The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 73

1 Corinthians · Chapter 2

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 73 of 174 · about 2 min

← Chapter 72Chapter 74 →

[ breyta] Og eg, góðir bræður, mátti eigi tala við yður svo sem við andlega, heldur svo sem við líkamlega og líka sem við önnur ungberni í Kristo. Mjólk hefi eg yður til drykkjar að gefa, en eigi megnan mat því að þér formáttuð það ekki. Svo formegi þér það nú eigi heldur því að þér eruð enn líkamlegir. Og á meðan að agg og þrætur eru yðar á milli, eru þér þá eigi líkamlegir og gangið eftir mannlegri siðvenju? Því ef nokkur yðar segir: Eg em Páls, hinn annar: Eg em Appollinis, eru þér þá eigi líkamlegir? Hvað er Páll eða hver er Appollo utan þjónustumenn, fyrir hverja þér eruð trúaðir vorðnir og það sama eftir því sem Drottinn hefir hverjum einum veitt?

Eg plantaði, Appollo vökvaði, en Guð hefir frjóvgunina gefið. Svo er nú hvorki eg sá sem plantar né sá eð vökvar nokkuð, heldur Guð, sá er frjóvgunina gefur. En sá sem plantar og hinn sem vökvar, þeir eru eins. En hver einn mun sitt eiginlegt verðkaup öðlast eftir sínu erfiði. Því að vér erum Guðs atvinnumenn, þér eruð Guðs akurvinna og Guðs uppbygging. Eg hefi út af þeirri Guðs náð, sem mér er gefin, grundvöllinn lagt svo sem einn hygginn húsasmiður, en einn annar byggi þar yfir. Hver einn hafi og gát á hverninn hann byggir þar yfir. Því að enginn fær annan grundvöll lagt, heldur en þann sem áður er lagður, hver að er Kristur Jesús.

En ef nokkur byggir upp á þennan grundvöll gull, silfur, gimsteina, trjáhark, hey, stráhálm, og þá mun hvers eins verknaður opinber verða. Og dagurinn mun hann augljósan gjöra því að hann man með eldi opinberaður verða og hvílíkur að hvers eins verknaður sé, þá man eldurinn reynslu á gjöra. Ef nokkurs verknaður blífur, sá hann hefir þar yfir byggt, þá mun hann laun öðlast. En hvers verknaður sem forbrennur, þá mun hann skaðsemi líða. En hann sjálfur mun hólpinn verða, þó svo líka sem það sé fyrir eldinn. Viti þér ekki það þér eruð Guðs mustéri og það Guðs andi byggir í yður? En hver hann skammar Guðs musteri, þeim mun Guð fortýna því að Guðs musteri er heilagt, hvert þér eruð.

Tæli enginn sjálfan sig. Og ef nokkur er sá yðar á milli sem vitur þykist vera, verði hann að þessa heims óvitringi svo að hann mætti vitur vera. Því að þessa heims speki er heimska hjá Guði. Því að svo er skrifað: Höndla man eg spekinga í slægvisku þeirra. Og enn aftur: Drottinn veit hugsanir spekinganna það þær eru hégómlegar. Fyrir því meti sig enginn af mönnum. Allt er það yðvart. Sé það Páll eða sé það Appollo, sé það Kefas eða heimurinn, sé það lífið eða dauðinn, sé það hið nálæga eða hið ókomna, allt er það yðvart. En þér eruð Krists, Kristur er Guðs.

← Chapter 72Chapter 74 →