John · Chapter 14
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 57 of 174 · about 4 min
[ breyta] Þá Jesús hafði nú þetta talað, gekk hann út með sína lærisveina yfir um lækinn Kedron þangað sem einn grasgarður var. Og Jesús gekk þar inn með sína lærisveina. En Júdas, sá er hann sveik, vissi og þennan stað því að oft kom Jesús þangað með sína lærisveina. Þá Júdas hafði nú til sín tekið flokk manna og einninn af biskupanna og faríseis þénurum, kom hann þangað meður lyktum logbröndum og hervopnum. Nú því að Jesús vissi allt hvað yfir hann átti að koma, þá gekk hann fram og sagði til þeirra: Að hverjum spyrji þér? Þeir svöruðu honum: Að Jesú af Nasaret. Þá sagði Jesús til þeirra: Eg em hann. En Júdas, sá er hann seldi, stóð þar hjá þeim.
Og þá er Jesús sagði það til þeirra: Eg em hann, hörfuðu þeir á bak aftur og duttu til jarðar. Hann spurði þá enn aftur að: Að hverjum spyrji þér? En þeir sögðu: Að Jesú hinum naðverska. Jesús svaraði: Eg sagða yður það eg er hann. Og ef þér spyrjið að mér, þá leyfið þessum burt að ganga, svo að uppfylltist það orð er hann sagði: Öngum glataði eg af þeim sem þú gaft mér. Símon Petrus hafði hjá sér eitt sverð, dró það út og sló til eins biskupsþénara og hjó af hans hægra eyra. En þénarinn hét Malkus að nafni. Þá sagði Jesús til Péturs: Stiktu þínu sverði í slíðrir. Skal eg eigi drekka þann kalek sem mér gaf minn faðir?
En flokkurinn og hershöfðinginn og Gyðingaþénarar höndluðu Jesúm, bundu hann og leiddu fyrst burt til Annas (er var mágur Kaífas), sá er þá var þess árs biskup. En Kaífas var sá er Gyðingum gaf það ráð að betur færi það einn maður dæi fyrir lýðinn. Símon Petrus fylgdi Jesú eftir. Og enn annar lærisveinn var kunnigur biskupinum og gekk inn með Jesú í biskupsins herbergi, en Pétur stóð fyrir dyrum úti. Þá gekk út hinn annar lærisveinn sem biskupinum var kunnigur og talaði við hana er dyrnar geymdi og leiddi Petrum inn. Þá sagði ambáttin, sú dyrnar geymdi, til Péturs: Ert þú eigi einn af þess manns lærisveinum? Hann sagði: Eigi er eg.
En þénarar og undirmenn stóðu við eldsglæður og vermdu sig því að kuldi var. Pétur stóð þar hjá þeim og vermdi sig. Biskupinn spurði Jesúm þá að um hans lærisveina og um hans kenning. Jesús svaraði honum: Eg hefi opinberlega talað fyrir heiminum. Eg kenndi og jafnan í samkunduhúsum og í musterinu þar sem allir Gyðingar komu saman, og á laun hefi eg ekkert talað. Því spyr þú mig þar að? Spyr þú þá þar að sem heyrt hafa hvað eg hefi talað fyrir þeim. Sjá, þeir vita hvað eg hefi sagt. En sem hann sagði þetta, þá gaf einn þeirra þénaranna sem nær stóð Jesú pústur og sagði: Skalt þú svo svara biskupinum?
Jesús svaraði: Ef eg talaði illa, þá vitna þú það vont vera, en ef eg talaði satt, því slær þú mig þá? Og Annas sendi hann þá bundinn til Kaífam biskups. Og er Símon Petrus stóð þar og vermdi sig, þá töluðu þeir til hans: Ert þú eigi einn af hans lærisveinum? Hann neitaði og sagði: Eigi er eg. Þá sagði honum einn af biskupsins þénurum, frændi hins sem Pétur hjó eyrað af: Sá eg þig eigi í grasgarðinum hjá honum? Þá neitaði Pétur því enn einu sinni, og þá strax gól haninn. Þá leiddu þeir Jesúm frá Kaífas og í þinghúsið, en það var snemma morguns. Og þeir gengu eigi sjálfir inn í þinghúsið að þeir saurguðust ekki, heldur svo þeir mætti neyta páskanna.
Pílatus gekk þá út til þeirra og sagði: Hverja ákæru færi þér í gegn þessum manni? Þeir svöruðu og sögðu til hans: Ef þessi væri eigi illræðismaður, þá hefðu vér eigi selt þér hann. Þá sagði Pílatus til þeirra: Taki þér hann þá og dæmið eftir yðrum lögum. Gyðingar sögðu þá til hans: Eigi hæfir oss að lífláta nokkurn svo að það orð uppfylltist er hann sagði, teiknandi til með hverjum dauða hann ætti að deyja. Pílatus gekk þá inn aftur í þinghúsið, kallaði á Jesúm og sagði til hans: Ert þú Gyðingakonungur? Jesús svaraði: Talar þú það af sjálfum þér eða hafa aðrir sagt þér frá mér? Þá svaraði Pílatus: Er eg nokkuð Gyðingur? Þín þjóð og biskuparnir seldu þig mér. Hvað gjörðir þú?
Jesús svaraði: Mitt ríki er eigi af þessum heimi. Ef að mitt ríki væri af þessum heimi, þá mundi mínir þénarar stríða í mót svo að eg seldist eigi Gyðingum. En nú er mitt ríki eigi héðan. Þá sagði Pílatus til hans: Þá ert þú þó konungur? Jesús svaraði: Þú segir það. Eg em og konungur. Til þess em eg fæddur og til þess em eg í heiminn kominn að eg beri vitni sannleiknum. Og allir sem eru af sannleiknum, þeir heyra mína rödd. Pílatus sagði til hans: Hvað er sannleikur? Og þá hann hafði þetta sagt, gekk hann út aftur til Gyðinga og sagði til þeirra: Eg finn öngva sök með honum. En það er yðar siðvenja að eg gefi yður einn lausan á páskum.
Vilji þér að eg gefi yður nú lausan sjálfan Gyðingakonunginn? Þá kölluðu allir aftur í móti, segjandi: Eigi þennan, heldur Barrabam. En Barrabas var spillvirki.