Romans · Chapter 2
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 60 of 174 · about 3 min
[ breyta] Fyrir því kanntu eigi, ó maður, þig að afsaka, hver helst þú ert sem dæmir. Því hvar þú dæmir um annan, þar fordæmir þú sjálfan þig af því þú gjörir það sama hvað þú dæmir. Ef vér vitum það Guðs dómur er réttur yfir þeim sem þvílíkt gjöra. En þenkir þú, ó maður, sem dæmir þá er þvílíkt gjöra og þú gjörir hið sama að þú munir umflýja Guðs dóm? Eða forsmár þú ríkdóm hans góðgirndar, þolinmæði og langlundargeð? Veistu eigi það að Guðs góðgirni leiðir þig til yfirbótar? En þú eftir þinni harðúð og óyfirbótarsömu hjarta safnar þér sjálfum reiði upp á reiðinnar dag og uppbirtingar Guðs réttlætisdóms, sá er gjalda mun einum og sérhverjum eftir hans verkum.
Þeim að sönnu heiður og vegsemd og ófallvalta veru sem með þolinmæði góðra verka eftir leita eilífu lífi. En hinum sem þrætugjarnir eru og hverjir eigi hlýða sannleikanum, en hlýða heldur ranglætinu, sneypa og reiði, hrellingar og harmkvæli yfir allar sálir þeirra manna sem illsku drýgja, fyrst Gyðingum og svo Grikkjum. En heiður, vegsemd og friður öllum þeim sem gott gjöra, fyrst Gyðingum og svo Grikkjum. Því að ekkert manngreinarálit er fyrir Guði. Því þeir sem án lögmáls hafa syndgast, þeir munu og án lögmáls fyrirfarast, og þeir sem undir lögmálinu hafa syndgað, munu fyrir lögmálið dæmdir verða.
Af því að áheyrendur lögmálsins eru eigi réttlátir fyrir Guði, heldur eru þeir réttlátir sem lögmálið fullgjöra. Því þær þjóðir sem eigi hafa lögmálið, en gjöra þó af náttúru hvað lögmálið inniheldur, þeir sömu, með því þeir hafa eigi lögmálið, eru þeir sér sjálfir lögmál, með hverju þeir útvísa það lögmálsins verk sé skrifuð í þeirra hjörtum sem þeirra samviska sjálf ber þeim um vitni og þeir þankar sem sín á milli áklaga sig eður afsaka á þeim degi nær Guð dæmir leynda kostu mannanna eftir mínu guðsspjalli fyrir Jesúm Kristum. En sjá, þú kallast Gyðingur og forlætur þig upp á lögmálið og hrósar þig Guði og veist hans vilja.
Og með því þú ert lærður í lögmálinu, reynir þú hvað að best sé að gjöra og formetur þig sjálfan að vera blindra manna leiðtogara og ljós þeirra sem í myrkrum eru, fávísra tyftunarmann og læriföður einfaldra, hafandi bæði viskunnar form og sannleikans í lögmálinu. Nú lærir þú annan, en sjálfan þig lærir þú eigi. Þú predikar að eigi skuli stolið vera, og þú stelur. Þú segir að eigi skuli hórdómur drýgjast, og þú drýgir hór. Þú svívirðir skurgoðin, %rænir þó Guð sínu. Þú hrósar þér af lögmálinu og vanvirðir Guð fyrir yfirgöngu lögmálsins. Því að fyrir yðar skuld verður Guðs nafn lastað meðal heiðinna þjóða svo sem að skrifað er.
Umskurðurinn dugir að sönnu ef þú varðveitir lögmálið, en ef þú ert yfirtroðslumaður lögmálsins, þá er þín umskurn vorðin að yfirhúð. Því að ef yfirhúðin varðveitir réttlætingar lögmálsins, reiknast eigi þá hans yfirhúð fyrir umskurn? Og svo mun það þá sem af náttúru er %yfirhúð og lögmálið fullkomnar dæma þig, sem ert undir bókstafnum og umskurninni, yfirtroðslumann lögmálsins. Því að sá sem augljóslega er Gyðingur, er eigi Gyðingur og eigi sú augljós holdsins umskurn, heldur er sá Gyðingur sem heimuglegur Gyðingur er, og umskurn hjartans er umskurn sú er sker í andanum, en eigi í bókstafnum, hverrar lofstír að eigi er af mönnum, heldur af Guði.