The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 67

Romans · Chapter 9

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 67 of 174 · about 2 min

← Chapter 66Chapter 68 →

[ breyta] Fyrir því beiði eg yður, góðir bræður, fyrir miskunn Guðs að þér gefið yðra líkami til þess offurs sem lifandi er og heilagt og Guði þakknæmið, hvert að er yðar skynsamleg guðsþjónusta. Og hegðið yður eigi eftir þessum heimi, heldur gjörið yður umskiptilega í endurnýjung yðvars hugskots svo að þér megið reyna hver að sé góður, þægur og algjörður Guðs vilji. Því að eg segi fyrir þá náð sem mér er gefin hverjum sem einum yðar á milli það enginn haldi meir út af sér en honum byrjar af sér að halda, heldur haldi hann svo út af sér það hann sé kyrrlátur og sparlífur eftir því sem Guð hefir hverjum hlutað mæling trúarinnar.

Því að líka svo sem að vér höfum marga limu á einum líkama, en allir limirnir hafa eigi líka hegðan, líka svo eru vér og margir einn líkami í Kristo, en vor á milli eru vér hver annars limur * og höfum margháttaðar gjafir eftir þeirri náð sem oss er gefin. Hafi nokkur spádóm, þá sé hann trúnni líkur. Hefir nokkur embætti, þá gæti hann þess embættis. Kennir nokkur, þá vakti hann þá kenning. Áminnir nokkur, þá byggi hann að þeirri áminning. Gefur nokkur, þá gefi hann einfaldlega. Stjórnar nokkur, þá stjórni hann með áhyggju. Fremur og nokkur miskunnsemi, þá gjöri hann hana með góðfýsi. Elskan sé flærðarlaus. Og hatið hið vonda, en loðið á hinu góða.

Bróðurlegur kærleiki sé ástúðlegur yðar á milli. Hafi hver annan sér í virðingum æðra. Verið og eigi latir í því þér skuluð vinna. Verið glóandi í andanum, hegðið yður eftir tíðinni, verið glaðir í voninni, en þolinmóðir í kvölinni, staðfastir í bæninni. Annist nauðþurftir volaðra, kostgæfið gestrisni. Blessið þá er yður ofsækja, blessið, en bölvið eigi. Fagnið með fögnundum, en grátið með grátundum. Verið samhuga innbyrðis, stundið eigi það hvað hátt er, heldur lútið að því sem lágt er.* Verið eigi sérklókir. Gjaldið öngum illt móti illu. Leggið kapp á að vera siðsamir það mögulegt er við hvern mann, og það þér formegið, þá hafið frið við alla menn.

Hefnið yðar eigi sjálfir (mínir elskanlegir), heldur gefið %rúm reiði því að skrifað er: Mín er hefndin, eg vil endurgjalda, segir Drottinn. Nú er óvin þinn hungrar, þá gef honum fæðu, þyrstir hann, gef honum að drekka. En nær þú gjörir þetta, þá safnar þú glóðum elds yfir höfuð honum. Lát eigi yfirstíga þig hið vonda, heldur yfirvinn þú hið vonda með góðu. *

← Chapter 66Chapter 68 →