The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 62

Romans · Chapter 4

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 62 of 174 · about 3 min

← Chapter 61Chapter 63 →

[ breyta] Hvað segjum vér þá af föður vorum, Abraham, það hann hafi fundið eftir holdinu? Það segjum vér: Ef Abraham er af verkunum réttlátur, þá hefir hann lofstír, en eigi hjá Guði. Því hvað segir ritningin: Abraham trúði Guði, og það er honum reiknað til réttlætis. En þeim sem með verkin fæst, verða launin eigi út af náðinni til reiknuð, heldur eftir verðskuldan.

En honum að sönnu sem eigi um gengur verkin, en trúir á þann sem réttlætir ranglátan, þeim verður sín trúa reiknuð til réttlætis eftir því móti sem Davíð segir, það farsældin sé alleinasta þess manns, hverjum Guð til reiknar réttlætið án tillögu verkanna svo sem hann segir að þeir sé sælir, hverjum sínar ranglætingar eru fyrirgefnar og hverjum sínar syndir eru huldar. Sæll er sá maður, hverjum Guð til reiknar ekki syndina. Nú þessi farsæld, snertur hún einasta umskurnina eða einninn líka yfirhúðina? Því vér hljótum að segja það Abraham sé sín trúa til réttlætis reiknuð. En hvort er hún honum þá til reiknuð í umskurninni eða í yfirhúðinni? Án efa eigi í umskurninni, heldur í yfirhúðinni.

En það teikn umskurnarinnar meðtók hann til merkis þess réttlætis sem kemur fyrir trúna, hverja hann hafði í yfirhúðinni, svo að hann yrði og faðir allra trúaðra í yfirhúðinni svo að þeim yrði og slíkt reiknað til réttlætis og það að hann yrði faðir umskurnarinnar, eigi einasta þeirra sem af umskurðarkyni eru, heldur jafnvel og þeirra sem ganga í fótsporum þeirrar trúar sem var í yfirhúð föður vors Abrahams. Því að fyrirheitið það hann skyldi vera veraldarinnar erfingi skeði eigi til Abrahams eður hans sæðis fyrir lögmálið, heldur fyrir trúarinnar réttlæti. Því ef þeir af lögmálinu eru erfingjar, þá er trúan einskis verð og fyrirheitið ónýtt gjört.

Af því að lögmálið afrekar eigi annað en reiði. Því hvar lögmálið er ekki, þar er og engin yfirtroðning. Fyrir þess sakir hlýtur réttlætið af trúnni að koma svo að það sé út af náðinni og það fyrirheit blífi stöðugt öllu sæði, eigi einasta því sem undir lögmálinu er, heldur og því sem er Abrahams trúar, hver að er allra vor faðir eftir því sem skrifað er, að þig hefi eg settan til föður margra þjóða fyrir Guði, hverjum þú trúðir, og sá er dauða lífgar og kallar það sem ekki er, líka sem það hvað að er. Og hann trúði upp á von þar engin von var þó á það að hann yrði faðir margra heiðinna þjóða eftir því sem til hans er sagt: Svo skal þitt sæði verða sem stjörnur himins og sjávarsandur.

En hann varð eigi veikur í trúnni, gaf og eigi vakt að sínum eigin líkama, þeim dáinn var af því að hann var að mestu hundrað vetra, og eigi dáins kviðar Sáru. Því hann efaði ekki Guðs fyrirheit vegna vantrúar, heldur varð hann styrkur í trúnni, gefandi Guði dýrðina, vitandi það fyrir fullan sann að hverju sem Guð lofaði það var hann máttugur að gjöra. Og fyrir því var honum það reiknað til réttlætis. En það er eigi einasta skrifað fyrir hans sakir það sé honum til reiknað, heldur fyrir vorar sakir, þeim það skal til reiknað verða. Ef vér trúum á þann sem Drottin vorn, Jesúm Krist, upp vakti af dauða, sá er fyrir vorar syndir var yfirgefinn og fyrir vors réttlætis sakir upp vaktur.

← Chapter 61Chapter 63 →