The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 61

Romans · Chapter 3

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 61 of 174 · about 3 min

← Chapter 60Chapter 62 →

[ breyta] Hvað hefir þá Gyðingur til þess að hann sé fremri? Eða hver nytsemd er að umskurninni? Næsta mikil á allan hátt. Sennilega fyrst það að þeim er til trúað hvað Guð hefir talað. Þótt að nokkurir út af þeim hafi því eigi trúað, hvað um það? Skyldi fyrir þeirra vantrúar sakir Guðs trú undir lok líða? Fjarri sé því, heldur blífur það svo að Guð sé sannsögull, en allir menn ljúgarar svo sem skrifað er að þú réttlátur sért í þínum ræðum og yfirvinnir nær þú dæmist. En er það svo að vort ranglæti prísi Guðs réttlæti, hvað skulu vér segja? Er Guð þá ranglátur þótt hann leggi reiði á það? (Nú tala eg eftir plagsiðum manna). Fjarlægt sé því. Hverninn skyldi Guð elligar heiminn dæma?

Því ef Guðs sannleikur verður fyrir mína lygn veglegri til hans dýrðar, hvar fyrir skyldi eg þá eftir það sem annar syndbrotsmaður dæmdur verða og miklu framar svo breyta (sem illa verður til vor talað) og svo sem sumir segja það vér segjum: Gjörum illt svo að gott eftir komi, hverra fyrirdæming er réttleg. Hvað beru vér þá af þeim? Alls ekki. Því að vér höfum áður útvísað bæði Gyðinga og Grikki alla undir synd vera eftir því sem skrifað er að eigi sé sá nokkur sem réttvís er og ekki einn og eigi sá sem skynugur sé og engi sá er að Guði leiti. Allir eru þeir fráhneigir vorðnir og líka allir ónýtir gjörðir. Og engi er sá sem gott gjörir og eigi einn.

Þeirra barki er opin gröf, og með sínum tungum hantéra þeir sviksamlega. Höggormaeitur er undir þeirra vörum og munnur þeirra fullur af bölvan og beiskleika og fætur þeirra fljótir til blóðsúthellingar. Í þeirra vegum er eymd og hugarangur, og friðarins götu þekkja þeir eigi. Og eigi er þar nokkur guðsótti fyrir þeirra augum. En vér vitum hvað lögmálið segir. Það segir þeim sem undir lögmálinu eru svo að allra munnur verði til byrgður og heimurinn allur við Guð sakaður fyrir því að ekkert hold af lögmálsins verkum getur fyrir honum réttlátt verið. Því að fyrir lögmálið kemur eigi utan viðurkenning syndarinnar.

En nú er án lögmálsins Guðs réttlæti opinberað og sannprófað fyrir vitnisburð lögmálsins og spámannanna. En eg tala um það réttlæti sem fyrir Guði dugir, hvert að kemur fyrir trúna á Jesúm Krist til allra og yfir alla þá sem trúa. Því hér er enginn greinarmunur.

Allir saman eru þeir syndugir, og þeim er skortur á þeirri hrósan sem þeir áttu á Guði að hafa og verða svo út af hans náð án verðskuldanar réttlátir fyrir þá endurlausn sem vorðin er fyrir Jesúm Kristum, hvern Guð skikkaði til forlíkunarmanns fyrir trúna í hans blóði til ávísingar þess réttlætis sem fyrir honum er fullt, í hverju hann fyrirgefur syndirnar, þær áður eru umliðnar, undir þeirri guðlegri þolinmæði sem hann hafði það hann á þessum tíma ávísaði það réttlæti sem fyrir honum er fullt upp á það að hann sé alleina réttlátur og gjöri þann réttlátan sem þeirrar trúar er á Jesúm Kristum. Hvar er nú þín hrósan? Er henni lokið? Fyrir hvert lögmál? Fyrir verkanna lögmál?

Ekki svo, heldur fyrir trúarinnar lögmál. Því að vér höldum manninn réttlætast án lögmálsins verka fyrir trúna. Eða er hann alleinasta Guð Gyðinga? Er hann og eigi Guð heiðinna manna? Að vísu er hann og Guð heiðinna þjóða. Nú með því að það er einn Guð, sá er umskurnina réttlætir af trúnni og yfirhúðina fyrir trúna, hversu niðurbrjótum vér þá lögmálið fyrir trúna? Fjarri sé því, heldur uppréttum vér lögmálið.

← Chapter 60Chapter 62 →