The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 74

1 Corinthians · Chapter 3

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 74 of 174 · about 2 min

← Chapter 73Chapter 75 →

[ breyta] Þar haldi oss hver mann fyrir, einkum fyrir Guðs þénara og verkstjórnara yfir Guðs leynda dóma. Nú heimtu vær eigi meir af verkstjórunum en það þeir finnist trúir. Því er mér það fyrir minnsta kosti að eg skuli af yður dæmast eður af jarðlegum degi. En þó dæmi eg ekki sjálfur mig. Því að öngvaneginn em eg mér sjálfum samráður, en í því em eg þó eigi réttlátur. Drottinn er sá sem dæmir.

Fyrir því dæmið ekki fyrir tímann þangað til að Drottinn kemur, sá er auglýsa mun það í myrkrunum er hulið og opinber gjöra ráðin hjartanna og mun þá hverjum sem einum lofstír ske af Guði. * En þetta, góðir bræður, hefi eg myndað upp á sjálfan mig og Appollinem yðar vegna svo að þér lærðuð af okkur það enginn haldi meir af sér en svo sem nú er skrifað upp á það að enginn hrósi sig upp mót öðrum fyrir nokkurs sakir. Því hver heldur þér fram? Eða hvað hefir þú það að þú hafir eigi meðtekið? En fyrst þú hefir það meðtekið, hvað metur þú þig þá sem sá það hefði ekki meðtekið? Þér eruð nú saddir, þér eruð nú þegar auðugir vorðnir, þér ríkið án vor.

Gæfi það og Guð að þér ríktuð svo að vér mættum og ríkja með yður. En eg meina það Guð hafi auðsýnt oss fyrir hina allra síðustu postula svo sem dauðanum ofurfengna því að vér erum sjónhending vorðnir heiminum, og svo englum og mönnum. Vér erum þussar fyrir Krists sakir, en þér forhyggnir í Kristo, vér veikir, en þér styrkvir, þér dýrðlegir, vér háðulegir. Því að allt til þessa dags þolum vér svengd og þorsta og erum klæðfáir og verðum hnefum barðir, höfum öngvan samastað, erfiðum og verkum meður vorum eigin höndum. Og nær oss er formælt, blessu vér, eru vér ofsóktir, þá líðu vér, eru vér lastaðir, þá beiðu vér.

Og jafnan eru vér svo sem hrak þessarar veraldar og hreinsunaroffur allra manna allt til þessa. Þetta skrifa eg eigi upp á það eg hneyksli yður, heldur áminni eg yður svo sem mína kærustu syni. Því þótt þér hefðuð tíu þúsundir lærimeistara í Kristo, þá hafi þér þó eigi feðurna marga. Því að í Kristo Jesú fyrir guðsspjöllin þá hefi eg alið yður. Fyrir því áminni eg yður að þér séuð mínir eftirfylgjarar. Þar fyrir sendi eg Tímóteum til yðar, hver að er minn kærasti sonur í Drottni, að hann undirvísi yður mína vegu þá sem að eru í Kristo líka svo sem eg í öllum samkundum og alls staðar kenni.

Þar hroka sér nú nokkrir upp líka sem eg munda eigi koma til yðar, en eg mun þó næsta snarlega koma til yðar ef Drottinn vill að eg reyni, eigi orð þeirra sem upphrokaðir eru, heldur kraft. Því að Guðs ríki er eigi fólgið í orðum, heldur í krafti. Hvað vilji þér? Skal eg meður vendi til yðar koma eða með kærleik og hógværum anda?

← Chapter 73Chapter 75 →