1 Corinthians · Chapter 5
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 76 of 174 · about 6 min
[ breyta] En um aðra þá hluti þér skrifuðuð mér til andsvara eg það manninum sé gott að hann snerti eigi neina konu. En fyrir frillulifnaðar sakir þá hafi hver einn sína eiginkvon og hver ein hafi sinn eignarmann. Maðurinn gjöri kvinnunni sitt skyldugt atlot, slíkt hið sama kvinnan manninum. Konan hefir eigi vald síns líkama, heldur maðurinn. Líka og einninn maðurinn hefir eigi vald síns líkama, heldur konan. Tæli hvorki yðart annað nema það sé af beggja samþykkt um stundar sakir svo að þér séuð þess liðugri til föstu og bænahalds, og komið síðan aftur til samans svo að andskotinn freisti yðar ekki fyrir yðvars óstöðugleiks sakir. Þetta segi eg af vorkunnsemi og eigi eftir skipan.
En eg vilda að allir menn væri svo sem að eg em, hver einn hefir sína eiginlega gjöf af Guði, einn að sönnu svo, en annar svo. En það segi eg þeim ógiftum ekkjum að þeim er gott ef þær blífa svo sem eg. En ef þær fá sér eigi haldið, giftist þær þá því að betra er að giftast en að %brenna. En þeim sem giftir eru, býður eigi eg, heldur Drottinn það konan skilji sig eigi við manninn, en ef hún skilur, þá blífi hún utan hjúskapar eða forlíki sig við sinn mann og maðurinn forleggi ekki sína eiginkonu. Hinum öðrum segi eg, en ekki Drottinn, að ef einhver bróðir hefir vantrúaða konu og henni hagar að búa við hann, þá skilji hann eigi við hana.
Og ef sú kona er sem vantrúaðan mann hefir og það hagar honum hjá henni að búa, þá skilji hún eigi við hann. Því að vantrúaður maður er helgaður fyrir konuna, og vantrúuð kona er helguð fyrir manninn. Annars væri börn yðar saurug, en nú eru þau heilög. En ef hinn vantrúaði vill skiljast, þá látið hann skiljast. Því bróðir eða systir er eigi forbundin af þess háttar efni, heldur hefir Guð oss í friði kallað. Eða hvað veistu það, kona, nema að þú kunnir að gjöra manninn hólpinn? Eða þú, maður, hvað veistu nema þú getir gjört konuna hjálplega? Þó eftir því sem Guð hefir hverjum einum úthlutað. Hver og einn eftir því sem að Drottinn hefir hann kallað, þá gangi hann.
Og svo skikka eg það til í öllum söfnuðum. Er nokkur umskorinn kallaður, sá æski eigi yfirhúðar. Er og nokkur kallaður í yfirhúðinni, láti sá eigi umskera sig. Umskurnin er ekkert, yfirhúðin er og ekkert, heldur varðveiting Guðs boðorða. Hver einn blífi nú í þeirri kallan sem hann er inni kallaður. Og ef þú ert einn þjón kallaður, þá haf þar eigi áhyggju fyrir, en getur þú frjáls vorðið, þá kostgæf þess heldur. Því að hver hann er þjón kallaður í Drottni, sá er frelsingi Drottins. Líka og einninn hver hann er frelsingi kallaður, sá er þjón Krists. Þér eruð dýrkeyptir, verðið eigi þrælar mannanna. Hver og einn, góðir bræður, í hverri stétt sem hann er kallaður, þar blífi hann inni hjá Guði.
En af meyjum hefi eg ekkert boðorð Drottins. Þó gef eg til ráð eftir því sem eg hefi miskunnsemi öðlast af Drottni að eg sé trúr. Því meina eg nú það gott vera fyrir nálægrar nauðþurftar sakir það manninum sé gott svo að blífa. Ertu við konuna bundinn? Þá sæk eigi eftir laus að verða. En ertu konulaus? Þá leita eigi kvonfangs. Þótt þú giftist, syndgar þú ekki, og þó að ein mey giftist, syndgar hún eigi. Þó munu þess konar holdsins harmkvæli hafa eiga, en eg þyrmda yður gjarnan. Það segi eg, góðir bræður, að tíminn er naufur.
Framar er það þó meiningin að þeir sem eiginkvæntir eru það þeir sé svo sem að þeir hefði eigi neinar, og þeir eð harma svo sem að hörmuðu þeir eigi, og þeir eð fagna svo sem að fögnuðu þeir eigi, og þeir eð kaupa svo sem að eignuðust þeir það eigi, og þeir sem tíðka þennan heim svo sem að tíðkuðu þeir hann eigi. Því að þessa heims athöfn forgengur. En eg vilda að þér væruð utan áhyggju. Hver ókvæntur er, sá beri áhyggju um það hvað Drottins er, hverninn hann megi Drottni þókknast. En hver eiginkvæntur er, sá ber áhyggju um það hvað heimsins er og hversu hann megi húsfreyjunni þókknast. Aðskiljanleg grein er á millum meyjar og manns konu.
Hin ógifta ber áhyggju um það hvað Drottins er svo að hún sé heilög í líkama og anda. En sú sem gift er, ber áhyggju um það hvað heimsins er og hverninn hún megi manninum þókknast. En þetta tala eg til yðrar gagnsemi, eigi upp á það eg leggi snöru fyrir yður, heldur til þess sem siðsamlegt er svo að þér mættuð jafnan óforhindraðir Drottni þjóna. En ef nokkur þykist sjá það sér muni torveldur vera sinn meydómur, ef gjaforðstíminn líður þó og svo ef það vill eigi öðruvís verða, þá gjöri hann hvort honum líkar. Giftir hann sig, þá syndgar hann eigi.
En hver það setur stöðugt sér í hjarta og hefir þar með eigi neina þvingan, hafandi svo vald síns eiginlegs vilja og staðfestir í sínu hjarta að varðveita sinn meydóm, hann gjörir vel. Og hver eð giftist, sá gjörir og vel. En hann sem giftir sig ekki, sá gjörir betur. Kvinnan er lögmálinu undirbundin svo lengi sem hennar maður lifir. En nær hennar maður er látinn, svo er hún frjáls sig að gifta hverjum hún vill, utan það skal ske í Drottni. En þó er hún sælli ef hún blífur sem mitt ráð er til. En eg held það að eg muni og hafa Guðs anda. Áttandi kapítuli [ breyta] En um það sem skurguðum offrast, vitu vér það vér allir höfum skynsemina. Skynsemin, hún blæs upp, en ástsemin bætir um.
Nú ef einhver lætur sér þykja það hann viti nokkuð, sá veit enn eigi svo sem honum ber að vita. En ef sá er einhver sem elskar Guð, hann er af honum þekktur. Svo vitu vér nú af þeirri fæðslu sem skurguðunum offrast og það skurgoðið sé einskis vert í heiminum því enginn er Guð nema einn. Og þó að þar sé nokkrir þeir sem guðir kallast, hvort það er á himni eður á jörðu (með því að margir eru guðir og margir drottnar), en þó höfum vér ekki utan einn Guð föður, af hverjum að allir hlutir eru og vér í honum og einn Drottin Jesúm Kristum, fyrir hvern allir hlutir eru og vér fyrir hann. En þessa skynsemi hafa eigi allir.
Því að nokkrir hafa gjört sér samvisku hér til yfir því skurgoði og átu það fyrir skurgoðafórnir. Og með því að þeir voru svo veikir, þá flekkaðist þeirra samviska í þessu. Því fæðan batar oss ekki fyrir Guði. Etu vér, þá eru vér eigi betri fyrir það, etu vér og ekki, þá verðum vér eigi verri fyrir það. En sjáið svo til að þetta yðvart frelsi verði eigi til hindranar hinum veiktrúuðum. Því ef nokkur sæi þig (þann sem skynsemina hefir) sitja til borðs í goðahúsi, verður þá eigi hans samviska, með því hann er breyskur, hvött upp að eta skurgoðafórnir? Og svo forferst þinn breyskvi bróðir í þinni skynsemi, fyrir hvern að Kristur er líflátinn.
Og nær þér syndgist svo við bræðurna og sláið þeirra breyskva samvisku, þá syndgist þér við Krist. Hvar fyrir ef að fæðan hindrar bróður minn, skylda eg aldri kjöt eta svo að eg gjörða öngva hindran mínum bróður.