The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 77

1 Corinthians · Chapter 6

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 77 of 174 · about 3 min

← Chapter 76Chapter 78 →

[ breyta] Er eg ekki postuli? Em eg eigi frjáls? Hefi eg ekki séð Drottin vorn Jesúm Krist? Eru þér ekki mitt verk í Drottni? Og þó eg sé eigi annarra postuli, þá em eg þó yðar. Því að innsigli míns postullegs embættis eru þér í Drottni. En andsvar mitt við þá, sem mig að spyrja, er þetta: Höfum vér eigi vald til að eta og drekka? Höfum vér eigi vald til einhverja systur að eignarkonu um að flytja líka sem aðrir postular og bræður Drottins og svo sem Kefas? Eða höfum við ekki, eg og Barnabas, makt til þetta að gjöra. Hver slæst upp á sitt eigið verðkaup? Hver plantar víngarðinn og etur ekki af hans ávexti? Eða hver fóðrar hjörðina og neytir ekki af mjólk hjarðarinnar?

En eftir mannlegri siðvenju tala eg þetta. Segir og ekki lögmálið þetta? Því að svo er skrifað í Moyses lögmáli að eigi skaltu múlbinda nautið það sem erjar. Hvort ber Guð áhyggju fyrir nautunum? Eða segir hann ekki þetta alls kostar vorra vegna? Því að fyrir vorar sakir er þetta ritað af því þann sem plægir, skal plægja á vonina og sá sem erjar, hann skal erja á vonina svo að hann verði hluttakari sinnar vonar. Fyrst vér sáðum yður hið andlega, er það mikilsvert þó vér upp yrkjum yðvart hið líkamlega? Og ef hinir aðrir eru hluttakandi þessarar yðrar maktar, hvar fyrir skyldu vér eigi miklu framar?

En vér höfum eigi tíðkað þessa makt, heldur umliðu vér allra handa svo að vér gjörðum Krists evangelio öngva hindran. Viti þér ekki það þeir sem fórninnar færa, eta af því sem fórnfært er, og þeir sem altarinu þjóna, eru altarisins hluttakarar? Líka svo hefir og Drottinn til skikkað að þeir sem guðsspjöllin kunngjöra, skulu af guðsspjöllunum sitt fæði hafa. En ekkert þessara hefi eg tíðkað. En eg skrifa eigi þetta þar fyrir að svo skuli við mig vera gjört. Því betra væri mér heldur dauðum að vera en það að nokkur skyldi mína vegsemd ónýta gjöra. Því þó að eg prediki Guðs evangelion, þá má eg ekki vegsama mig um það því að nauðsynin rekur mig þar til.

Og svei sé mér þá ef eg predika ekki guðsspjöllin. Nú ef eg gjöri það viljugur, þá mun mér launað, en þó eg gjöri það óviljugur, þá er mér þó embættið á hendur fólgið. Hvað er nú þá mín laun? Einkum það eg prediki evangelion Krists og gjöri það sama viljanlega fyrir ekkið svo að eg misbrúki ekki mitt veldi á guðsspjöllunum. Því þótt eg sé frjáls fyrir öllum, þá hefi eg þó gjört sjálfan mig að hvers manns þjón svo að eg yfirvinni þá marga. Og Gyðingum em eg vorðinn svo sem Gyðingur upp á það eg yfirvinni Gyðinga. Og þeim sem undir lögmálinu eru, em eg vorðinn svo sem undir lögmáli svo að eg yfirvinni þá sem undir lögmálinu eru.

Og þeim sem án lögmáls eru, em eg vorðinn svo sem án lögmáls sem eg em þó eigi án Guðs lögmáls, heldur em eg í Krists lögmáli svo að eg yfirvinni þá hinu sömu sem án lögmáls eru. Og þeim sem breyskvir eru, em eg vorðinn sem væra eg breyskur svo að eg yfirvinni hina breyskvu. Hverjum manni em eg vorðinn að öllu deili svo að eg gjörða alls staðar einhverja hjálplega. En allt þetta gjöri eg vegna Guðs evangelii svo að eg verði þess hluttakari. Eða viti þér ekki að þeir sem á skeiðið hlaupa það þeir hlaupa allir, en einn er sá sem hnossið tekur? Hlaupið nú og svo að þér höndlið það.

En hver sá sem slæst, hann varar sig við öllu, þeir að sönnu upp á það þeir öðlist forgengilega kórúnu, en vér óforgengilega. En eg hleyp, líka svo eigi sem upp á hið óvísa. Eg slæst, eigi svo sem sá er í vindinn slær. Heldur þjái eg minn líkama og tem hann svo að eg prediki það eigi öðrum og verði sjálfur rækur.

← Chapter 76Chapter 78 →