The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 65

Romans · Chapter 7

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 65 of 174 · about 3 min

← Chapter 64Chapter 66 →

[ breyta] Eg segi sannleik í Kristo Jesú og lýg eigi, þess mér ber vitni mín samviska í heilögum anda að eg hefi stóran harm og iðulega hryggð í mínu hjarta. Eg hefi og æskst mér þess að vera bölvaður af Kristi fyrir mína bræður, hverjir að eru mínir frændur eftir holdinu, sem eru af Írael, hverjum arfleifðin tilheyrir og svo vegsóminn, sáttmálinn og lögmálið, guðsþjónustan og fyrirheitið, hverra feður að eru og þeir sem Kristur er út af kominn eftir holdinu, sá sem að er Guð yfir öllum hlutum, blessaður um aldir. Amen. En eg tala eigi þetta til þess að Guðs orð skyldu þar fyrir niður falla.

Því það eru eigi allt Íraelsmenn sem af Írael eru og ekki allir þeir synir sem af Abrahams sæði eru, heldur skal þér í Ísak það sæði nefnt verða. Það er að þeir eru ekki Guðs börn sem eftir holdinu eru börn, heldur verða þeir, sem eru fyrirheitsins börn, fyrir sáð reiknaðir. Því að þetta er fyrirheitsorðið þar hann segir: Á þeim tíma man eg koma, og þá skal Sara son hafa. Þetta er enn eigi aðeins með þeim, heldur og þá Rebekka varð þunguð af föður vorum Ísak áður en börnin voru fædd. Og þau höfðu hvorki gjört gott né vont svo að Guðs fyrirhyggja stöðug stæði eftir útvalningunni.

Því að henni var til sagt eigi út af verðskuldan verkanna, heldur út af náð æskjarans svo það hinn meiri skyldi þjóna hinum minna eftir því sem skrifað stendur: Jakob elskaði eg, en Esau hafði eg að hatri. Hvað eigu vér hér til að segja? Er Guð ranglátur? Langt frá því. Því að hann segir til Moysen: Hvern eg náða, þeim em eg náðugur, og hverjum eg miskunna, þeim em eg miskunnsamur. Því er það eigi komið undir nokkurs vilja eður tilhlaupi, heldur undir Guðs miskunnsemd. Því að ritningin segir til Farao: Til þess upp vakta eg þig að eg sýnda á þér minn kraft. Svo miskunnar hann nú þeim hann vill og forherðir þann hvern hann vill. Þú segir svo til mín: Hverja skuld gefur hann oss þá?

Hver fær hans vilja í móti staðið? Já, góður maður, hver ertu þá ef þú vilt þreyta andsvör við Guð? Segir nokkuð efnið svo til smiðsins: Hvar fyrir gjörðir þú mig svo? Eða hefir ekki leirkerasmiðurinn vald til út af sömum leirmó að gjöra annað kerið til heiðurs, en annað til smánar? Því þá Guð vildi auðsýna sína reiði og kunngjöra sína makt, hefir hann með mikilli þolinmæði umliðið kerin reiðinnar sem búin eru til fordæmingar upp á það hann sýndi ríkdóm sinnar dýrðar á kerum miskunnarinnar, þau hann hefir út reitt til dýrðarinnar og þau hann hefir kallað? Einkanlega oss, eigi einasta þá sem út af Gyðingum eru, heldur jafnvel þá sem af heiðingjum eru.

Svo sem hann segir fyrir Osea spámann: Eg mun það kalla mitt fólk sem ekki var mitt fólk og þá mína unnustu sem ekki var mín unnasta, og það mun vera í þeim stað, hvar til þeirra var sagt: þér eruð ekki mitt fólk, skulu þeir kallaðir verða börn Guðs lifanda. En Esaias kallar yfir Írael: Þótt tala Íraelssona yrði sem sjávarsandur, þá mundi þó það eina, sem afgangurinn er, hólpið verða. Því að sína ræðu mun hann fyrir þeim stytta og þó algjöra til réttlætis af því að Drottinn mun forstokkótt orð gjöra á jörðu. Og svo sem Esaias sagði áður fyrri: Nema ef Drottinn Sabaot hefði oss sæði yfir látið, þá værum vér vorðnir sem Sódóma og líka sem Gómorra. Hvað eigu vér nú að segja?

Það eigu vér að segja að þeir heiðingjar, sem ekki hafa réttlætinu eftir fylgt, hafa réttlætið höndlað - eg segi af því réttlæti sem út af trúnni kemur. En Írael hefir lögmálsins réttlæti eftir fylgt og hefir þó ekki komist til réttlætisins lögmáls, hvar fyrir því að þeir hafa eigi leitað þess út af trúnni, heldur svo sem út af lögmálsins verkum. Því að þeir hafa rekið sig á þann %hindrunarstein, eftir því sem skrifað er: Sjáið, að eg set í Síon hindrunarstein og hneykslunarhellu. Og hver hann trúir á hann, sá skal ekki að hneykslan verða.

← Chapter 64Chapter 66 →