Romans · Chapter 11
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 69 of 174 · about 3 min
[ breyta] En hann sem breyskur er í trúnni, þá annist, og skelfið ekki samviskurnar. Því annar trúir hann megi alls neyta, en hinn sem breyskur er, eti hann kálgresi. En hver eð etur, hann forsmái eigi þann sem ekki etur, og hann sem ekki etur, dæmi eigi þann sem etur því að Guð annaðist hann. Hver ert þú sem annarlegan þjón dæmir? Hann stendur eða fellur sínum lávarði. En hann fær hann vel við rétt því að Guð er máttugur hann upp að rétta. Annar heldur meir af öðrum degi en öðrum, hinn annar heldur alla daga jafna. Hverjum einum láti sér sitt hugskot fullnægja. Hann sem af deginum heldur, gjörir það Drottni. Og hinn sem þar heldur ekkið af, hann gjörir það og Drottni.
Og hver eð etur, sá etur í Drottni því að hann gjörir Guði þakkir. Og hinn sem ekki etur, hann etur eigi í Drottni og gjörir Guði þakkir. Því að enginn vor lifir sjálfum sér, og enginn deyr sér sjálfum. Því ef vér lifum, þá lifum vér Drottni, deyjum vér, þá deyjum vér Drottni. Og hvort vér lifum eða deyjum, þá erum vér Drottins. Því að þar fyrir hefir Kristur dáið, upp aftur risið og endurlifnað það hann sé Drottinn yfir lifendum og dauðum. En þú, hvað dæmir þú bróður þinn? Eða þú hinn annar, hvar fyrir forsmár þú þinn bróðir?
Því vér munum allir standa fyrir Krists dómstóli eftir því sem skrifað er: Svo sennilega sem eg lifi, segir Drottinn, skulu mér öll kné beygjast, og allar tungur skulu Guð viðurkenna. Þá mun og hver sem einn fyrir sjálfan sig gjalda Guði reikningsskap. Fyrir því látum oss nú eigi meir dæma hver um annan héðan í frá. Heldur dæmið miklu framar um það að bróðurnum leggist eigi til nokkur hindran eður hrasanarefni. Eg veit það og em þess fullvís í Drottni Jesú að þar er ekkert almennilegt í sjálfum sér nema þeim sem það reiknar fyrir almennt, honum er það %almennilegt. Nú ef bróðir þinn sturlast upp fyrir þinnar fæðu sakir, þá gengur þú þegar eigi eftir kærleikanum.
Minn kæri, fordjarfa eigi þann með þínum mat, fyrir hvern Kristur er dáinn. Fyrir því kostið kapps um að %yðvar auður verði eigi lastaður. Því að Guðs ríki er ekki matur og drykkur, heldur réttlæti, friður og fögnuður í heilögum anda. Hver hann þjónar Kristi þar með, sá er Guði þekkur og mönnum geðfelldur. Fyrir því látum oss því eftir fylgja sem til friðarins heyrir og varðveitum það sem til betrunar er vor á meðal. Fordjarfa þú eigi Guðs verk fyrir matarins sakir. Allir hlutir eru að sönnu hreinir, en það er þeim eigi gott sem það etur með gnagan sinnar samvisku. Miklu betra er að þú etir ekki kjöt og drekkir ekki vín eða það nokkuð sem þinn bróðir rekur sig á eða argast af eða veikist við.
Hafir þú trúna þá, haf hana hjá sjálfum þér fyrir Guði. Sæll er sá sem öngva samvisku gjörir sjálfum sér í því hann neytir. En hann sem efablandinn er og etur sem áður, sá er fordæmdur því að það sker ekki af trú. En hvað ekki er út af trúnni, það er synd.