The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 75

1 Corinthians · Chapter 4

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 75 of 174 · about 4 min

← Chapter 74Chapter 76 →

[ breyta] Algjörlegana heyrist það að þar sé hóranir yðar á milli og þó slík hóran sem eigi er getið á meðal heiðinna þjóða því að nokkur skyldi hafa síns föðurs eiginkonu. Og þó eru þér upp hrokaðir og hafið ekki miklu framar önn um alið svo að sá sem það verk hefir drýgt yrði í miðið burt tekinn frá yður. Að sönnu eg, fráverandi að líkama, þó nálægur í anda, hefi svo sem þar nærverandi dæmt yfir honum sem slíkt hefir gjört í nafn Drottins vors Jesú Kristi að yður samankomnum meður mínum anda og með krafti vors Drottins Jesú Kristi hann ofur að selja andskotanum til holdsins fordjörfunar svo að andinn sé hjálplegur á degi Drottins vors Jesú. Yðvar hrósan er eigi góð.

Viti þér ekki að lítið súrdeig sýrir allt deigið? Fyrir því hreinsið burt hið gamla súrdeigið svo að þér séuð nýtt deig svo sem þér eruð ósýrðir. Því að vort páskalamb er Kristur fyrir oss offraður. Fyrir því neytum vorra páska eigi í gömlu súrdeigi og eigi í súrdeigi illskunnar og prettvísinnar, heldur í sætu deigi skírleiksins og sannleiksins. * Eg skrifaði yður í bréfinu að þér skylduð ekki samblandast hóranarmönnum. Öngvaneginn meina eg þessa heims hóranarmenn eða ágirndarmenn, ræningja né blótmenn skurgoða. Annars hlyti þér veröldina að rýma.

En nú skrifa eg yður það þér skuluð eigi samblandast, einkum ef sá er nokkur sem sig lætur bróður kalla og er frillulífismaður eða ágirndarmaður, blótmaður skurgoða eða brigslunarmaður, ofdrykkjumaður eður ræningi. Og með þess konar mönnum skulu þér ekki matar neyta. Því hvað koma þeir við mig sem þar fyrir utan eru það eg skyldi þá dæma? Er eigi svo að þér dæmið þá sem hér fyrir innan eru, en Guð mun dæma þá sem fyrir utan eru? Keyrið þann burt frá yður sem vondur er. Sétti kapítuli [ breyta] Hverninn dirfist nokkur af yður þótt hann hafi eitthvað kærumál í móti öðrum að láta dæma það hjá ranglátum og eigi heldur hjá heilögum? Eða viti þér ekki það heilagir munu heiminn dæma?

Og fyrst heimurinn skal dæmast af yður, eru þér þá óverðugir til að dæma um það sem minni háttar er? Viti þér eigi það vér munum yfir englunum dæma? Hversu miklu meir þá yfir stundlegum auðæfum? En þér, nær þér hafið nokkur málaferli um stundlegan auð, þá taki þér þá sem hjá söfnuðinum forsmáðir eru og setjið þá til yfirdómara. Yður til smánar segi eg þetta. Er þar þá með öllu enginn svo vitur yðar á milli það að dæma kunni millum bróðurs síns og bróður? Heldur deilir bróðir við bróður, þar ofan á fyrir vantrúuðum. Því er þar sennilega fullkomlegt brot í bland yður það þér hafið lagadeilur yðvar á milli. Hvar fyrir líði þér ekki miklu heldur órétt? Eða hví láti þér ekki svíkja yður heldur?

Þér gjörið heldur rangt og svíkið og þó það við bræðurna. Eða viti þér ekki það ranglátir munu eigi eignast Guðs ríki? Því villist eigi að hvorki frillulífismenn né blótmenn skurguða, eigi hórdómsmenn né sælgætingar, eigi heldur þeir sem skömm drýgja með karlmönnum, eigi þjófar né ágirndarmenn, eigi ofdrykkjumenn, eigi hneykslarar né ræningjar munu Guðs ríki eignast. Og þvílíkir hafa forðum daga nokkrir út af yður verið. En þér eruð nú af þvegnir, þér eruð nú helgaðir, þér eruð og réttlættir í nafni Drottins Jesú og fyrir anda Guðs vors. Allt leyfist mér, en eigi batar það mig allt. Eg hefi allra hluta vald, en mig skal ekkert yfirbuga.

Fæðslan maganum og maginn fæðslunni, en Guð man þetta og hitt slétt gjöra. Líkamann að sönnu eigi frillulifnaðinum, heldur Drottni og Drottinn líkamanum. Sennilega hefir Guð Drottin upp vakið og svo mun hann oss upp vekja fyrir sinn kraft. Eða viti þér ekki það yðrir líkamir eru Krists limir? Skylda eg nú taka Krists limu og gjöra þar af skækjunnar limu? Það sé fjarri. Eða viti þér ekki að hver hann samtengir sig skækjunni að sá er einn líkami meður henni? Því að þau munu (segir hann) tvö í einu holdi vera. En hver hann samtengir sig Guði, sá er einn andi meður honum. Flýið frillulifnaðinn. Því að allar syndir, hverjar maðurinn drýgir, eru utan hans líkama.

En hver eð frillulifnaðinn drýgir, sá syndgar á sinn eigin líkama. Eða viti þér ekki að yðrir limir eru mustéri þess heilags anda sem í yður er, þann þér hafið af Guði? Þér eruð og eigi yðrir sjálfs. Því að þér eruð dýru verði keyptir. Þar fyrir vegsamið Guð í yðrum líkama og yðrum anda hverjir Guðs eru.

← Chapter 74Chapter 76 →