The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 72

1 Corinthians · Chapter 1

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 72 of 174 · about 2 min

← Chapter 71Chapter 73 →

[ breyta] Og eg, góðir bræður, þá eg kom til yðar, kom eg ekki meður orðahæð eður hárri visku til yðar að boða Guðs predikan. Því að eg hélt mig ekkið vita yðvar á milli utan Jesúm Krist, þann hinn krossfesta. Og eg var hjá yður meður veikleika og með ugg og ótta miklum. Mín ræða og mín predikan var eigi í snilldarorðum mannlegrar visku, heldur í auðsýningu andans og kraftarins svo að yðvar trú sé eigi af mannlegri visku, heldur af Guðs krafti.

En þar vér ræðum um, þá er það speki á meðal þeirra sem algjörðir eru, en þó engin þessa heims speki og eigi þessa heims höfðingjum, hverjir eð forganga, heldur segju vér af þeirri heimuglegri hulinni Guðs speki, hverja Guð hefir fyrirhugað fyrir aldir til vorrar dýrðar, hverja enginn þessara heims höfðingja hefir þekkt. Því ef þeir hefðu þekkt hana, þá hefðu þeir eigi krossfest Drottin dýrðarinnar, heldur eftir því sem skrifað er það eigi hafi auga séð og eigi eyra heyrt og ekki í mannsins hjarta komið hvað Guð hefir fyrirbúið þeim er hann elska. En oss hefir Guð það opinberað fyrir sinn anda því að andinn rannsakar alla hluti, einninn djúpleik guðdómsins.

Hver manna er sá eð viti hvað í manninum er utan alleinasta sá andi sem með sjálfum honum er? Svo líka veit og enginn hvað Guðs er nema Guðs andi. En vér höfum eigi meðtekið þessa heims anda, heldur þann anda sem af Guði er svo að vér vitum hvað oss er af Guði gefið, hvar vér og af segjum, eigi meður þeim orðum sem mannleg viska kennir, heldur meður þeim orðum sem heilagur andi lærir, samlíkjandi svo andleg efni andlegana. En %líkamlegur maður skynjar ekkert þeirra sem er af Guðs anda af því að það er honum heimska, og hann fær það eigi skilið því að það hlýtur andlegana að úrskurðast. En sá andlegur er, úrskurðar alla hluti, og hann verður af öngum úrskurðaður.

Því að hver hefir þekkt hugskot Drottins eða hver lagði honum nokkuð ráð? En vér höfum Krists hugskot.

← Chapter 71Chapter 73 →