The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 71

Romans · Chapter 13

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 71 of 174 · about 2 min

← Chapter 70Chapter 72 →

[ breyta] Vora systur, Feben, fel eg yður á hendi, hver að er þjónustukvinna safnaðarins til Kenkrea, það þér meðtakið hana í Drottni svo sem heilögum hæfir og gjörið henni hjástoð í hverri nauðþurft sem hún kann yðar við að þurfa því að hún hefir mörgum hjástoð gjört og mér sjálfum. Heilsið Priskam og Akvílan, mínum hjálparmönnum í Kristo Jesú, þeir eð sína hálsa hafa út sett fyrir mitt líf, hverjum ekki alleinasta eg gjöri þakkir, heldur allir söfnuðir heiðinnar þjóðar. Og heilsið þeim safnaði sem í þeirra húsi er. Heilsið Efeneto, mínum elskanlegum, sá sem að fyrstur er þeirra úr Akkaia í Kristo. Heilsið Mariam, hver mikið erfiði hefir haft með oss.

Heilsið Andróníko og Júlíon, mínum náfrændum og sambandingjum, hverjir að frægir eru á meðal postulanna og fyrir mér voru í Kristo Jesú. Heilsið Amplían, mínum elskulegasta í Drottni. Heilsið Úrbano, vorum hjálparmanni í Kristo Jesú, og Stakkýn, mínum elskulegum. Heilsið hinum mæta Apellen í Kristo. Heilsið þeim sem eru af heimkynnum Aristóbóli. Heilsið og mínum frænda, Heródíonem. Heilsið og þeim sem eru af heimkynni Narkissi í Drottni. Heilsið Trýfena og hinum Trýfesa, hverjir erfiðað hafa í Drottni. Heilsið Persída, minni elskulegri, hver að mikið erfiði hefir haft í Drottni. Heilsið Rúfo, hinum útvalda í Drottni, og hans móður og minni.

Heilsið Asýnkríton, Flegontem, Herman, Patróban, Hermen og þeim bræðrum sem hjá þeim eru. Heilsið Fílologen og Júlían, Nereum og systur hans og Olympan og öllum heilögum sem hjá þeim eru. Heilsið hver öðrum yðar á milli með heilögum kossi. Yður heilsa allir Krists söfnuðir. En eg minni yður á, góðir bræður, að þér hafið gát á þeim sem rugl og hindranir upp byrja í gegn þeim lærdómi sem þér hafið lært og snúið frá þeim sömum. Því að þess háttar menn þjóna eigi Drottni Jesú Kristo, heldur sínum kviði, og fyrir sætleg orð og fagurlegt máltæki tæla þeir hjörtu meinlausra. því að yðvar hlýðni er í bland alla út komin.

Fyrir það fagna eg yfir yður, en eg vil að þér séuð vitrir upp á hið góða og lítilsinnaðir upp á hið vonda. En Guð friðarins mun innan skamms sundurnísta þann andskota undir yðra fætur. Náð Drottins vors Jesú Kristi sé með yður. Yður heilsar Tímóteus, minn hjálparmann, og Lúkíus og Jason og Sósípater, mínir náfrændur. Og eg, Tertíus, sem þetta bréf skrifaði, heilsar yður í Drottni. Yður heilsar Gaius, minn og alls safnaðarins húsbóndi. Yður heilsar Erastus, borgarinnar fjárrentuvörður og Kvartus bróðir. Náð Drottins vors Jesú Kristi sé með yður öllum. Amen.

En honum sem máttugur er yður að styrkja eftir mínu guðsspjalli og predikan út af Jesú Kristo, fyrir hverja leyndardómurinn er upp birtur sem í langa tíma hefir yfir verið þagað, en nú opinberaður og auglýstur fyrir ritningar spámannanna, eftir boði eilíflegs Guðs, trúarinnar hlýðni til uppreisingar meðal allra heiðinna þjóða, þeim sjálfum Guði sem alleina er vitur sé dýrð fyrir Jesúm Krist að eilífu. Amen. Til Rómverja sem sendur var af Korintio fyrir Feben sem þjónustukvinna var safnaðarins til Kenkrea.

← Chapter 70Chapter 72 →