The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 64

Romans · Chapter 6

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 64 of 174 · about 7 min

← Chapter 63Chapter 65 →

[ breyta] Viti þér ekki, bræður (því við þá tala eg sem lögmálið vita), það að lögmálið drottnar yfir manninum æ svo lengi hann lifir? Því að sú kona, sem manni er undirgefin, hún er að manninum lifanda lögmálinu undirvorpin. En ef hennar maður deyr, þá er hún laus af því lögmáli sem manninn áhrærir. Nú ef hún er hjá öðrum að manninum lifanda, verður hún hórkona kölluð. En ef hennar maður deyr, þá er hún frelsuð af lögmálinu það manninn áhrærir svo að hún er eigi hórkona þó hún sé hjá öðrum manni. Líka svo eru þér, bræður mínir, deyddir lögmálinu fyrir Krists líkama svo að þér séuð hjá öðrum, einkum hjá þeim sem af dauða er upp vakinn upp á það vér færum Guði ávöxt.

Því þá vér vorum í holdinu, voru syndsamlegar girndir voldugar (þær sér hreyfðu upp fyrir lögmálið) í vorum limum dauðanum ávöxt að færa. En nú eru vér lausir af lögmálinu og frá því deyddir sem oss hélt hertekna svo að vér þjónum í nýjungu andans, en ekki í fornri veru bókstafsins. Hvað skulu vér segja? Er lögmálið synd? Fjarri er því, heldur það eg kennir ekki syndina nema fyrir lögmálið. Því eg vissa eigi hvað girnd væri ef lögmálið hefði ekki sagt: Ei skaltu girnast. En er syndin tók tilefni af boðorðinu og ól upp í mér allsháttaðar girndir því að án lögmálsins var syndin dauð. En eg lifða forðum án lögmáls, og er boðorðið kom, endurlifnaði syndin, en eg deyða.

Og það skeði svo að það boðorð varð mér að dauða sem mér var til lífs gefið. Því að syndin tók tilefni af boðorðinu, tældi mig og deyddi fyrir það sama boðorð. Lögmálið sjálft er þó sennilega heilagt, og boðorðið er og heilagt, gott og réttvíst. Er þá það, sem gott er, mér að dauða vorðið? Fjarri er því, heldur svo það syndin auglýstist það hún væri synd og það hún hefði mér fyrir hið góða dauða aflað svo að syndin yrði yfirmáta syndsöm fyrir boðorðið. Því að vér vitum það að lögmálið er andlegt, en eg em kjötlegur undir syndina seldur af því eg veit eigi hvað eg gjöri. Því að eg gjöri eigi hvað eg vil, heldur það eg hata, það gjöri eg.

En fyrst eg gjöri það hvað eg vil, eigi samþykki eg það að lögmálið sé gott. Svo gjöri eg nú eigi það sama, heldur sú synd sem í mér byggir. Því eg veit að í mér, það er í mínu holdi, byggir enginn góði. Viljann hefi eg, en að fullkomna hið góða finn eg eigi. Því að það góða, sem eg vil, gjöri eg eigi, heldur það vonda, hvað eg vil eigi, það gjöri eg. En fyrst eg gjöri það hvað eg vil eigi, þá gjöri eg eigi það sama, heldur sú synd sem í mér byggir. Því finn eg í mér það lögmál: þá eg vil gjöra hið góða, loðir við mig það vonda.

Því að mig lystir til Guðs lögmáls eftir hinum innra manninum, en eg sé þó annað lögmál í mínum limum það er í mót stríðir mínu hugskotslögmáli og færir mig herleiddan í syndarinnar lögmál, hvert að er í mínum limum. Eg vesall maður! Hver mun frelsa mig af líkama þess dauðans? Eg þakka Guði fyrir Jesúm Kristum, Drottin vorn. Svo þjóna eg nú í mínu hugskoti Guðs lögmáli, en í holdinu syndarinnar lögmáli. Áttandi kapítuli [ breyta] Svo er nú ekkert fordæmilegt á þeim sem í Kristo Jesú að eru, þeir sem eigi ganga eftir holdinu, heldur eftir andanum. Því að lögmál þess anda, sem lífgar í Kristo Jesú, hefir gjört mig frjálsan af lögmáli syndarinnar og dauðans.

Því hvað lögmálinu var ómögulegt (með því það krenkist fyrir holdið), það efldi Guð og sendi sinn son í líking syndugs holds og fordæmdi syndina í holdinu fyrir syndina svo að réttlætingin, sem af lögmálinu heimtist, uppfylltist í oss sem eigi ganga eftir holdinu, heldur eftir andanum. Því að þeir sem líkamlegir eru, þeir rækta það hvað holdsins er, en hinir, sem andlegir eru, rækja það sem andlegt er. Því holdsins fýst er dauði, en andarins vilji er líf og friður. Þar fyrir er holdsins girnd fjandskapur gegn Guði af því að það er ekki Guðs lögmáli undirvorpið. Það fær þess og eigi orkað því þeir, sem líkamlegir eru, geta eigi Guði þókknast.

En þér eruð ekki líkamlegir, heldur andlegir ef Guðs andi byggir annars í yður. Og hver hann hefir eigi Krists anda, sá er eigi hans. En ef Kristur er með yður, þá er líkaminn að sönnu dauður syndarinnar vegna, en andinn er lífið fyrir réttlætingarinnar sakir. Því ef hans andi, sem Jesúm upp vakti af dauða, byggir í yður, þá mun og sá sami, sem Jesúm Kristum upp vakti af dauða, lífga og yðra dauðlegu líkami vegna þess að hans andi byggir í yður. Þar fyrir erum vér, kærir bræður, nú eigi holdsins skuldunautar það vér eigum eftir holdinu að lifa. Því ef þér lifið eftir holdinu, munu þér deyja, en ef þér deyðið fyrir andann holdsins gjörðir, munu þér lifa.

Því þeir sem af Guðs anda drifnir verða, þeir eru Guðs synir. Því þér hafið eigi meðtekið þrælkunaranda svo þér þurfið nú aftur að ugga um yður, heldur hafi þér meðtekið sonarlegan anda, fyrir hvern vér köllum: Abba, elskanlegur faðir. Sá sami andi ber vitnisburð með vorum anda það vér erum Guðs synir. En fyrst vér erum synir svo erum vér og erfingjar, sennilega Guðs erfingjar, og samarfar Krists ef vér líðum annars meður honum upp á það að vér verðum einninn með honum upp hafnir til dýrðarinnar. * Því að eg held það þar fyrir að mótlæting þessara tíma sé ekki verð til þeirrar dýrðar sem við oss mun opinberuð verða.

Því að áhyggjusamlegt eftirbið skepnunnar stundar eftir uppbirtingu Guðs barna með því þó að skepnan er hégómanum undirgefin án hennar vilja, heldur fyrir hans sakir sem hana hefir undir lagt upp á vonina. Því að sjálf skepnan mun frelsuð verða af þrælkan fallvaltrar veru til dýrðarlegs frelsis Guðs barna. Því vér vitum það alla skepnu forlengir og ber sótt með oss allt til þess tíma. Eigi alleinasta hún, heldur vér sjálfir, sem höfum andarins frumtök, berum móð í sjálfum oss eftir þeirri arfleifð og væntum eftir lausn vors líkama. * Sennilega erum vér hjálplegir vorðnir í voninni. Því sú von sem sést, er eigi von, eða hversu kunnum vér þess að vona sem vér sjáum?

En ef vér vonum á það sem vér sjáum ekki, þá bíðum vér þess fyrir þolinmæði. Svo hjálpar og andinn einninn líka vorum breyskleik. Því að vér vitum ekki hvað vér skulum biðja sem þó byrjaði, heldur biður sá andi sjálfur fyrir oss með óumræðanlegri andvarpan. En hann, sem hjörtun rannsakar, veit hvað andarins meining er því að hann biður fyrir heilögum eftir því eð Guði hagar. En vér vitum að þeim, sem Guð elska, tekst allt til betranar, einkum þeim sem eftir fyrirhyggjunni kallaðir eru. Því að hverja hann hefir áður fyrirhugaða, þá hefir hann og til skikkað það þeir skyldu verða samlíkir hans sonar ímynd svo að hann sjálfur sé frumgetningur meðal margra bræðra.

En hverja hann hefir fyrirhugaða, þá hefir hann og kallað, en hverja hann hefir kallað, þá hefir hann og réttláta gjört, en hverja hann hefir réttlætt, þá hefir hann og dýrðarlega gjört. Hvað eigum vér til að segja? Er Guð fyrir oss, hver er þá á móti oss? Hver og eigi þyrmdi sínum eiginlegum syni, heldur gaf hann út fyrir oss alla, hverninn skyldi hann þá eigi veita oss alla hluti með honum? Hver vill nú þá ásaka Guðs útvalda menn? Guð er sá sem réttlætir. Hver er hann sem þá fordæmir? Kristur er hann sem dáið hefur og einninn sá sem upp vaktur er, hver að er til hægri handar Guði og biður fyrir oss. Hver vill þá skilja frá Guðs elsku?

Hörmung eður mótlæti, ofsókn eða hungur, volað eður háski? Svo sem að skrifað er það að fyrir þig verðum vér deyddir allan dag og erum reiknaðir sem sauður til dráps ætlaður. Sennilega berum vér langt af í þessu öllu vegna hans er oss elskaði. Því að eg em þess fullöruggur að hvorki dauði né líf, englar né höfðingsstéttir eða yfirvald og eigi hið nálæga né hið ókomna, eigi hæð eða dýpt né nokkur önnur skepna fær oss skilið frá Guðs kærleika, hver að er í Drottni vorum, Jesú Kristo.*

← Chapter 63Chapter 65 →