Romans · Chapter 12
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 70 of 174 · about 4 min
[ breyta] En vér sem styrkvir erum, skulum umlíða vanmættingar þeirra sem breysklegir eru og hafa eigi geðþekkni á sjálfum oss. Og hver sem einn vorra hegði sér svo það hann þókknist sínum náunga í góðu til betrunar. Því að Kristur hafði ekki geðþekkni á sjálfum sér, heldur eftir því sem skrifað er að þær smánir, sem þig lýttu, féllu yfir mig. En hvað sem skrifað er, þá er það skrifað oss til lærdóms svo að vér fyrir þolinmæði og huggan ritninganna hefðum vonina. En Guð þolinmæðinnar og hugganarinnar gefi yður það að þér séuð samlyndir yðar á milli eftir Jesú Kristo svo að þér mættuð með einu samheldi og einum munni dýrka Guð og föður vors Drottins Jesú Kristi.
Þar fyrir annist hver annan innbyrðis líka sem Kristur annaðist yður Guði til heiðurs. Eg segi Kristum verið hafa þjónustumann umskurnarinnar fyrir Guðs sannleika sakir til staðfestu fyrirheitanna sem til feðranna eru skeð, en það að heiðinn lýður heiðrar Guð er fyrir miskunnsemdina vorðið eftir því sem skrifað er: Fyrir það vil eg, Drottinn, vegsama þig meðal heiðinna þjóða og þínu nafni syngja lof. Og í annað sinn segir hann: Fagni þér, heiðingjar, meður hans fólki. Og enn aftur: Lofi þér Drottin, allar þjóðir, og mikli hann allur lýður. Og enn aftur segir Ysaias: Það mun ske að rót Jesse og hann sem upprís til að stjórna heiðnum þjóðum það á hann muni heiðnir menn vona.
En Guð vonarinnar fylli yður með öllum fagnaði og friði í trúnni svo að þér hafið gnægð í voninni fyrir kraft heilags anda. En eg em fullvís í því, bræður mínir, það þér sjálfir eruð fullir góðgirni, uppfylltir allrar visku svo að þér getið leiðrétt hver fyrir öðrum. Og fyrir þá sök skrifaði eg, bræður mínir, þess djarflegar til yðar svo sem yður áminnandi af álfu þeirrar náðar sem mér er af Guði gefin það eg skuli vera Krists þénari meðal heiðinna þjóða, fórnfærandi Guðs evangelium svo að heiðinn lýður yrði Guði þægilegt offur, helgað fyrir hans heilagan anda. Þaðan hefi eg það, hvar af eg má hrósa mér í Kristo Jesú í því sem Guði tilheyrir.
Því að eg dirfðist eigi nokkuð að tala af þessu ef Kristur efldi ekki það sama fyrir mig að koma heiðinni þjóð til hlýðninnar fyrir orð og gjörðir, fyrir kraft táknanna og stórmerkjanna og fyrir mátt Guðs anda. Svo að eg hefi í frá Jerúsalem og þar um kring liggjandi lönd allt til Illyrikon uppfyllt með Krists guðsspjalli og sérdeilis lagt kapp á að predika Guðs evangelium þar hvar nafn Krists var eigi kunnigt svo að eg byggja eigi upp á annarlegan grundvöll, heldur eftir því sem skrifað er að þeim sem ekki er af honum boðað, þeir skulu það sjá, og hinir er það hafa eigi heyrt, þeir skulu það skilja. Það er og tilefnið, hvert mér hefir oftsinnis tálmað til yðar að koma.
Og fyrst eg hefi nú eigi rúm meir í þessum löndum, en eg hefi þó haft lysting á um mörg ár að koma til yðar, en þá eg reisi í Spáníam mun eg koma til yðar. Því að eg vænti að eg muni þar um fara og sjá yður þar og af yður út þaðan á veg leiddur verða þó svo að eg taki áður hvíld hjá yður um stundar sakir. En nú reisi eg til Jerúsalem þeim heilögum til þjónustu er þar eru því Akkaia hafa viljanlega til samans lagt nokkra almennilega lífsnæring þeim voluðum heilögum til bjargar sem eru í Jerúsalem. Það hafa þeir viljanlega gjört, þeir eru og þeirra skuldamenn. Því fyrst hinir heiðnu eru hluttakarar vorðnir þeirra andlegra auðæfa, þá væri skaffilegt að þeir sýndi þeim björg í líkamlegum auðæfum.
En nær eg hefi þetta fullkomnað og innsiglað þeim þann ávöxt, mun eg ferðast fyrir yður í Spáníam. En eg veit nær eg kem til yðar það eg mun koma með blessanar fylling Krists guðsspjalla. En eg beiði yður, bræður mínir, fyrir vorn Drottin Jesúm Krists og fyrir andarins kærleika að þér hjálpið til í yðrum bænum fyrir mér til Guðs svo að eg frelsist frá þeim vantrúuðum sem á Gyðingalandi eru og það mín þjónusta, sem eg gjöri til Jerúsalem, verði þeim heilögum þakknæm svo að eg mætta fyrir Guðs vilja til yðar koma í fagnaði að eg endurnærða mig með yður. En Guð friðarins sé með öllum yður. Amen.