Romans · Chapter 5
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 63 of 174 · about 5 min
[ breyta] Af því vér erum nú réttlættir fyrir trúna, þá höfum vér frið hjá Guði fyrir Drottin vorn, Jesúm Kristum, fyrir hvern að vér höfum og tilgöngu í trúnni til þessarar náðar þar vér inni stöndum og hrósum oss í voninni þeirrar tilkomandi dýrðar er Guð mun gefa. En eigi einasta það, heldur hrósu vér oss einninn líka í hörmungunum af því vér vitum það hörmung aflar þolinmæði, en þolinmæði aflar raunar, en raun aflar vonar. En vonin lætur eigi að hneykslum verða því að Guðs kærleiki er út helltur í vor hjörtu fyrir heilagan anda, þann oss er veittur. Því að þá vér vorum enn breysklegir eftir tíðinni, hefir Kristur fyrir oss rangláta dáið.
En nú deyr varla nokkur fyrir réttlátan, og má vera að sá sé trautt sem fyrir góðan dirfist að deyja. Fyrir það prísaði Guð sinn kærleika viður oss í því að Kristur hefir fyrir oss dáið þá þegar vér vorum syndugir. Fyrir það verðum vér og miklu meir frelsaðir af reiðinni fyrir sjálfan hann af því að vér erum réttlættir í hans blóði. Því ef vér erum nú Guði forlíktir fyrir hans sonar dauða þá vér vorum enn óvinir, miklu meir verðum vér frelsaðir fyrir hans líf sem forlíktir eru. En eigi alleinasta þetta, heldur það að vér hrósum oss og í Guði fyrir Drottin vorn, Jesúm Krist, fyrir hvern að vér höfum forlíkunina meðtekið.
Fyrir því að líka sem syndin er fyrir einn mann komin í þennan heim og dauðinn fyrir syndina og svo er dauðinn til allra manna inn smoginn af því að allir hafa syndgast. Því að syndin var í heiminum allt til lögmálsins, en hvar ekki er lögmálið, þar verður og ekki syndinni skeytt, heldur drottnaði dauðinn frá Adam allt til Moysen og einninn yfir þeim sem ekki höfðu syndgast með þvílíkri yfirtroðslu sem Adam, hver að er ein fyrirmynd þess sem koma átti. En það er eigi svo fallið með gjöfinni sem með syndinni. Því ef margir eru dauðir fyrir sakir eins manns syndar, þá gnæfir þó miklu meir Guðs náð og gjafir yfir fleirum fyrir eins manns náð Jesú Kristi.
Og gjöfin er eigi einasta yfir einni synd, líka sem að er fyrir einn syndugan eilíf synd allra fordjarf. Því að svo sem dómsáfellið er komið af eins manns synd til fordæmingar, líka er gjöfin fyrir eins manns réttlæti af mörgum syndum til réttlætingar gefin. Því ef dauðinn ríkir vegna einnrar syndar fyrir einn, miklu meir munu þeir, sem öðlast gnægð náðarinnar og gjöf réttlætisins, ríkja í lífinu fyrir einn Jesúm Krist. Líka sem að fordæmingin er komin fyrir eins manns synd yfir alla menn, svo er og komið fyrir eins réttlæti lífsréttlætið yfir alla menn. Því að líka sem fyrir eins manns óhlýðni eru margir syndugir vorðnir, svo verða og fyrir eins hlýðni margir réttlátir.
En lögmálið er þó jafnframt inn komið svo að syndin skyldi yfirgnæfa. En hvar syndin gnæfir, þar yfirgnæfir náðin enn miklu framar að með sama hætti sem syndin ríkti til dauðans, svo líka ríkir náðin fyrir réttlætið til eilífs lífs fyrir Jesúm Krist. Sétti kapítuli [ breyta] Hvað eigu vér hér til að segja? Skulu vér þá í syndinni blífa svo að náðin megi yfirgnæfa? Fjarri er því. Hverninn skyldum vér það vilja að lifa í syndinni eftir það vér erum henni frá deyddir? Viti þér eigi að allir vér sem skírðir eru í Jesú Kristo það vér erum í hans dauða skírðir. Því erum vér og líka með honum greftraðir fyrir skírnina í dauðann upp á það líka sem Kristur er upp vakinn af dauða fyrir dýrð föðursins.
Líka svo skulu vér ganga í nýjungu lífdaganna. Því fyrst vér verðum honum samplantaðir í eftirlíkjanlegum dauða, svo verðum vér honum og líkir í upprisunni. Með því vér vitum það að vor gamli maður er með honum krossfestur svo að af skæfist líkami syndarinnar að eftir það þjónuðu vær eigi syndinni. Því að hver sem deyddur er, hann er réttlættur af syndinni. En fyrst vér erum með Kristi deyddir þá trúum vér það vér munum og með honum lifa. En vér vitum það Kristur er upp vakinn af dauða og deyr eigi meir. Dauðinn mun og eigi meir drottna yfir honum. Því það hann dó, það er hann eitt sinn syndinni dáinn, en það hann lifir, það lifir hann Guði.
Svo og líka þér skuluð halda yður sjálfa þar fyrir að þér séuð og deyddir frá syndinni, en lifið Guði í Drottni vorum, Jesúm Kristo. Fyrir því látið nú syndina eigi drottna í yðrum dauðlegum líkama svo að þér séuð honum hlýðugir í hans girndum. Og ljáið eigi yðra limu syndinni til ranglætis herklæða, heldur ljáið sjálfa yður Guði líka, sem af dauða upp lifnaða, og yðra limu Guði til réttlætis herskrúða. Því að syndin fær eigi drottnað yfir yður af því að þér eruð eigi undir lögmálinu, heldur undir náðinni. Hverninn þá? Skulu vér því syndir drýgja það vér erum eigi undir lögmálinu, en erum undir náðinni? Fjarri sé það.
Eða viti þér eigi að hverjum sem þér gefið yður til þjónustumanna undir hlýðni hans þjónar eru þér, hverjum þér hlýðugir eruð, hvort það er syndinni til dauðans eður hlýðninni til réttlætis? En Guði sé þakkir það þér voruð syndarinnar þjónustumenn, en nú hlýðugir vorðnir af hjarta þeirri lærdómsins ímynd sem þér eruð til gefnir. Því fyrst þér urðuð frelsaðir af syndinni, þá eru þér vorðnir réttlætisins þjónustumenn. Eg hlýt líkamlega hér af að segja fyrir yðvars holds breyskleika sakir. Því líka sem þér hafið yðra limu léð til að þjóna óhreinleikanum í frá öðru ranglæti í annað, líka svo skulu þér nú ljá yðra limu til að þjóna réttlætinu til helgunar.
Því þá þér voruð þjónustumenn syndarinnar, voru þér frí fyrir réttlætinu. Hvern ávöxt höfðu þér þann tíma? Þann þér skammist yðar nú af því að endalok þeirra hluta er dauðinn. En nú þér frelsaðir af syndinni og vorðnir Guðs þjónustumenn, hafi þér yðvarn ávöxt til helgunar, en að endalokum eilíft líf. Því að verðlaunin syndarinnar er dauðinn, en Guðs gjöf er eilíft líf í Drottni vorum, Jesú Kristo.