Romans · Chapter 10
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 68 of 174 · about 2 min
[ breyta] Hver maður þá sé valdsstjórninni undirgefinn, þeirri sem yfir honum stjórnar. Því að sú er eigi nokkur valdsstjórn utan hún sé af Guði, en hvar valdsstjórnin er, þá er hún af Guði skikkuð. Og hver hann mótstendur valdsstjórnina, sá stendur í móti Guðs skikkan, en þeir, sem í móti standa, munu yfir sig taka dómsáfelli. Því að valdið er eigi góðum verkum, heldur vondum til skelfingar. En viltu eigi óttast valdsstjórnina, þá gjör hvað gott er, og muntu lofstír af henni hafa. Því að hún er Guðs þénari þér til góða. En ef þú gjörir hvað vont er, máttu óttast.
Því að hún ber eigi sverðið forgefins því hún er Guðs þénari og hefningarmaður að aga þann sem illa gjörir, hvar fyrir oss byrjar undirgefnum að vera, eigi alleinasta hirtingarinnar vegna, heldur og líka einninn fyrir samviskunnar sakir. Þar fyrir hljóti þér og skatt að gjalda því að þeir eru Guðs þénarar sem slíkar verndanir skulu hantéra. Því gefið það hverjum sem þér pliktugir eruð, þeim skatt sem skattur heyrir, þeim toll er tollur heyrir, þeim ótta er ótti heyrir, þeim heiður sem heiðran heyrir. Verið öngum skyldugir nema það þér elskið hver annan því hver hann elskar sinn náunga, sá hefir lögmálið uppfyllt.
Því að þar segist þú skulir eigi hór drýgja, eigi mann vega, eigi stela, eigi ljúgvitni mæla, þú skalt og eigi girnast. Og ef þar er nokkurt annað boðorð, þá felst það í þessum orðum: Elska skaltu náunga þinn sem sjálfan þig. Elskan gjörir náunganum ekki mein. Því er nú elskan lögmálsins fylling. * Og með því að vér vitum einkum þá stund það tími er upp að rísa af svefninum af því að vor heill er nú nær heldur en þá vér trúðum það nóttin er um liðin, en dagurinn tekur að nálgast.
Leggjum því af verkin myrkvanna og ískrýðunst herklæðum ljóssins svo að vér göngum siðsamlega sem á degi, eigi í ofáti eða ofdrykkju, eigi í legukofum og munaðlífi, eigi í þráttan og öfundsýki, heldur íklæðist þér Drottni Jesú Kristo og gjörið eigi eftir holdsins brekvísi þess girndir að rækja. *