John · Chapter 15
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 58 of 174 · about 11 min
[ breyta] Pílatus tók þá Jesúm og lét strýkja. Stríðsmenn fléttuðu kórónu af þyrnum og settu á hans höfuð, færðu hann og í purpuraklæði og sögðu: Heill sértu, konungur Gyðinga, og gáfu honum pústra. Þá gekk Pílatus út aftur og sagði til þeirra: Sjáið, eg leiði hann nú út til yðar svo að þér vitið það eg finn öngva sök með honum. Þá gekk Jesús út, berandi þyrnikórónu og eitt purpuraklæði. Og hann sagði til þeirra: Sjáið manninn. Þá er biskuparnir og þénararnir sáu hann, kölluðu þeir, svo segjandi: Krossfestið, krossfestið. Pílatus sagði til þeirra: Taki þér hann og krossfestið því að eg finn öngva sök með honum.
Þá svöruðu honum Gyðingar: Vér höfum lög, og eftir vorum lögum skal hann deyja því að hann gjörði sig að Guðs syni. Þá Pílatus heyrði þessi orð, óttaðist hann enn meir og gekk inn aftur í þinghúsið og sagði til Jesú: Hvaðan ert þú? En Jesús gaf honum eigi svar. Þá sagði Pílatus til hans: Talar þú eigi við mig? Veist þú eigi að eg hefi vald til að láta krossfesta þig og eg hefi vald til að gefa þig lausan? Jesús svaraði: Eigi hefðir þú nokkuð vald yfir mér nema þér væri það gefið hér ofan að. Fyrir því hefir sá meiri synd er mig selda þér. Og eftir það leitaði Pílatus við að láta hann lausan. En Gyðingar hrópuðu og sögðu: Ef þú lætur þennan lausan, þá ert þú ekki keisarans vinur.
Því að hver sem sig gjörir konung, hann mælir í móti keisaranum. Þá Pílatus heyrði þessi orð, leiddi hann Jesúm út og setti sig á dómstól í þeim stað sem kallaðist Hávi flötur, en á ebresku Gabbata. En það var á aðfangadegi páska, nærri séttu stund. Þá segir hann og til Gyðinga: Sjáið konung yðvarn. En þeir kölluðu: Taki burt. Krossfestu hann. Pílatus sagði til þeirra: Skal eg krossfesta konung yðvarn? Þá svöruðu biskuparnir: Öngvan höfu vær konung nema keisarann. Þá seldi hann þeim hann að hann krossfestist. Þá tóku þeir Jesúm og leiddu hann þaðan.
Hann sjálfur bar sinn kross og gekk út í þann stað sem kallaðist Höfuðskeljarstaður, en á ebresku Golgata, hvar þeir krossfestu hann og tvo aðra með honum, sinn til hvorrar handar, en Jesúm í miðið. Pílatus skrifaði eina yfirskrift og setti hana upp yfir krossinum. En svo var skrifað: Jesús af Naðaret, Gyðingakonungur. Þessa yfirskrift lásu margir af Gyðingum því að sá staður var nærri borginni er Jesús var krossfestur á, en það var skrifað á ebresku, girsku og latínu. Þá sögðu biskupar Gyðinga við Pílatum: Skrifa þú eigi konung Gyðinga, heldur það hann hefði sagt: Eg em konungur Gyðinga. Pílatus svaraði: Hvað eg skrifaði, það hefi eg skrifað.
Þá stríðsmenn höfðu krossfest Jesúm, tóku þeir hans klæðnað og gjörðu á fjögra hluta skipti, sérhverjum stríðsmanni sinn hlut, og þar með kyrtilinn. En kyrtillinn var eigi saumaður, heldur frá ofanverðu allur ofinn. Þá töluðu þeir sín á milli: Skeru vær hann eigi, hlutumst heldur um eð hvers hann skal vera, svo að ritningin uppfylltist er segir: Þeir skiptu sér klæðum mínum, og á mitt fat þá lögðu þeir hlutkesti. Og þetta gjörðu nú stríðsmennirnir. En þar stóðu við krossinn hjá Jesú móðir hans og móðirsystir hans, María, húsfrú Kleófas, og María Magdalena. Þá Jesús sá nú sína móður og þann lærisvein nær standanda er hann elskaði, segir hann til sinnar móður: Kona, sjá þú, þar er þinn sonur.
Eftir það segir hann til lærisveinsins: Sé, það er þín móðir. Og upp frá þeirri stundu tók lærisveinninn hana að sér. Eftir það þá Jesús vissi að allt var nú fullkomnað og að ritningin uppfylltist, þá segir hann: Þyrstir mig. Þar var sett eitt ker fullt af ediki. En þeir tóku og fylltu einn njarðarvött með edik og lögðu í ýsóp, settu síðan fyrir munn honum. En þá Jesús hafði edikið til sín tekið, sagði hann: Fullkomnað er. Og að hneigðu höfði, þá lét hann sinn anda. En af því að tilfangadagur Gyðinga var og að líkamarnir væri eigi á krossunum um þvottdaginn, því að það var hinn mikli dagur þvottdagshelginnar, þá báðu þeir Pílatum að þeirra bein brytust og í burt tækjust.
Þá komu stríðsmenn og brutu sundur bein hins fyrra og svo þess annars sem með honum var krossfestur. En þá þeir komu til Jesú, sáu hann nú dauðan, þá brutu þeir eigi hans bein, heldur lagði einn af stríðsmönnum í hans síðu með spjóti, og strax þá rann út blóð og vatn. Og sá er það hefir séð, ber þar vitni um, og hans vitnisburður er réttur, og hann sami veit það að hann segir satt svo að þér tryðuð. Því að þetta var og gjört svo að ritningin uppfylltist: Eigi skulu þér brjóta nokkuð hans bein. Og enn aftur segir önnur ritning: Þeir munu sjá þann í hvern þeir stungu.
En eftir þetta bað Jósef af Arímaþea (hver eð var lærisveinn Jesú, þó heimuglegur fyrir ótta sakir við Gyðinga) Pílatum um að hann mætti taka burt líkama Jesú. Það leyfði og Pílatus. Þar kom og Nikódemus, sá er fyrri kom um nótt til Jesú, færandi samblandaða myrru við alóe, nær hundrað punda. Þá tóku þeir líkama Jesú og sveipuðu í líni með ilmandi smyrslum svo sem siður er til Gyðinga að greftra. En þar í þeim stað, sem hann var krossfestur, var grasgarður, og í grasgarðinum var ný steinþró, í hverja að enginn hafði enn verið lagður.
Þangað lögðu þeir Jesúm fyrir sakir aðfangadags Gyðinga því að sú gröf var svo nær. xx. kapítuli [ breyta] Á einum þvottdeginum þá kemur María Magdalena snemma, þá að enn var myrkur, til grafarinnar, og sér að steinninn er burt tekinn af gröfinni. Þá hleypur hún og kemur til Símonar Petrus og til hins annars lærisveins, þann er Jesús elskaði, og segir til þeirra: Þeir hafa tekið burt herrann úr gröfinni, og vér vitum eigi hvar þeir hafa lagt hann. Þá gekk Pétur út og hinn annar lærisveinn og komu til grafarinnar. En þau tvö hlupu jafnt því hinn annar lærisveinn hljóp vakrara fram en Pétur og kom fyrst til grafarinnar.
Og er hann laut niður, þá sá hann línlökin lögð þar, en þá gekk hann eigi inn. Þá kemur Símon Petrus eftir honum, stígur í gröfina og sér að línlökin eru lögð þar og þann sveitadúk, er var um hans höfuð, eigi lagðan með línlökunum, heldur sérdeilis saman undinn í einum öðrum stað. Þá sté og hinn annar lærisveinn inn, sá er fyrri kom til grafarinnar, sá það og trúði því því að þeir kunnu þá eigi enn ritningina það honum byrjaði upp að rísa af dauða. Og þá gengu lærisveinarnir aftur til sjálfra sinna. En María stóð við gröfina úti og grét. Og er hún grét, þá laut hún niður í gröfina og sá tvo engla hvítklædda sitjandi þar, einn til höfða, en annan til fóta, sem þeir höfðu lagt líkama Jesú.
Og þeir sögðu til hennar: Kona, hvað grætur þú? Hún sagði þeim: Þeir hafa tekið burt herrann minn, og eg veit eigi hvar þeir hafa lagt hann. Þá hún hafði þetta sagt, snerist hún við og leit Jesúm standa þar og veit þó eigi að það er Jesús. Þá sagði Jesús til hennar: Kona, hvað grætur þú? Að hverjum spyr þú? En hún ætlaði garðvörðinn vera og sagði til hans: Herra, ef þú bart hann burt, þá seg þú mér hvar þú hefir lagt hann svo eg taki hann í burt þaðan. Jesús sagði til hennar: María. Hún snerist við og sagði til hans: Rabboní. Það kallast meistari. Jesús sagði til hennar: Snert þú mig eigi því að eg er eigi enn uppstiginn til míns föðurs.
Far heldur til bræðra minna og seg Antiokkia þeim að eg stígi upp til míns föðurs og til yðars föðurs, til míns Guðs og til yðvars Guðs. María Magdalena kom og kunngjörði lærisveinunum: Eg hefi séð herrann, og þetta sagði hann mér. En að kveldi þess hins sama þvottdags, þar er lærisveinarnir voru saman komnir að luktum dyrum fyrir hræðslu sakir við Gyðinga, kom Jesús þar og stóð í miðið og sagði til þeirra: Friður sé með yður. Og þá hann sagði þetta, sýndi hann þeim hendurnar og sína síðu. Þá glöddust lærisveinarnir við þeir sáu herrann. Þá sagði Jesús enn aftur til þeirra: Friður sé með yður. Líka sem faðirinn sendi mig, svo sendi eg og yður.
Og er hann sagði þetta, blés hann á þá og sagði til þeirra: Meðtakið þér heilagan anda. Hverjum helst þér fyrirgefið syndirnar, þá eru þær fyrirgefnar. Og hverjum helst þér þær aftur haldið, þá eru þær aftur haldnar. * En Tómas, einn af tólf, sá er kallaðist tortryggur, var eigi meður þeim þá Jesús kom. Þá sögðu aðrir lærisveinarnir til hans: Vér höfum séð herrann. En hann sagði til þeirra: Nema eg sjái naglaförin í hans höndum og eg láti minn fingur í naglaförin og eg leggi mína hönd í hans síðu, þá trúi eg eigi. Og átta dögum eftir það þá voru hans lærisveinar þar aftur enn inni og Tómas meður þeim. Þá kom Jesús að luktum dyrum, stóð í miðið og sagði: Friður sé með yður.
Eftir á þá segir hann til Tómam: Réttu þinn fingur hingað og skoða mínar hendur, lyft upp þinni hendi og legg í mína síðu og vert eigi vantrúaður, heldur trúaður. Tómas svaraði og sagði til hans: Drottinn minn og Guð minn. Jesús sagði til hans: Því að þú sátt mig Tóma, þá trúir þú. Sælir eru þeir er eigi sjá og trúa þó. * Mörg önnur teikn þá gjörði Jesús í augliti sinna lærisveina, hver eigi eru skrifuð í þessari bók. En þetta er því skrifað að þér trúið það Jesús sé Kristur, Guðs sonur, svo að þér trúaðir hefðuð eilíft líf í hans nafni. xxi. kapítuli [ breyta] Eftir það opinberaði sig Jesús við staðinn Tíberiadis.
En hann opinberaði sig svo að þar voru til samans Símon Petrus og Tómas, sá er kallaðist tortryggur, og Natanael, sá er var af Kana úr Galíleahéraði, og synir Sebedei og enn aðrir tveir af lærisveinunum. Símon Petrus segir til þeirra: Eg vil fara að fiska. Þeir sögðu honum: Vér viljum og koma með þér. Þeir gengu út og stigu strax á skip. Og á þeirri nótt fengu þeir ekkert, en að morgni komnum, þá stóð Jesús í sjávarfjörunni. Lærisveinarnir vissu eigi að það var Jesús. Þá sagði Jesús til þeirra: Börn, hafi þér ekki til matar? Þeir svöruðu honum: Ekki. En hann sagði til þeirra: Kastið út netinu til hægri handar við skipið, og þá munu þér nokkuð finna.
Þá köstuðu þeir út og gátu eigi dregið fyrir fjölda sakir fiskanna. Þá sagði sá lærisveinn til Petrus sem Jesús elskaði: Herrann er það. En þá Símon Petrus heyrði það að herrann væri það, vafði hann um sig möttlinum, því að hann var nakinn, og varpaði sér út á sjáinn. En aðrir lærisveinarnir komu á skipi því að þeir voru eigi langt frá landi, svo nær sem tvö hundruð álna, og drógu netið með fiskunum. Og þá þeir stigu á land, sáu þeir eldsglæður og fisk yfir lagðan og brauð. Jesús segir til þeirra: Færið hingað af þeim fiskunum þér fenguð nú. Símon Petrus sté upp og dró netið að landi fullt af stórum fiskum, hundrað þrjá og fimmtigir. Og þótt þeir væri svo margir, þá rifnaði þó eigi netið.
Jesús segir til þeirra: Komi þér og snæðið. En enginn lærisveinanna þorði að spyrja hann að: Hver ert þú? því að þeir vissu að það var herrann. Þá kom Jesús og tók brauðið, gaf þeim það og líka einninn fiskinn. Og þetta er nú hið þriðja sinn er Jesús opinberaði sig sínum lærisveinum eftir það hann var upprisinn af dauða. * Þá þeir höfðu nú snætt, segir Jesús til Símonar Péturs: Símon Jónasson, elskar þú mig meir en þessir? Hann sagði honum: Já, herra, þú veist að eg elska þig. Hann sagði þá til hans: Fæð þú lömb mín. Enn segir hann aftur í öðru sinni til hans: Símon Jónasson, elskar þú mig? Hann segir honum: Já, herra, þú veist að eg elska þig. Hann segir þá til hans: Fæð þú sauði mína.
Hann segir enn aftur í þriðja sinni til hans: Símon Jónasson, elskar þú mig? Þá hryggðist Pétur við því hann sagði þrisvar: Elskar þú mig? og sagði til hans: Herra, þú kennir alla hluti. Þú veist að eg elska þig. Jesús segir til hans: Al þú þá sauði mína. Sannlega, sannlega segi eg þér: Þá þú vart yngri, gyrtir þú sjálfur þig og gekkst þangað þú vildir, en þá þú eldist, munt þú þínar hendur út breiða, og annar mun þá gyrða þig og þangað leiða sem þú vilt eigi. En þetta sagði hann, teiknandi með hverjum dauða að hann skyldi Guð dýrka. Og þá hann hafði þetta sagt, segir hann til hans: Fylg þú mér eftir.
Pétur sneri sér við og leit þann lærisvein eftir fylgjanda sem að Jesús elskaði, sá er og um kveldmáltíðina hafði á hans brjósti legið og sagt: Herra, hver er sá er þig forræður? Þá Pétur leit nú þennan, segir hann til Jesú: Herra, hvað skal þessi? Jesús segir til hans: Ef eg vil að hann blífi til þess að eg kem, hvað kemur það við þig? Fylg þú mér eftir. Þá gekk sú orðræða á meðal bræðranna: Þessi lærisveinn deyr eigi. Og Jesús sagði eigi til hans: Hann deyr eigi, heldur: En eg vil að hann blífi til þess að eg kem, hvað kemur það við þig? Þessi er sá lærisveinn er um þetta ber vitni og þetta skrifaði.
Og vér vitum að hans vitnisburður er sannur. * Þar eru og margir aðrir hlutir sem Jesús gjörði, hverjir ef þeir skyldu allir skrifast hver eftir öðrum (þá held eg) að heimurinn mundi eigi yfir grípa þær bækur sem skrifast mættu. Hér endast S. Jóhannis guðsspjöll.