Romans · Chapter 1
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 59 of 174 · about 3 min
] [ breyta] Páll, þjón Jesú Kristi, kallaður til postula, útlesinn til að predika Guðs evangelium, hverju hann hafði áður fyrirheitið fyrir sína spámenn í heilagri ritning af sínum syni, hver að fæddur er af Davíðs sæði eftir holdguninni, en volduglega auglýstur sonur Guðs eftir andanum, þeim er helgar allt í frá þeim tíma er Drottinn vor Jesús Kristur reis upp aftur af dauða, fyrir hvern vér höfum meðtekið náð og postullegt embætti á meðal allra heiðinna þjóða trúarinnar hlýðni upp að rétta undir hans nafni, af hverra tölu þér eruð sem kallaðir eru í Kristo Jesú. Öllum þeim Guðs elskulegum og kölluðum heilögum sem eru í Róm.
Náð og friður af Guði vorum, föður og Drottni, Jesú Kristo þá sé með yður. Fyrst gjöri eg að sönnu þakkir mínum Guði fyrir Jesúm Kristum allra yðar vegna um það að yðvar trú berst út um allan heim. Því að Guð er minn vottur, hverjum eg þjóna í mínum anda út í guðsspjöllum hans sonar það að í sífelli minnunst eg yðar og jafnan í mínum bænum, beiðandi það eg mætta einhvern tíma að Guðs vilja hafa það lukkusprang að koma til yðar. Því mig langar að sjá yður svo að eg býtta yður nokkurri andlegri gjöf yður til styrktar. Það er að eg mætti taka líka huggan yðar á milli fyrir yðra trú og mína sem vér höfum vor á millum.
En eg vil eigi dylja fyrir yður bræður það eg einsetta mér oft að koma til yðar (þó mér hafi bægt verið til þessa) svo að eg hefða fært nokkurn ávöxt yðar á milli líka sem á meðal annarra þjóða. Því eg em skuldunautur bæði girskra og ógirskra, spakra sem óspakra. Af því svo mikið sem eg formá em eg reiðubúinn til yðar sem eruð í Róm að predika guðsspjöllin. Því að eg skammast mín eigi Krists evangelio því það er kraftur Guðs sem hjálplega gjörir alla þá sem þar á trúa, fyrst Gyðinga og svo Grikki. Af því að þar opinberast inni það réttlæti sem Guðs er, hvert að kemur %út af trúnni í trúna svo sem skrifað er það réttlátur muni af sinni trú lifa.
Því að Guðs reiði af himnum opinberast yfir allt ranglæti og óréttvísi manna, þeir eð sannleikinn afrækja í ranglætinu fyrir því, hvað af Guði mátti kunngjörast, er þeim opinberað. Því að Guð hefir þeim það opinberað. Með því að Guðs ósýnilegir hlutir sjást, það er hans eilífur kraftur og guðdómur, ef gaum að verður gefið þeim verkum, einkum að heimsins sköpun, svo að þeir hafa öngva afsakan með því þeir vissu það að Guð er og hafa hann þó eigi dýrkað svo sem Guð né honum þakkir gjört, heldur eru þeir í sínum hugrenningum að hégóma vorðnir og þeirra fávíst hjarta er formyrkvað.
Því þá þeir héldu sig vísa vera eru þeir að þussum vorðnir og hafa umsnúið dýrð óforgengilegs Guðs í líkneskjur forgengilegra manna, fugla og ferfættra kinda og skriðkvikinda. Af því hefir og Guð yfirgefið þá í þeirra hjartans girndum og óhreinmennsku að þeir skömmuðu svo sína eigin líkami á sjálfum sér, hverjir Guðs sannleika hafa um snúið í lygar og hafa meir dýrkað og þjónað skepnunni en skaparanum, hver lofaður sé um aldir. Amen. Fyrir hvað er Guð yfirgaf þá í skammsamlegum girndum. Því að konur þeirra hafa snúið náttúrlegri aðferð í ónáttúrlega.
Slíkt hið sama hafa mennirnir yfirgefið eðlilega aðferð til konunnar og loguðu í sínum girndum hver til annars, og hefir svo maður með manni skömm framið og meðtekið svo verðkaup síns villudóms (eftir því sem verðugt var) á sjálfum sér.
Og líka sem þeir hafa eigi þess gætt það þeir skyldu af Guði kynning hafa, svo hefir og Guð yfirgefið þá í fráleitt sinni að gjöra það hvað eigi var hæfilegt, fullir upp alls ranglætis, frillulifnaðar, fláttskapar, ágirndar, fjandskapar, fullir öfundar, manndrápa, þrætu, svika, óheilinda, kvissamir, bakmálgir, Guðs forsmánarar, háðgjarnir, drambsamir, sjálfhælnir, hrekkvísir, foreldrunum óhlýðugir, skilningslausir, óhaldinorðir, ófriðsamir, harðsvíraðir, ómiskunnsamir, hverjir Guðs réttlæti þá vita (það þessir eru dauða verðugir sem þvílíkt gjöra). Nú gjöra þeir það ei aðeins, heldur eru þeir einninn þeim samsinnaðir sem það gjöra.