Romans · Chapter 8
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 66 of 174 · about 6 min
[ breyta] Kærir bræður, sennilega er það ósk míns hjarta og grátleg bæn til Guðs fyrir Írael að þeir hjálpuðust. Því eg ber þeim vitni að þeir vandlæta um Guð, en eigi af skynsemd. Því að þeir þekkja eigi það réttlæti, sem Guðs er, og leita við upp að rétta sínar eiginlegar réttlætingar og eru svo því réttlæti, sem Guðs er, ekki undirgefnir. Því að endalok lögmálsins er Kristur til réttlætis öllum þeim á hann trúa. Moyses skrifar um það réttlæti sem kemur út af lögmálinu: Hver sá mann sem það gjörir, hann lifir þar inni.
Ef það réttlæti, sem út af trúnni kemur, segir svo: Seg þú ekki í þínu hjarta: Hver vill upp stíga í himininn? - það er eigi annað en Kristum af hæðinni ofan aftur að toga - eða: Hver vill niður stíga í undirdjúpið? - það er eigi annað en Kristum af dauða upp aftur að teygja. En hvað segir ritningin? Orðið er þér nær, einkum í þínum munni og í þínu hjarta. Þetta er trúarinnar orð, hvert vér predikum. Því ef þú viðurkennir Jesúm með þínum munni það hann sé Drottinn og trúir í þínu hjarta það Guð hafi hann upp vakið af dauða, þá muntu hjálpast. Því að nær vér trúum af hjarta, verðum vér réttlátir, og þá vér viðurkennum með munninum, verðum vér hjálplegir.
Því hvað segir ritningin að hver á hann trúir, sá mun eigi að hneykslan verða. Því að enginn greinarmunur er á millum Gyðings og hins girska af því að einn er Drottinn allra, ríkur út yfir öllum þeim hann ákalla. Því hver hann ákallar nafn Drottins, sá mun hólpinn verða. En hverninn skulu þeir kalla á þann, hvern þeir trúa eigi? Eða hverninn skulu þeir nú trúa á þann, af hverjum þeir hafa eigi heyrt? En hverninn skulu þeir heyra án predikaranna? Eða hverninn skulu þeir mega predika nema þeir sé sendir? Svo sem skrifað er: Hversu prýðilegir eru fætur þeirra sem friðinn boða og þeirra er boða hið góða. En þeir eru þó eigi allir guðsspjallinu hlýðugir.
Því að Esaias segir: Hver trúir vorri predikan? Fyrir því kemur trúin út af predikuninni, en predikunin fyrir Guðs orð. En eg segi: Hafa þeir eigi heyrt það? Sennilega er þeirra hljómur um öll lönd út genginn og þeirra orð í allar heimsins álfur. * En eg segi að Írael hefir það eigi þekkt. Í fyrstu segir Moyses: Eg man æsa yður upp til vandlætingar yfir þeim sem ekkert fólk er, og yfir skynlausri þjóð mun eg etja yður til reiði. En Esaias er máldjarfur og segir: Eg em af þeim fundinn sem eigi hafa mín leitað og þeim auglýstur sem eigi hafa að mér spurt. En til Írael segir hann: Allan dag hefi eg mínar hendur út breitt til fólks þessa er eigi vill trúa, heldur mér í móti mælandi.
Ellifti kapítuli [ breyta] Svo segi eg nú: Hvort hefir Guð þá sitt fólk frá sér rekið? Fjarri er því. Því að eg em og Íraelsmaður út af Abrahams sæði, af kyni Benjamíns. Guð hefir ekki sitt fólk frá sér rekið því að hann hefir áður fyrirhugað. Eða viti þér eigi hvað ritningin segir af Elía hverninn hann bað fyrir Guði í gegn Írael og sagði: Drottinn, spámenn þína hafa þeir í hel slegið og þínum ölturum um velt, en eg em einn eftir blifinn, og þeir umsitja mitt líf. En hvað segir honum guðlegt andsvar? Sjö þúsundir manna hefi eg látið mér yfir blífa, þeir sem eigi hafa beygt sín kné fyrir Baal. Svo gengur það og nú til á þessum tímum með þeim sem umfram eru blifnir eftir útvalningu náðarinnar.
En fyrst það er út af náðinni skeð, svo er verðskuldanin engin, annars væri náðin engin náð. En er það út af verðskuldaninni, þá er náðin ekkert, elligar væri verðskuldan engin verðskuldan. Hvað er nú þá? Það Írael eftir leitaði, það hefir hún eigi öðlast, en útvalningin öðlaðist það. En þeir aðrir, er umfram voru, eru forblindaðir eftir því sem skrifað er að Guð gaf þeim þann þverúðaranda og augu að þeir sjá eigi og eyru að þeir heyri eigi allt til þessa dags. Davíð segir og þeirra borðlát þeim verða að snöru til fjötrunar og hneyksla og þeim til endurgjalds, forblinda og þeirra augu svo þeir sjái eigi og beyg jafnan þeirra hrygg.
Svo segi eg nú: Hafa þeir þar fyrir rekið sig á að þeir skyldu falla? Langt frá því, heldur er út af þeirra hrasan heiðingjum heilsugjöf vorðin svo að þeir hvettu þá til vandlætingar. Því ef þeirra fall er heimsins auðlegð og þeirra minnkan heiðinna manna ríkdómur, hversu mikið meir væri það svo ef þeirra fullnan þar væri? Við yður heiðingja tala eg: Með því að eg em postuli heiðinna manna, vil eg mitt embætti heiðra. Ef eg gæta þá einhverneginn hvatt þá sem mitt hold eru til vandlætingar og nokkra af þeim hjálplega gjört. Því ef þeirra glatan er heimsins forlíkun hvað væri það annað en vér öðluðunst lífið af dauðum? Því ef sneiðirnar eru heilagar, þá er og deigið heilagt.
Og ef rótin er heilög, þá eru og kvistirnir heilagir. Því að ef nokkrir af kvistunum eru af brotnir, en þú, sem vart villur viðsmjörsviður, ert á millum þeirra inn plantaður og vorðinn hluttakari þeirrar rótar og feitleiki þess viðsmjörsviðar, fyrir því skaltu eigi meta þig í gegn kvistunum. En ef þú metur þig í gegn þeim, þá máttu vita að þú ber eigi rótina, heldur ber rótin þig. Því þú segir að kvistirnir eru því af brotnir að eg yrði inn plantaður. Það er og sanntalað. Fyrir vantrúar sakir eru þeir af brotnir, en þú stendur fyrir trúna. Vert þú eigi metnugur, heldur óttasleginn. Því ef Guð hefir ekki þyrmt náttúrlegum kvistum, verða má að hann þyrmi þér eigi heldur.
Þar fyrir sjá þú góðgirni Guðs og harðúð, harðúðina á þeim sem fallnir eru, en góðgirnina á þér ef þú stöðugt blífur í góðgirninni, elligar verður þú og einninn af höggvinn. Og hinir aðrir, ef þeir blífa eigi í vantrúnni, þá verða þeir inn plantaðir því að Guð er máttugur til að rótsetja þá inn aftur. Því ef þú, sem af náttúru er villur viðsmjörsviður, ert afsniðinn og í mót náttúrunni ert inn plantaður á hið góða viðsmjörstréið, miklu framar munu þeir þá, sem eftir náttúrunni eru, innplantast sínum viðsmjörsviði.
Eg vil eigi dylja fyrir yður, góðir bræður, þann leyndan dóm svo að þér séuð eigi metnaðarfullir með sjálfum yður það blindleiki er í suman máta Írael yfir fallinn þangað til að fylling heiðinnar þjóðar er inn komin og öll Írael verði svo hólpin eftir því sem skrifað er: Út af Síon mun koma sá sem frelsar og umsnýr óguðlegu athæfi af Jakob. Og þessi er minn sáttmáli við þá nær eg burt tek þeirra syndir. Eg held þá að sönnu fyrir óvini eftir guðsspjallinu fyrir yðar sakir, en eftir útvalningunni hefi eg þá kæra fyrir feðranna sakir. Guðs gjafir og kallan eru þess háttar að þær fá hann eigi iðrað.
Því að líka svo sem þér hafið eigi forðum trúað á Guð, en nú hafi þér miskunn öðlast fyrir þeirra vantrúar skuld, svo hafa og hinir nú eigi viljað trúa á þá miskunn sem þér hafið hlotið svo að þeir mættu og miskunnsemi öðlast. Því að Guð lukti alla undir vantrúnni upp á það að hann miskunnaði öllum. Ó hvílík dýpt auðæfanna, bæði spekinnar og svo Guðs viðurkenningar! Hversu óumræðanlegir eru og hans dómar og ófinnanlegir hans vegir! Því hver hefir þekkt Herrans sinni? Eða hver hefir hans ráðgjafi verið? Eður hver hefir honum nokkuð fyrri gefið svo að honum mætti það verða endurgoldið? Því að af honum og fyrir hann og í honum eru allir hlutir. Honum sé og heiður og dýrð að eilífu! Amen. *