyrir þeim, heldur og jafnvel fyrir þeim sem trúa munu á mig fyrir þeirra orð svo að þeir sé allir eitt, svo sem þú, faðir, ert meður mér og eg meður þér að þeir séu og eitt með okkur svo að heimurinn trúi það þú sendir mig.

Og þá dýrð sem þú gaft mér, þá gaf eg þeim að þeir séu og eitt svo sem að vér erum eitt, eg með þeim og þú með mér, svo að þeir sé fullkomnir í eitt og það að heimurinn kenni að þú sendir mig og það þú elskaðir þá svo sem þú elskaðir mig. Faðir, hverja er þú gaft mér (vil eg) að hvar sem eg er, þá sé þeir meður mér svo þeir sjái mína dýrð, þá þú gaft mér því að þú elskaðir mig fyrr en heimurinn var skapaður. Réttvísi faðir, heimurinn kennir þig eigi, en eg kenni þig, og þessir kenna það þú sendir mig. Og þitt nafn gjörða eg þeim kunnigt, og eg vil gjöra þeim það kunnigt svo að sú ástsemd, með hverri þú elskaðir mig, sé í þeim og eg meður þeim.

← Chapter 55Chapter 57 →